Vestfirska fréttablaðið - 14.02.1996, Blaðsíða 3
VESTFIRSKA
FRÉTTABLAÐH) L
Miðvikudagur 14. febrúar 1996
3
Myndir frá leik KFÍ og Leiknis í íþróttahúsi ísfirðinga á Torfnesi sl. laugardag.
Glæsílegur sigur Körfuboltafelags Isafjarðar
- Chrlstopher Ozment hefur verið valinn i stiörnulið og tíl að taka hátt í troðslukeppni
ísfirðingar unnu um helgina
glæsilegan sigur á gestum sín-
um, Leikni úr Reykjavík, og
urðu lokatölur 106-85. Liðið
hefur tryggt sér sæti í fjögurra
liða úrslitum í 1. deildinni. Að
þessu sinni voru Isfirðingar ó-
venju seinir í gang, en þegar
nokkrar mínútur voru liðnar af
leiknum var ljóst hvert stefndi.
KFI tók öll völd á vellinum og
Leiknismenn náðu aldrei að
ógna sigri okkar manna.
Fyrri hálfleikur var ekki á-
ferðarfallegur, mikið var um
villur og oftar en ekki lágu
menn í gólfinu. Sem dæmi, þá
fékk KFÍ dæmdar 20 villur á sig
í fyrri hálfleik, sem er fáránlega
há tala. En í seinni hálfleik varð
kúvending, leikgleðin réð ríkj-
um og villurnar í hálfleiknum
urðu aðeins sex. Ahorfendur
fengu að líta allar hliðar körfu-
boltans og mörg falleg tilþrif
frá báðum liðum, þó að KFI
hafi haft vinninginn: Chris með
fallegar troðslur, Baldur með
þriggja stiga skot, Hrafn og
Shiran með falleg gegnumbrot.
Auðunn og Þórður með góða
vöm og falleg hraðaupphlaup,
Ingimar með mikið af fráköst-
um og falleg „spor“, og síðast
en ekki síst Magnús og Finnur
með góða innkomu í erfiðri
stöðu. Sem sagt, allir með
góðan Ieik og þegar þannig er
í pottinn búið er erfitt að vinna
Isfirðinga á heimavelli þeirra.
Besti maður leiksins að þessu
sinni var liðsheildin, góður
mórall, góðir félagar, gott lið.
Nýjustu fréttir eru þær að
Cristopher Ozment hefur verið
valinn í stjörnulið sem leikur
um helgina og til að taka þátt í
troðslukeppni. - Gaui Þ.
Tvær messur
í Önundarfirði
á sunnudag
Séra Gunnar Björnsson í
Holti syngur tvær messur á
sunnudaginn: Barnaguðsþjón-
usta verður í Flateyrarkirkju kl.
11.15 og almenn guðsþjónusta
í Holtskirkju kl. 14.00.
SINIINN ER
5688888'
k
IfóÁuflmi'ói&AA'Sem'jbý' wuUáA'.
ACYCID Bflaldfla
V 91K Car rental
PÚ TEKUR VIC BlLNUM A FLUGVELLINUM PEGAR PÚ KEMUR OG
SKILUR HANN EFTIR A SAMA STAO PEGAR PÚ FERÐ
Borgarafundur
um fíkniefna-
mál í kvöld
ísafjörður.
Borgarafundur, í tengslum við vímu-
varnaátak BÍ á ísafirði verður haldinn í
Framhaldsskóla Vestfjarða í kvöld, mið-
vikudagskvöld, og hefst kl. hálfníu. Fram-
sögumenn verða Guðmundur og Björn úr
Mótorsmiðjunni í Reykjavík og Björn Haf-
berg skólastjóri á Flateyri en Jón Tynes
félagsmálastjóri stjórnar fundinum. Al-
menningur er hvattur til að sækja fund-
inn.
Tillacja að nafni
sveitarfélags
Samstarfsnefnd um sameiningu sveit-
arfélaga (Þingeyrar-, Mýra-, Mosvalla-,
Flateyrar- og Suðureyrarhrepps og
ísafjarðarkaupstaðar) auglýsir eftir til-
lögu að nafni hins nýja sameinaða
sveitarfélags.
Hugmyndum skal skilað á skrifstofur
ofangreindra sveitarfélaga fyrir kl.
12.00 þann 29. febrúar 1996 í lokuðu
umslagi merktu „Samstarfsnefnd -
NAFN“
F.h. samstarfsnefndar
Þorsteinn Jóhannesson, form.
Þríðji maðurínn og
^
BALDUR
s/<rif^r
Rás 2 Ríkisútvarpsins
býður ýmsa skemmtilega
ogfrœðandi þœtti og
suma heldur lakari. Einn
þeirra sem hefur heppn-
ast ágœtlega er Þriðji
maðurinn, sem þeir
Ingólfur Margeirsson og
Arni Þórarinsson sjá um
á sunnudögum. Þeir eru
tveir og eins og nafnið
gefur til kynna bjóða
þeir til sín þriðja mann-
inum og rœða við við-
komandi í klukkustund á-
samt því að leika tónlist
inn á milli. Viðmæland-
inn, þriðji maðurinn, vel-
ur eitt lag. Spinnst gjarn-
an nokkur umræða um
það hvers vegna valið er
sem raun ber vitni.
Hin þreytandi og ótrú-
lega leiðinlega umrœða
um forsetaframboð sem
gekk yfir þjóðina í gúrku-
tíðinni meðan alþingi átti
frí í janúar tók stakkaskipt-
um til hins betra með þriðja
manninum sunnudaginn 4.
febrúar síðast liðinn. Þá var
þriðji maðurinn Guðrún Pét-
ursdóttir forsetaframbjóð-
andi. I Ijós kom ákaflega hlý
og góð kona. Vingjarnleg, á-
kveðin og greind móðir og
sambýliskona varaþing-
manns okkar Vestfirðinga,
Olafs Hannibalssonar. Guð-
rún svaraði spurningum
skemmtilega og sagði velfrá
í stuttu máli, afa sínum Ólafi
Thors, föður Pétri Benedikts-
syni og föðurbróður Bjarna
Benediktssyni, tveimurfor-
sætisráðherrum og þing-
manninum og bankastjóran-
umföður sínum.
Einhvern tímann hefði
þótt fáránlegt að veitafor-
setaframbjóðanda svo góða
umfjöllun á góðum hlustun-
artíma. En það er til marks
um breytta og betri fjölmiðl-
un að engum þykir tiltöku-
mál að tala við þann sem
leitar eftir kjöri til æðsta
embættis þjóðarinnar í út-
varpi þjóðarinnar. Agœti
hlustunartímans rœðst af
því, að þeim Arna og Ingólfi
hefur tekist að ná prýðistök-
um á viðtalsformi sínu. Fyr-
ir það ber bœði þeim og rík-
isútvarpinu hrós.
GUÐJÓNS ÞÁTTUR
SKARPHÉÐINSSONAR!
Síðasta sunnudag, hinn
ll.febrúar, var viðmælandi
þeirra félaga Guðjón Skarp-
héðinsson, sem þá hafði
einmitt verið kjörinn sóknar-
prestur að Staðarstað á
Snæfellsnesi, ágœtri kosn-
ingu. Guðjón sem nú tekur
við sem sálnahirðir á Nesinu
er dœmdur maður fyrir þátt
sinn í meintu manndrápi.
Um er að ræða eitt umtalað-
asta dóms- og sakamál síð-
ari ára, svokallað Geirfmns-
og Guðmundarmál. Málið
varðar hvaiftveggja manna
á árinu 1974.
Guðjón hlaut 10 árafang-
elsisdómfyrir sinn þátt í
málinu. Allir aðrir sakborn-
ingar og dómþolar hafa tek-
íslenska réttarríkið
ið aftur játningar sínar
vegna síns þáttar í málunum.
Einn þeirra, Sævar Marinó
Ciesielski, hefur leitað réttar
síns og krafist endurupptöku
málanna. Ög einmitt ífyrra-
dag ákvað Hæstiréttur að
skipa honum málsvara til
þess að leggjafram lög-
frœðilega greinargerð fyrir
réttinn. En sérstaklega skip-
aður saksóknari hafði áður
komist að þeirri niðurstöðu
að ekki vœri ástœða til end-
urupptöku.
En aftur að þriðja mann-
inum Guðjóni Skarphéðins-
syni. Hann valdi sér lag með
þeirri þekktu hljómsveit
Rolling Stones, You can ’t
always get what you want.
Kannski hefur hann hneyksl-
að einhverja þegar liann líkti
þessu lagi einnar frægustu
rokksveitar heimsins við
sálma og kirkjutónlist. En
sem skýringu gafþriðji mað-
urinn, að menn fengju ekki
alltafþað sem þeir vildu, en
fengju hins vegar það sem
þeir þyrftu. En það mun vera
efni og inntak hins engilsax-
neska texta lagsins.
Guðjón gafágœt svör við
öllum spurningum og meðal
annarra var hann spurður
um þátt sinn í sakamálinu,
sem hann hlaut dómfyrir.
RANNSÓKNAR-
ÞÁTTURINN
Svarið við spurningunni
um sekt var einfalt. Þriðji
maðurinn lýsti opinberlega
yfir sakleysi sínu. Ekki nóg
með það, heldur var hann
mjög sannfærandi. Málið var
á sínum tíma pólitískt að
hans sögn og krafðist að-
gerða til að leysa þrýsting
fjölmiðla og stjórnmála-
manna. En eins og kunnugt
varfór málið oftar en einu
sinni inn í sali alþingis.
Fenginn var þýskur lög-
regluforingi, kaþólskur, fyrr-
um Gestapomaður er hafði
starfað á Italíu í annarri
heimsstyrjöldinni. Hans hlut-
verk var aðfáfram játningu,
ekkert annað. En þœr játn-
ingar, þótt jöfnuðust á við af-
lausn, voru ekki studdar
neinum gögnum. Þœr voru
hins vegar fengnar með lyfja-
gjöfog miklum þrýstingi. A
þessum tíma var ástand
þriðja mannsins bágborið.
Hann taldi gott að geta leyst
vandamálið og játað.
Engu skipti þótt hann
þekkti lítið til annarra sak-
borninga, hvorki að hans
mati eða annarra dómi.
Sakborningar voru dæmdir
þráttfyrir að þeir tœkju
játningar sínar aftur.
Guðjón sá ekki ástæðu til
þess að taka sína aftur.
Það skipti einfaldlega ekki
máli.
Eftirfimm ár á Kvía-
bryggjufór hann til Dan-
merkur og lœrði að ekki
fæst allt sem menn vilja,
heldur það sem menn
þutfa.
Én hannfagnaði niður-
stöðu prestskosninganna
og allir hljóta að fagna
með honum. Menn eiga
þrátt fyrir allt uppreisn œru
í augum hins almenna
borgara.
Meginniðurstaðan var
þó sú, að auðvitað ætti rétt-
urinn að taka málið upp.
Er til harðari dómur yfir
sakamálarannsókn? Er
nokkur annar kostur en að
rannsaka málið á ný?
Verða ekki Islendingar að
geta treyst réttarríkinu?
Þeir sem misstu afþœtt-
inum œttu að hlusta í kvöld
klukkan ellefu (23:00) á
Rás 2.