Feykir - 11.11.1987, Síða 3
37/1987 FEYKIR 3
„Gefur hann enn
blessaður”
Ég heyrði það í fréttunum
útvarpsins nýlega, að Svæðis-
útvarp Akureyrar væri að
vinna að því að tækjavæða sitt
útvarp, þannig að það næði til
alls Norðurlands. Það er að
vísu góðra gjalda vert, að þeir
Akureyringar eru farnir að
hugsa vel til nágrannanna.
Mér datt nú í hug saga, sem
segjast átti við visst tækifæri,
„Gefur hann enn, blessaður”.
Er ekki ákvæði í nýju útvarps-
lögunum um að stefnt skuli
að uppsetningu svæðisút-
varps í kjördæmum landsins.
Væri því ekki eðlilegra, að við
ynnum að því, að sett verði
upp svæðisútvarp í okkar
kjördæmi?
Ég hefi áður skrifað um
málefni þessa kjördæmis,
fólksflótta héðan, og bent á
tækifæri, sem okkur ber að
nýta til atvinnuuppbyggingar,
til að efla byggð og búa
þannig í haginn, að unga
fólkið, sem sækir námið úr
byggðarlögunum, fái tækifæri
til að koma heim að námi
loknu og fást við verkefnin,
sem menntun þeirra og
hugðarmál hníga að.
Það halda kannske margir,
að mál þetta sé smátt í
sniðum, en í mínum huga er
hér um stórmál að ræða fyrir
byggðirnar hér. Við höfum
ekki leyfi til að afsala okkur
neinu, sem snýr að framtíðar-
verkefnum fyrir unga og
óborna þegna þessa svæðis til
annarra. Með því værum við
að hrekja þá af leið, sem vilja
takast á við hin ýmsu svið
þjóðlífsins. Við getum hýst
þetta fólk, ekki síður en aðrir
hlutar þessa lands.
Því vil ég skora á
sveitarstjórnarmenn í kjör-
dæminu að bregðast fljótt við
og taka þetta mál til
meðferðar og lausnar.
Það eru að sjálfsögðu mörg
önnur mál, sem snerta þetta
kjördæmi og veltur raunar á
því, hvort byggð þróast, vex
eðlilega og fólk flyst ekki í
burtu í stórum mæli. Það
gefst tækifæri til að rifja þau
málefni upp, þótt síðar verði
en þetta mál þolir enga bið.
Ég væri til með að segja við
þá, sem telja sig sjálfkjörna
til þess að vasast með okkar
málefni: Við höfum ekki efni
á að gefa, allra síst þeim, sem
eru betur settir en við. Við
þurfum að nýta okkar
möguleika sjálfir, auka fjöl-
breytni til athafna. Láta
arftaka okkar taka við eins
fjölbreyttu mannlífi oggerist
í öðrum kjördæmum þessa
lands.
Sæmundur Á. Hermannsson
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug
við andlát og útför
Bjargar Dagmar Báru Jónsdóttur
Hólmagrund 1, Sauöárkróki
F. 19. nóvember 1919
D. 16. ágúst 1987
Lára Angantýsdóttir
Sigurgeir Angantýsson
Anton Angantýsson
Sigrún Angantýsdóttir
Birkir Angantýsson
María Angantýsdóttir
Matthias Angantýsson
Sigurlaug Angantýsdóttir
Gunnar Haraldsson
Dóra Þorsteinsdóttir
Halla Jónasdóttir
Jón Dalmann Pétursson
Hafdís Guönadóttir
Benedikt Agnarsson
og ömmubörnin
Hjartans þakkir færi ég börnum mínum,
tengdabörnum, barnabörnum og fjölskyldum
þeirra, systkinum mínum og vinum sem
glöddu mig með heimsóknum, gjöfum,
blómum og skeytum á 80 ára afmæli mínu
þann 23. október sl.
Sá dagur verður mér ógleymanlegur
Guð blessi ykkur öll
Sigurbjörg ögmundsdóttir
Víðigrund 22
Sauðárkróki
Tíl grásleppuyeiðímanna
Eftir ábendingar Sölu-
stofnunar lagmetis og íslenskra
umboðsmanna, athugaði stjóm
L.S. stöðu markaðsmála
fyrir grásleppuhrogn. Niður-
staða var þessi:
Verksmiðjur innan S.L.
þurfa engin hrogn að kaupa á
vertíðinni ’88 og munu
íslenskar verksmiðjur eiga á
lagerum 8-10.000 tunnur í
byrjun vertíðar.
Kanadamenn eiga óseldar
800 tunnur í Danmörku og
bjóða þær til sölu á 925
mörk. Þá eiga þeirognokkur
þúsund tunnur í Kanada, en
ógjörningur er að fá það
staðfest. í Noregi eru einnig
einhverjar óseldar birgðir.
í framhaldi af framan-
greindu vill stjórn L.S. vara
grásleppuveiðimenn við þessari
alvarlegu stöðu sem upp er
komin og heQa alls ekki
veiðar á vertíð ’88 án þess að
eiga trygga sölu á þeim
hrognum er þeir munu afla.
Óvarlegt teljum við að veiða
meira en 8-10.000 tunnur á
næstu vertíð ef viðunandi
verð á að fást. Meiri veiði
býður heim hættu á verðfalli
og söluerfiðleikum. Stjórn
L.S. mun fylgjast með þróun
markaða og senda upplýs-
Skáksveit Siglufjarðar varð
í öðru sæti í Norðurlandsriðli
3. deildar í skák en keppnin
fór fram á Akureyri um
helgina. Siglfirðingar hlutu 9
og 1/2 vinning af 18
mögulegum og urðu tveimur
vinningum neðan við c-sveit
Akureyrar sem sigraði í
riðlinum.
ingar í fréttabréfi strax og
ástæða er til.
Góður sigur í síðustu
umferð 5 - 1 gegn USAH. B-
sveit fleytti Siglfirðingum upp
í annað sætið í riðlinum og
það hljóta þeir að geta verið
nokkuð ánægðir með því þrír
af fastamönnum sveitarinnar
komust ekki með til Akur-
eyrar af ýmsum ástæðum.
Félagsvist
Vegna mistaka var röng auglýsing í síðasta
„Sjónhorni” og biðjumst við afsökunar á því.
En við spilum á miðvikudagskvöldum í Bifröst
kl. 9.00. Allir velkomnir - Góð verðlaun.
Ágóði rennur til líknarmála
Ásaklúbburinn
Fréttatilkynning
Skáksveit Siglufjarðar
í öðru sæti
SAMVINNUBÓKIN
Ársávöxtun
Samvinnubókar
er nú 31,68%
Samvinnubókin
Hagstæð ávöxtun í heimabyggð
Innlánsdeild Kaupfélags Skagfirðinga