Vestfirska fréttablaðið - 14.02.1996, Síða 6
VESTFIRSKA
6
SMAauglýsingar
Kvennadeild
Slysavarnafélagsins
spyr: Er ekki einhver
sem vill losna við
handavinnu, t.d.
útsaumsgarn, einnig liti
til að mála tau? Ef svo
er, þá vinsamlegast
hafðu samband víð
Guðrúnu í síma 456 4390
eftir kl. 18 á kvöldin.
Þvottavél til sölu vegna
flutninga. Vélin er af
gerðinni Eumenia og
tekur 3 kg af þvotti. Sími
456 4252.
Til sölu SkiDoo Safari
377 vélsleði, árg. 1988.
Sími 456 1453 og 456
1166.
Skotfélagsmenn.
Æfingar eru hafnar í
Engidal, laugardaga frá
kl. 13.00 til 16.00.
Æfingar með
loftskammbyssur og
loftriffla í íþróttahúsinu
við Austurveg
sunnudaga frá kl. 13.40
til 16.00.
Til sölu Concord
trommusett og
Washburn bassagítar.
Skipti á PC eða
Macintosh tölvu
möguleg. Sími 456 7062.
Húsnæði óskast á leigu í
Bolungarvík eða á
ísafirði, helst einbýlishús
eða raðhús. Sími 456
5085 eða 566 7341.
Vantar litla íbúð á Eyrinni
á ísafirði. Sími 456 4050
eftir kl. 19.
Smyrna teppi til sölu,
ekta. Á sama stað til
sölu kjóll frá Kello, stórt
númer. Sími 456 7672.
Til sölu tvær nýjar
rúmdýnur, 75 x 170 cm,
á 5 þús. kr. stykkið.
Þorsteinn, sími 456
3102.
Til sölu Canon EOS 1000
Ijósmyndavél m. 35/80
og 75/300 linsum, stóru
flassi og tösku. Uppl. í
síma 456 7516 og vs.
456 7381 (Jóhann).
Athugið! Kvenfélagið
Von á Þingeyri hefur
loksins eignast stórt hús,
en ekkert inn í það. Vill
ekki einhver vera svo
góður að gefa okkur
eitthvað í búið? Þá má
hafa samband við Kötu í
síma 456 8117.
Til sölu er Lada 1500
station árg. 1988, ekin
63 þús. km, nýskoðuð,
verð 45 þúsund. Uppl. í
síma 456 3853 í
hádeginu og á kvöldin.
Til sölu vélsleði, Arctic
Cat Cougar árg. 1986.
Verð 160 þús. Sími 456
8198.
Til sölu Brno riffill, ca.
22, stillanlegur gikkur.
Sími 456 7383.
Einbýlishúsið að
Traðarlandi 6 í
Bolungarvík er til sölu.
Sími 456 7357.
Óska eftir Scháfer eða
Labrador tík gefins, helst
eldri en tveggja ára.
Reynir, sími 456 5088.
Til sölu 103 ferm. íbúð í
fjórbýli að Skólastíg 19 í
Bolungarvík. Skipti á
stærri íbúð eða húsi
koma vel til greina. Sími
456 7252.
Skíðabretti til sölu. Sími
456 7291 (Jóhannes).
Ikea-sófi, járngrind með
grænum pullum og
járnstóll með til sölu.
Ágætlega með farið.
Selst ódýrt. Sími 456
4351 eftir kl. 20.
Mercruiser bátavél, 145
ha diesel, til sölu í heilu
lagi eða pörtum. Sími 456
4186.
Til sölu 3ja herb. íbúð að
Stigahlíð 2, Bolungarvík,
mikið uppgerð. Sími 456
7190.
Til sölu harðfiskhjallur við
Hnífsdalsveg. Tilboð.
Kári Jó, hs. 456 3538, vs.
456 4019.
Hefur þú skoðað
heimasíðu bahá'ia á
Internetinu? Slóðin: http:/
/www.itn.is/bahai
Spámiðillinn Lára Halla
Snæfells verður á ísafirði
15.-17. febrúar.
Tímapantanir í síma 456
5142.
Tamningar. Get tekið að
mér hross í tamningu.
Uppl. í síma 456 4433.
Til sölu ýmsir varahlutir í
M. Benz árg. 1980-85.
Ásgeir, sími 456 3485.
Þorkell Sigurðsson
augnlæknir er með
móttöku á
Heilsugæslustöðinni á
ísafirði dagana 14.-16.
febrúar. Tímapantanir
alla virka daga hjá
móttökuritara HSÍ í síma
456 3811.
Til sölu efri hæð
húseignarinnar
Hlíðarvegur 27 á ísafirði.
Um er að ræða ca. 80
ferm. sérhæð ásamt ca.
35 ferm. bílskúr. Uppl. (
síma 456 4645 eftir kl. 16
á daginn.
Smáauglýsingarnar í
Vestfirska fréttablaðinu
eru ókeypis fyrir
einstaklinga og
félagasamtök. Sími 456
4011.
Tapað-fundið
Keðja úr gulli (armband)
tapaðist í eða við
ísafjarðarkirkju eða
Björnsbúð föstudaginn 9.
febrúar sl. Finnandi hafi
samband í síma 456 4299
eða vinnusíma456 3339
e.kl. 16
VESTFIRSKA
| FRÉTTABLAÐIB |
SIMI 456 4011
FAX 456 5225
Miðvikudagur. 14. febrúar 1996
-------------- ---------------------------- | fpfttabLAÐIÐ L
Fjárhags-
áættun ísa-
fjaröar-
kaupstaðar
samþykkt
Fjárhagsáætlun Isafjarðar-
kaupstaðar var samþykkt við
síðari umræðu á fundi bæjar-
stjórnar sl. fimmtudag. Óveru-
legar breytingar hafa orðið í
meðförunum á frumvarpi því til
fjárhagsáætlunar sem lagt var
fram 11. janúar og greint var frá
í megindráttum hér í blaðinu á
sínum tíma.
149
Nýjar vestfirskar þjóðsögur
Kaupstaðarferð
á Ströndum
Á Munaðarnesi í Ámeshreppi var karl í
vinnumennsku, Jóhannes að nafni. Gáf-
urnar íþyngdu honum ekki og voru far-
sælar í einfaldleika sínum. Jóhannes fór
iðulega gangandi í kaupfélagið á Norður-
firði, um fimm kílómetra leið, en stundum
flaut hann með þegar heimilisfólkið fór
akandi í kaupstað.
Einn góðan veðurdag ætlar bóndi í
kaupstað og Jóhannes líka. Bónda dvelst
inni í bæ við ýmsa hluti og brottförin dregst
alllengi. Þar kemur að Jóhannesi fer að
leiðast biðin og gengur af stað áleiðis yfir
í Norðurfjörð. Seint og um síðir er bóndi
ferðbúinn og leggur af stað og ekur fram
á húskarlinn þegar aðeins eru eftir nokkur
hundruð metrar í kaupfélagið. Bóndi tekur
hann upp í bílinn og segir að það hafi nú
verið óþarfi fyrir hann að vera að labba á
undan. Húskarl andmælir og segir: Ég var
þó alltaf kominn þetta.
Og það var nú einmitt mergurinn máls-
ins, eins og sumir segja.
Sveinbjörn sýkn-
aður í undirrétti
Sveinbjörn Jónsson, trillu-
karl á Suðureyri, hefur verið
sýknaður í Héraðsdómi Vest-
fjarða af ákæru um meint fisk-
veiðibrot, þegar hann reri til
fiskjar frá Suðureyri hinn 7.
apríl sl. vor, sem var banndagur
krókabáta, lagði línu og veiddi
131 kg af steinbít. Þann dag
reru um fimmtán trillur úr
nokkrum plássum á norðan-
verðum Vestfjörðum, en
Sveinbjörn einn var ákærður.
Dómurinn, sem var fjölskipað-
ur, komst að þeirri niðurstöðu
að veiðar á steinbít hafi verið
öllum frjálsar, þótt banndagur
hafi verið, þar sem ekki hafi
verið tiltekinn hámarksafli á
þeirri fisktegund.
Þess má geta, að frá því að
Sveinbjöm fór í umræddan
róður hefur lögum verið breytt
á þann veg, að nú er ótvírætt að
allar veiðar, steinbítsveiðar
sem aðrar, eru óheimilar á
banndögum krókabáta.
Vestfipskip
ppestap í kjöpi
Tveir sóknarprestar á Vest-
fjörðum voru í kjöri í almenn-
um prestskosningum um sfð-
ustu helgi og hlýtur annar
brauðið sem hann sótti um en
hinn ekki. Séra Kristinn Jens
Sigurþórsson á Þingeyri fékk
flest atkvæði í kosningum í
Saurbæjarprestakalli á Hval-
fjarðarströnd, en fimm voru í
kjöri. I kosningum til Staðar-
staðarprestakalls á Snæfells-
nesi tapaði séra Bragi Bene-
diktsson á Reykhólum fyrir
Guðjóni Skarphéðinssyni, en
þeir voru tveir í kjöri.
kl. 16-19 og 20-23.30
ALLAR NÝJU SPÓLURNAR
ÁAÐEINS KR. 350
Hafnarstræti
tyUWBHfVSÉ
Teflt á ísafipöi
ísfirskir skákmenn koma
saman kl. hálfátta á hverju
sunnudagskvöldi í Vallarhús-
inu (sem ekki má rugla saman
við íþróttahúsið) og taka
nokkrar léttar skákir. Undan-
farið hafa átta til tíu manns
mætt í skákina að jafnaði. Allir
em velkomnir að koma og vera
með, ungir sem gamlir.
771 sölu
Toyota Extra Cab diesel árgerð 1987,
ekin 107 þús. km. Klædd skúffa með
húsi, góð 31" snjódekk.
Nánari upplýsingar gefur Jón E. Guð-
finnsson í síma 456 7277.
Orkubú Vestfjarða
Fasteignaviðskipti
Skrifstofan verður lokuð
til 20. febrúar
Arnar G. Hinriksson hdl.
Silfurtorgi 1, ísafirði, sími 456 4144
Skattframtöl
Bókhaldsþjónusta
Tek að mér skattframtöl og bókhaldsþjónustu
fyrir einstaklinga og fyrirtæki, ársuppgjör.
Skattframtöl ásamt öllum fylgiskjölum
og útreikningi allra gjalda.
Aðstoð við stofnun og rekstur fyrirtækja.
Hafið samband í síma 456 3745.
Fylkir Agústsson, bókhaldsþjónusta
Fjarðarstræti 14, 400 ísafirði
sími 456 3745 fax 456 3795