Vestfirska fréttablaðið - 10.01.1996, Side 1
ÞRIU
- Undirbuningur að hefiast fyrir
sveitarsiiórnarkosninaar í sveitarfélaginu nýja
á norðanverðum Vestfjörðum. sem haldnar verða
á iokadaginn, 11. maí í vor
Aðeins fjórir mánuðir eru
þangað til kosin verður
sveitarstjórn í hinu nýja
sameinaða sveitarfélagi á
norðanverðum Vestfjörðum,
en kjördagur verður laugar-
dagurinn 11. maí, sjálfur
lokadagurinn. Undirbúning-
ur framboða er að hefjast og
eins og sakir standa virðist
ekki ósennilegt að um þrjú
framboð verði að ræða, þ.e
framboð sjálfstæðismanna,
sameiginlegt framboð félags-
hyggjumanna (vinstri
manna) og framboð Vest-
fjarðalistans, samtaka Péturs
Bjarnasonar. Víst má telja að
hin nýja sveitarstjórn verði
skipuð 11 manns, en það hef-
ur þó ekki enn verið ákveðið
formlega.
Ekki eru horfur á því að
neinn flokkur verði með
prófkjör fyrir þessar fyrstu
kosningar í hinu nýja sveit-
arfélagi, enda niyndi slíkt
vera í fullkominni mótsögn
við þann anda í sameining-
arvinnunni, að gætt skuli
jafnræðis milli gömlu sveit-
arfélaganna eins og kostur
er.
Uppstillingu
hraðað Itiá Sjálf-
stæðisflokki
Á fundum í fulltrúaráðum
sjálfstæðisfélaganna á svæðinu
hefur verið ákveðið að stilla
upp lista en viðhafa ekki próf-
kjör. Kosin hefur verið sex
manna uppstillingarnefnd og
eiga sæti í henni af hálfu full-
trúaráðsins á Isafirði þau Björn
Jóhannesson, formaður, Jens
Kristmannsson og Kristín
Hálfdánardóttir, en af hálfu
fulltrúaráðsins í Vestur-
Isafjarðarsýslu þeir Angantýr
Jónasson á Þingeyri, Hinrik
Kristjánsson á Flateyri og Óð-
inn Gestsson á Suðureyri.
Nefndin er búin að koma einu
sinni saman „og menn eru rétt
byrjaðir að viðra skoðanir sínar
og hugmyndir“, eins og einn
nefndarmanna komst að orði.
Reynt verður að hraða verkinu
eins og hægt er og hafa listann
tilbúinn sem allra fyrst.
Alþýðuflokkur
býður upp á vlð-
ræður um sam-
eiainieat vinstra
framboð
Alþýðuflokksfélögin í norð-
anverðum Vestfjörðum héldu
fjölmennan fund á Isafirði sl.
sunnudag, þar sem fram kom
eindreginn vilji til þess að efna
til sameiginlegs framboðs fé-
lagshyggjufólks á svæðinu.
Kosin var sjö manna undirbún-
ingsnefnd til þess að vinna að
málinu og skipa hana Björn
Hafberg á Flateyri, Andrés
Guðmundsson á Þingeyri, Jón
Arnar Gestsson og Sturla Páll
Sturluson á Suðureyri og Gróa
Stefánsdóttir, Guðjón Brjáns-
son og Snorri Hermannsson á
ísafirði. í dag (miðvikudag)
PIZZA 67 S 456 3367
í SJALLANUM ÍSAFIRÐI
Fimmtudagur 10. janúar 1996 • 2. tbl. 22. árg.
S 456 4011 «Fax 456 5225
Verð kr. 170 m/vsk
Skutulsfjörður við Djúp.
verða samkvæmt heimildum
blaðsins send út bréf til annarra
flokka og framboða á vinstri
vængnum, þar sem óskað
verður eftir viðræðum um
sameiginlegt framboð.
Blendnar tilfinn-
ingar hjá Fram-
sókn
Á meðal þeirra sem fá bréfið
verða framsóknarmenn, en fé-
lög þeirra á svæðinu hafa sam-
þykkt að ekki verði efnt til
prófkjörs heldur skuli stillt upp
lista. Samkvæmt heimildum
blaðsins eru blendnar tilfinn-
ingar hjá framsóknarmönnum
til væntanlegs tilboðs krata um
sameiginlegt framboð en þó
mun eflaust verða gengið til
viðræðna um þau mál.
Horfur á fram-
boði Vestfjarða-
lista Péturs
Bjarnasonar
Einnig mun Vestfjarðalist-
inn, framboð Péturs Bjarna-
sonar frá síðustu Alþingis-
kosningum, fá bónorðsbréfið
frá krötum, en samkvæmt
heimildum blaðsins eru litlar
líkur til þess að menn á þeim
bæ gangi til samvinnu um
vinstra framboð. Mikill áhugi
er meðal ýmissa stuðnings-
manna Vestfjarðalistans fyrir
sjálfstæðu framboði og má
einnig vísa til ummæla f Dynj-
anda, blaði listans sem út kom
fyrir jólin, þar sem sterklega er
gefíð í skyn að félagsskapur
þessi hafi ekki látið staðar
numið í pólitísku starfi.
Nýársfagnaður
Kiwanismanna á Hlíf
Allt vaðandi í Horski
á Vestfjarðamiðum
Það er allt vaðandi í þorski
á miðunum út af Vestfjörð-
um og nú er svo komið að
ekki einu sinni fiskifræðing-
ar Hafró geta neitað því.
Togararnir hafa árum sam-
an verið á flótta undan
þorskinum og sjómenn hafa
greint frá mjög vaxandi
þorskgegnd, venjulega fyrir
daufum eyrum.
Nú er rannsóknaskipið
Bjami Sæmundsson á Vest-
tjarðamiðum og hefur ekki
komist hjá því að finna mikinn
og góðan þorsk, enda er þar um
borð að þessu sinni sjálfur
Guðjón A. Kristjánsson (Addi
Kitta Guj), hinn þrautreyndi
vestfirski togarajaxl og forseti
FFSÍ.
Einar K. Guðfinnsson al-
þingismaður Vestfirðinga ætlar
að ræða um aukningu afla-
heimilda við sjávarútvegsráð-
herra og aðra sem að málinu
koma, í framhaldi af þeim upp- i
lýsingum sem fengist hafa að I
undanförnu um aukna þorsk-
gengd.
Tímamót í vatnsmálum ísfirðinga
Merkileg tímamót urðu í neysluvatnsmálum ísfirðinga
eftir hádegið í dag, miðvikudag, þegar skrúfað var end-
anlega fyrir „skítavatnið“ (yfirborðsvatnið) af Dagverð-
ardal en hreina og góða vatninu úr jarðgöngunum hleypt
inn á kerfið í staðinn. ísfirðingar bjuggu um langan aldur
við allsendis óneysluhæft vatn en nú hafa á stuttum tíma
orðið straumhvötf í því efni.
Kiwanisklúbburinn Básar á ísafirði hélt nýársfagnað fyrir
eldri borgara sl. sunnudag. Fagnaðurinn var haldinn á Hlíf og
komu þar um hundrað manns sem þágu kaffi og ýmislegt
góðgæti með. Þá var sungið, lesin Ijóð og saga og leikið á
fiðlur. Veislan hófst kl. 15 og lauk samkvæminu með dansi
um þremur tímum síðar.
í mars á þessu ári mun Kiwanisklúbburinn Básar halda upp
á tuttugu ára afmæli sitt.
PÓLLINN
HF. S 456 3092 Sala & þjónusta
Rafþjónusta Raftækjasala
Rafhönnun Rafeindaþjónusta Siglingatæki
Kælitæki
©
PÓLLINN HF
Hjá okkur færð bð m.a.
SIEMENS • PHILIPS
SONY • PANASONIC • BOSCH • SANYO • TECHNICS • KOLSTER
HUSQUARNA • LASER • HEWLETT PACKARD • APPLE
%l et nitti tmim til <zí Idiz
frimta neifauwpz oy mm
eifiuétiÍ ~ mmÍmcí!
ÍSPRENT HF.
Fjarðarstræti 16 • ísafirði
ST 456 3223