Feykir


Feykir - 11.11.1987, Qupperneq 8

Feykir - 11.11.1987, Qupperneq 8
JFEYKIW T AXI 11. nóvember 1987 Sauðarkroki 37. tölublað, 7. árgangur Feykir kemur út á miðvikudögum Sími FARSIMI Auglýsingar þurfa að berast eigi síðar en um hádegi á föstudögum 5821 985 20076 Sauðárkrókur: Bflar verða fyrir árásum Frekar annasamt var hjá lögreglunni á Sauðárkróki síðustu helgi. Þurfti hún að eltast við drukkinn ökumann en náðist hann þó fljótlega án þess að nokkur óhöpp hlytust af. Árekstur varð á Skag- firðingabraut er þar lentu saman fólksbifreið og bifhjól. Meiddist ökumaður bifhjóls- ins talsvert. Ekkert hefur enn verið upplýst varðandi innbrotið i Furukot, en lögreglan vinnur að málinu. Hún hefur ekkert ennþá til að byggja á, til að kæra þá, sem grunaðir eru. Nokkuð hefur það færst í aukana að ráðist sé á bifreiðar, sem standa auðar á stæðum sínum. Frétti blaðið af einu slíku atviki þar sem maður einn gerði sér lítið fyrir og labbaði yfír bifreið eina hér í bæ. Eigandinn brást skjótt við og gerði lögreglunni viðvart. Hafði hún upp á sökudólgnum og hefur hann nú verið látinn svara til saka. Lögreglan á Sauðárkróki biður bifreiða- eigendur að hafa augun opin og fylgjast vel með bílum sínum. Hólar: Námskeið fyrir minkabændur Siglufjörður: Fímm sækja þijár um stöður Aðeins fímm umsóknir bárust um þrjár stöður hjá Sigluíjarðarkaupstað, en um- sækjendur voru kunngerðir í síðustu viku. Um stöðu félagsmálafull- trúa sækir Hjörtur Hjartar- son úr Reykjavík. Tveir sækja um stöðu bókara þeir Þórólfur Tómasson og Hannes Baldvinsson og um stöðu skrifstofumanns sækja Hanna Stella Sigurðardóttir og Einar Oskarsson. Þau fjögur síðasttöldu eru öll búsett á Siglufirði. Bæjarstjóm Sigluíjarðar mun Oddvitínn: væntanlega ákveða hverjir hljóti umræddar stöður á fundi 12. þessa mánaðar. Um síðustu helgi var haldið námskeið á vegum bændaskólans á Hólum þar sem fjallað var um flokkun, feldgæði og lífdýraval á mink. Þarna komu saman 25 manns víðsvegar af Norður- landi sem allir eru byrjaðir eða að hefja minkabúskap. Auk þess voru á námskeið- inu nemendur bændaskólans ásamt fólki sem tengist kennslu og búskap á Hólum. Aðal leiðbeinendur voru frá Danmörku en einnig leiðbeindu ráðunautar og fleiri aðilar sem reynslu hafa af loðdýrabúskap hérlendis. Þátttakendum á námskeið- inu var einkum leiðbeint við að meta gæði minkafeldanna sem að sjálfsögðu eru mjög misjöfn en það er atriði sem mest veltur á fyrir minka- bóndann að kunna góð skil á. Að sögn Emu Bjamadóttur kennara á Hólum verður áframhald á námskeiðahaldi á vegum bændaskólans. I þessari viku hefst nám- skeið þar sem leiðbeint verður um slátmn og fláningu á mink og fljótlega á eftir hefst annað þar sem fjallað verður um skinnaverkun. Þar verður bæði leiðbeint um verkun á refa- og minnka- skinnum. Skagafjarðar- og Húnavatnssýsla: Riðuveiki útrýmt næsta haust Ég held minni Vöku Eins og frá hefur verið greint í blaðinu var vemlegur niðurskurður á sauðfé í Skagafjarðar- og Húnavatns- sýslum á þessu hausti vegna riðuveiki, en stjórnvöld hafa nú tekið þá ákvörðun að útrýma veikinni úr landinu á næstu árum. Feykir spjallaði á dög- unum við Sigurð Sigurðsson dýralækni hjá Sauðfjárveiki- vörnum. Sigurður sagði að nú hefði verið fargað fé á öllum þeim bæjum, í báðum þessum sýslum, þar sem veikin hefði verið virk (verið staðfest eftir 1980) að undanskildu svæðinu milli Blöndu og Miðfjarðar- girðingar þar hefði riða verið staðfest á tveimur bæjum í haust og þeim aðilum verið gefinn kostur á að fresta niðurskurði um eitt ár. Þá taldi Sigurður nokkrar líkur á að veikin væri á fleiri bæjum en þegar væri vitað um og því nauðsynlegt að fjáreigendur væru vel á verði og létu vita um allar gmnsamlegar skepnur, sauð- fjárveikivamir munu kosta athuganir dýralæknis á þeim. Aðspurður kvað Sigurður allgóða samstöðu hafa náðst meðal bænda á þessu svæði um þessar aðgerðir ekki síst miðað við hvað veikin hefur verið víða og lengi á þessu svæði. „Aldrei væri nógsamlega brýnt fyrir bændum að forðast allan fjárflutning milli bæja hvort sem um væri að ræða kaup, leigu eða gjafir á fé. Mörg dæmi væru fyrir að veikin hefði borist á milli bæja og byggðarlaga með slíkum flutningi og ekki þyrfti nema eina kind til, einnig bæri vissulega að varast heyflutninga. Eins og mörgum er kunnugt hefur undanfarin ár verið tekið heilasýni úr fullorðnu fé í sláturhúsum og sent tilraunastöðinni á Keldum. Nú undanfarið hefur verið staðfest riða á nokkrum bæjum þar sem við höfum fundið ákveðnar breytingar við rannsókn á þessum heilasýnum, svo fullyrða má að þau geta gefið okkur ákveðnar vísbendingar í baráttunni við þennan sjúk- dóm”, sagði Siguiður Sigurðs- son að lokum. Þú ferð varla annað Verslunin Tindastóll Feykir spyr á Sauðárkróki: Hvaða skoðun hefur þú á hraðahindrunum sem nýlega voru settar á götur á Sauðárkróki? Guðmundur Sveinsson bíl stjóri: „Þessar hraðahindranir eru of krappar og geta verið hættulegar”. Hjalti Guðmundsson smiður: „Hraðahindranir eru ágætar, en þessar nýju eru sennilega of háar”. Ólafur Antonsson bílstjóri: „Það er allt í lagi að hafa hindranir en þessar nýju hér í bæ eru of háar og geta verið hættulegar og hafa skemmt bíla”. Margrét Sigurðardóttir vershmar- maður: „Eg hef ekkert út á vegahindranir að setja, þær eru ágætar”.

x

Feykir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.