Feykir - 11.11.1987, Síða 1
11. nóvember 1987, 37. tölublað, 7. árgangur
ÓHÁÐ FRÉTTABLAÐ FYRIR NORÐURLAND VESTRA
Byggingamefnd Sauðárkróks
gagnrýndi á fundi sínum
fyrir nokkru seinagang í
byggingarframkvæmdum á
verslunarlóð við Akurhlíð í
Hlíðahverfi og var byggingar-
fulltrúa falið að kanna gang
mála. Nýleg fundargerð
byggingarnefndar greinir frá
viðræðum byggingarfulltrúa
Jóns Arnar Berndsens við
Einar Sigtryggsson lóðar-
hafa.
Þar segir að stefnt sé að því
að húsið verði tilbúið til
notkunar sumarið 1988.
Verður þá sá hluti sem nú er
uppsteyptur frágenginn að
innan og húsið pússað og
málað að utan. íbúar í
Hlíðahverfi munu vera
orðnir nokkuð langeygðir
eftir að verslun verði opnuð á
einu verslunarlóðinni í hverf-
inu. Þess má geta að íbúar í
Hlíðahverfi eru um 1000.
Verslunarlóðinni var úthlutað
fyrir nokkrum árum. Hluti
verslunarhússins við Akur-
hlíð var steyptur upp á
síðasta ári og gerður fok-
heldur en bygginganefnd
finnst lítið hafa farið fyrir
framkvæmdum í ár.
Sauðárkrókur:
Starfskynning í grunnskólanum. Þessar ungu og hressu stúlkur úr 9. bekk Grunnskólans
á Sauðárkróki voru á rölti á milli fyrirtækja í bænum, og þótti tilvalið að smella af þeim
mynd er þær fóru fram hjá ritstjórnarskrifstofu Feykis.
Vaka segir starfsfólki upp
- Framkvæmdarstjórinn átelur umfjöllun íjölmiðla -
Erlendur Hansen fram-
kvæmdarstjóri og eigandi
Saumastofunar Vöku á Sauðár-
króki sagði öllu starfsfólki
sínu upp á dögunum. Er
blaðið hafði samband við
Erlend Hansen nú á dögunum
kom fram að hann ætli sér að
draga sig út úr rekstrinum en
ekki væri búið að ákveða
hvernig gengið yrði frá þeim
málum. Kom fram í máli
Erlendar að hann væri mjög
ósáttur við þá umfjöllun sem
málið hafi fengið í fjöl-
miðlum að undanförnu og
skaðað fyrirtækið, og allt
reynt til að gera reksturinn
tortryggilegann í augum
almennings. Hið sanna í
málinu væri það að fyrir-
tækið stæði á traustum
grunni en það væri eins með
Saumastofuna Vöku sem og
önnur fyrirtæki að endur-
skoða þyrfti reksturinn til að
ná betri hagkvæmni og auka
arðsemi. A næstu vikum mun
skýrast hvernig mál skipast
varðandi rekstur og starf-
semi saumastofunnar. Erlendur
sagði að lokum að starfsfólk
saumastofunar þyrfti ekki að
óttast um atvinnuöryggi sitt.
Sauðárkrókur:
Byggingamdhd
gagnrýnir
seinagang
Norðurland vestra:
■
Óðum styttist í frumsýningu á Kardimommubænum. Þessi
mynd er tekin á æfingu nú í vikunni.
Leikfélag Sauðárkróks:
Kardimommubærinn
frumsýndur um næstu helgi
Sunnudaginn 15. nóvember
.k. frumsýnir Leikfélag
auðárkróks barnaleikritið
ólk og ræningjar í Kardi-
íommubæ eftir norska höf-
ndinn Thorbjörn Egner.
Im mjög viðamikla sýningu
r að ræða og tekur fjöldi
íanns þátt í uppfærslunni,
upp undir 50 manns. Mikið
er sungið í leikritinu, þannig
að búast má við miklu lífi og
fjöri á sýningum. Frumsýn-
ingin hefst kl. 17.00 í Félags-
heimilinu Bifröst.
I Feyki í dag er viðtal við
leikstjórann Guðjón Inga
Sigurðsson á bls. 2.
Hvað heldurðu?
Upptaka vegna spuminga-
þáttarins Hvað heldurðu? fer
fram í Félagsheimilinu á
Blönduósi á morgun fimmtu-
dag kl. 21.00. Aætlað hafði
verið að hafa þáttinn í
Miðgarði í Skagafirði en það
breyttist á síðustu stundu,
þannig að hann verður í
Félagsheimilinu á Blönduósi.
Eins og fram hefur komið
keppa saman Austur- og
Vestur-Húnavatnssýslur. I
þeirra liði verða Sveinbjörn
Magnússon Blönduósi, Rúnar
Kristjánsson Skagaströnd og
Ólafur Óskarsson Víðidals-
tungu. Hagyrðingur Húnvem-
inga verður svo Óskar
Sigurfinnsson á Meðalheimi
A-Húnavatnssýslu. Haukur
Pálsson á Röðli mun sjá um
skemmtiatriði Húnvetninga
enda þrautþjálfaður í þeim
efnum.
í sveit Skagfirðinga eru
þeir Benedikt Sigurðsson
Siglufirði, Ólafur Pálsson
Sauðárkróki og Páll Dagbjarts-
son Varmahlíð. Séra Hjálmar
Jónsson verður fulltrúi Skag-
firðinga í vísnagerðinni og
þeir Jón Hallur Ingólfsson
og Júlíus H. Kristjánsson
munu skemmta. Eins og sjá
má af þessari upptalningu er
þetta einvala lið sem þarna
mætir og á það bæði við um
Húnvetninga og Skagfirð-
inga.
Rétt er að geta þess að það
fólk sem ætlar að vera við
upptöku á þættinum er beðið
um að mæta tímalega í húsið.
Mjög óheppilegt er að fólk
komi inn í húsið eftir að
upptaka er hafin, en hún
byrjar stundvíslega kl. 21.00.