Feykir - 14.01.1987, Side 5
1/1987 FEYKIR 5
eimabyggð og kjördæim
Ofeigur Gestsson
á Hofsósi:
Þegar litið er yfir farinn veg,
árið 1986 er margs að minnast,
árið var fjölskrúðugt ef svo má
að orði komast.
Minnisvert
í litlu sjávarplássi eins og
Hofsósi er það merkisviðburður
þegar stæsti vinnuveitandinn
Hraðfrystihúsið hf. Hofsósi
(HFH) heldur aðalfund sinn og
tilkynnir hluthöfum þá ákvörðun
stjórnar að greiddur verði 5%
arður eftir árið 1985.
Það eru líka mikil tíðindi
þegar tveir af togurum Útgerðar-
félags Skagfírðinga eru frá
veiðum mánuðum saman, hrá-
efnisskortur í HFH af þeim
sökum er tvímælalaust það
neikvæðasta hér á heimaslóð.
Samdráttur þessi hefur haft
veruleg áhrif á líf fjölda fólks í
þorpinu, bæði starfsfólks HFH
og sjómanna. Þessi samdráttur
mun svo á þessu ári hafa áhrif á
tekjur sveitarsjóðs._Margt starfs-
fólk HFH var fastráðið udd úr
sveitarstjóri
miðju sumri sem leið en
reglugerð um úthlutun atvinnu-
leysisbóta til fyrirtækja er enn
ekki tilbúin í ráðuneyti þannig
að ekki er séð hver fjárhagsleg
byrði HFH verður vegna þessa
samdráttar sem nemur um 1500
tonnum í lönduðum afla.
Þá er ennfremur neikvætt að
Hafrannsóknarstofnun hefur lagt
til að ekki verði á þessu ári veidd
skel í Skagafirði.
Þegar þetta er skrifað er
óvissa i þessu efni þvi yfirlýsing
Hafrannsóknarstofnunnar er gefin
út í fjölmiðlum á sl. hausti án
þess að kannað hafi verið ástand
fjarðarins, hefur það ekki verið
gert enn.
A árinu sem leið voru
malbikaðir á ellefta þúsund
fermetrar af gatnakerfi þorpsins
og eru nú allar skipulagðar
götur lagðar bundnu slitlagi, er
þetta vissulega merkur áfangi í
sögu Hofsóshrepps. Á þessu
komandi ári verður væntanlega
hafist handa við að endurnýja
brú yfir Hofsá í þorpinu og
leggja nýjan veg að og frá henni
niður að höfninni, verður þessi
framkvæmd til mikilla bóta fyrir
samgöngur innan þorpsins.
Eftirminnilegt verður hve
samskipti ríkis og sveitarfélaga
hafa stirðnað á nýliðnu ári.
Sveitarfélög
Nú um jólin kom svo sjálfur
forseti ASI með yfirlýsingu um
að sveitarfélög ættu að lækka
útsvör 1987.
Mikið hefur verið rætt og ritað
um frjálshyggju en á dauða
mínum átti ég fyrr von en forseti
ASÍ predikaði frjálshyggju frekar
en félagshyggju. Verði útsvars-
prósenta lækkuð t.d. í 9% verða
borgararnir í auknum mæli að
greiða beint úr eigin vasa ýmsa
þá þjónustu sem sveitarfélögin
veita nú og greiða með úr
sameiginlegum sjóði borgaranna
í viðkomandi sveitarfélagi.
Þessi tilmæli forsetans koma
fram á sama tíma og tekjur
Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga 1987
eru skornar niður um litlar 600
milljónir, skuld ríkisins við
þéttbýlissveitarfélögin í þessu
kjördæmi er um 25 milljónir og
núverandi stefna í landbúnaðar-
málum skerðir tekjur dreifbýlis-
sveitarfélaga á næstu árum um
ótilteknar upphæðir, fyrir utan
þá skerðingu sem ýmsar iðnaðar-
og þjónustugreinar, sérstaklega
á Blönduósi og Sauðárkróki,
svo dæmi sé tekið úr þessu
kjördæmi, verða fyrir.
Þá hefur menntamálaráðherra
í kjölfar svívirðinga sinna um
óráðssíu og spillingu okkar sem
sjá um grunnskólahald, ákveðið
að fylgja því fast eftir að hlutur
sveitarfélaga varðandi rekstur
skóla verði aukinn en hlutur ríkis
minnkaður sem nemur ótil-
greindum tugum milljóna á
þessari stundu en sveitarfélög
sem verst eru stödd skuli
samtals fá 10 milljóna dúsu í
staðinn.
Varðandi hugmyndir forseta
ASI er einnig rétt að geta þess að
þeir tekjuhæstu munu fyrst og
fremst njóta góðs af lækkun
útsvars.
Þeir sem tekjulægstir eru
finna ekki svo mikið fyrir
útsvarinu sínu því persónu-
afsláttur og barnabætur dekka
útsvar þeirra að hluta og
stundum alveg.
Vissulega er hægt að lækka
útsvarsálagninguna, t.d. erhægt
að ákveða á þessu ári að 1992
skuli innheimta 8,5% og síðan
skuli lækka um 1/5-1% á ári þar
til þessi skattur er horfinn.
Þá verður að finna tekjur í
staðinn eða leggja niður þá
starfsemi sem útsvör hafa staðið
undir til þessa. Þetta er hægt en
er fráleitt að mínum dómi
varðandi ýmiskonar félagslega
þjónustu.
Allar breytingar á þessu sviði
eru raunar á valdi borgaranna
sjálfra því óvíða í „kerfinu” eru
áhrif borgaranna virkari.
Varavöllur
Umræðan um varaflugvöll
fyrir millilandaílug á Sauðár-
króki á liðnu ári var mikil og
fáránleg. Fór hún víða fram og
heyrðust frá hinum ólíklegustu
stöðum hinar ólíklegustu röksemdir
gegn lengingu flugbrautarinnar
á Krók.
Þegar kaupfélagsstjóri norðan
úr Eyjafirði ræddi þessi málefni
á Hólahátíð sl. sumar og lagðist
gegn framkvæmdinni fannst
manni fokið í flest skjól. Síðar
kom í ljós að Eyfirðingar höfðu
hug á að leysa þennan vanda
fyrir millilandaflugið og fór
maður þá að skilja til hvers
refirnir voru skornir.
Þetta flugvallarmál er skóla-
bókardæmi um það hvernig ekki
á að standa að málum og
tímabært fyrir Skagfirðinga alla
að taka höndum saman með
öðrum íbúum kjördæmisins um
að koma þessu máli farsællega í
höfn. Allt þetta mál minnir
mjög á framgöngu Borgfirðinga
í símamálinu forðum.
PistUl frá Siglufirði barst ekld
í tæka tíð en hann verður
væntanlega birtur í næsta blaði.
Þorramaturinn kominn súrmatur
Hrútspungar .......kr. 645.00
Lundabaggar........kr. 301.90
Vestfirskurhákarlverð kr. 450.-pr.kg Eistnavefjur .....kr. 490.70
Sviðasulta........ kr. 678.30
Ný sviðasulta Bringukollar..... kr. 234.00
Harðfiskur Blóðmör ......... kr. 239.40
Kryddsíld Lifrapylsa ...... kr. 296.60
Saltsíld Hvalur ...........kr. 308.00
í FISKBORÐINU
Ný ýsa Saltaðar kinnar
Ný ýsuflök Gellur, nýjar og
Nýr þorskur Sigin grásleppa
Hrogn og lifur Graflúða
Reyktur fiskur Graflax
Siginn fiskur Graf silungur
Saltfiskur
Hinar
vinsælu
Silver Reed
tölvuritvélar