Feykir


Feykir - 30.03.1988, Blaðsíða 2

Feykir - 30.03.1988, Blaðsíða 2
2 FEYKIR 12/1088 ÆEYKIR^ Óháð fréttablað fyrir Norðurland vestra ■ RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR: Ari Jóhann Sigurðsson ■ ÚTGEFANDI: Feykir hf. ■ SKRIFSTOFA: Aðalgötu 2, Sauðárkróki ■ PÓSTFANG: Pósthólf 4, 550 Sauðárkrókur ■ SÍMI: 95-5757 95-6703 ■ STJÓRN FEYKIS HF.: Jón F. Hjartarson, Sr. Hjálmar Jónsson, Sæmundur Hermannsson, Sigurður Ágústsson, og Hilmir Jóhannesson ■ BLAÐAMENN: Björn Jóhann Björnsson sími 95-5253, Magnús Ólafsson sími 95-4495, Örn Þórarinsson sími 96-73254, Júlíus Guðni Antonsson sími 95-1433 og 985-25194 Auglýsingarstjóri: Haukur Hafstað sími 95-5959 ■ ÁSKRIFTARVERÐ: 55 krónur hvert tölublað; í lausasölu 60 ■ ÚTGÁFUDAGUR: Miðvikudagur ■ SETNING, UMBROT OG PRENTUN: SÁST sf., Sauðárkróki. — leiðarí Vormerki í okkar landi fara vormerkin að sjást um páskaleytið. Því er nærtækt að taka dæmi af gróanda vorsins, þegar páskaboðskapurinn er fluttur. Guðsríki kom og kemur yfir mannlegt samfélag eins og vorið yfir landið. Sólin hækkar á lofti og hlýir vindar vekja lífið af vetrardvalanum. Klakaböndin leysast og stirð og köld tilvera iðar aflífi. Meðlíkum hætti verðursumarí sálum þegar Drottinn er í nánd. Páskasólin minnir á hann sem er ljós heimsins og kom í þennan heim til þess að vekja eilíft líf og sumar. Þannig hefur ljós hans lýst kynslóðunum um allar aldir. Vetrarbyljir hafa aldrei verið svo svartir og næturmyrkrin aldrei svo dimm að geislar hans ljóss hafi ekki lýst þar í gegn. Kristin trú er trú á sigur lífsins á dauðanum. Hún er trú á sigur Krists yfir öllu því sem dauðinn og forgengileikinn setur mark sitt á. Hins vegar vantar mikið á að mennirnir taki eindregna afstöðu með lífinu að þeir leggist á sveif með gróðurmætti Guðs ríkis gegn því sem sundrar, eyðir og deyðir. Enn vantar mikið á að mennirnir lifi hamingjuna eina og sanna. Fyrirheit páskanna gengur út á það að sá tími komi að réttlæti Guðs og ríki hans fái öll ráð „svo á jörðu sem á himni”. Kristin kirkja boðar trú á sumar sem aldrei fer. Aftur greiðast auðnuvegir unað boða sólin fer, klakafjötra bræðir, beygir, blessar yfir landið hér. Vorið bjarta við það segir: Vakna þú og fylgdu mér. Kristur gjafir Guðs þér færir, gróður sálar dafna fer. Kærleikurinn brjóst hans bærir: Bróðir kom og fylgdu mér. Endurleysir, endurnærir, eilíft gefur lífið þér. Gleðilega páska. Hjálmar Jónsson Hólakirkja endurbyggð Nú standa yfir mjög gagngerar endurbætur á dómkirkjunni á Hólum í Hjaltadal. Vorið 1987 skipaði kirkjumálaráðherra nefnd til að hafa forgöngu um viðgerð á kirkjunni. I nefndinni eiga sæti Sigurður Guðmundsson vígslubiskup, Hjálmar Jónsson prófastur, Jón Bjarnason skólastjóri og Trausti Pálsson sóknamefndar- formaður sem tók sæti Jóns Friðbjörnssonar þegar hann flutti frá Hólum á liðnu hausti. Nefndin fékk þá Þorstein Gunnarsson arkitekt og Ríkharð Kristjánsson verkfræðing til að gera úttekt á ástandi kirkjunnar. í kjölfar hennar og þegar vilyrði hafði fengist fyrir fjármagni var ákveðið að ráðast í miklar lagfæringar á kirkjunnL Tíðindamaður Feykis hitti Sigurð Guðmundsson vígslubiskup og formann nefndarinnar að máli fyrir skömmu og spurði hann um ýmislegt er lítur að þessum framkvæmdum. „Viðgerðin hófst skömmu eftir áramótin” sagði Sigurður „byrjað var á að taka alla muni og innréttingar úr kirkjunni og koma þeim í geymslu á Sauðárkróki. Altarisbríkin sem er einn af dýrgripum kirkjunnar var send suður til þjóðminjavarðar, en hún þarfnast mikillar viðgerðar. Aður hafði þjóðminjavörður fengið vængina af bríkinni og er viðgerð á þeim langt komin. Eins og ég sagði er altaristaflan ákaflega merkileg- ur gripur, hún er frá sextándu öld en Jón Arason flutti hana hingað til Hóla einhverntíma á þeim árum sem hann var biskup hér. Svo við víkjum aftur að viðgerðinni þá var rifið upp allt gólfið í kirkjunni og þá kom í ljós að gólfið hefur verið hækkað upp um 20 cm, sennilega árið 1886 en þá var kirkjan tekið mikið í gegn. Einnig var öll múrhúðun innan í kirkjunni rifin burtu, en múr var víða farinn að flagna af veggjum og þeir orðnir skellóttir. Þá var einnig opnað uppá loftið og þar reyndist nauðsynlegt að skipta um nokkra gólfbita.” En nú er byrjað að byggja upp af fullum krafti. „Já hér hefur verið undan- farnar vikur danskur múrari Hans Danry að nafni, en hann hefur sérhæft sig í gömlu múrverki. Það má geta þess að hann vann einnig við Viðeyjarstofu og Viðeyjarkirkju og er tvímæla- laust mjög fær í sínu fagi. Múrverkið verður með sama sniði og upphaflega, það er að segja í múrinn er sett samskonar kalk og upphaf- lega var notað, en kalkið er fengið frá Danmörku. Munu íslenskir múrarar ekki hafa að vera messufær í haust. Næsta ár ersvo fyrirhugað að taka kirkjuna í gegn að utan, laga hleðslur setja drenlögn umhverfis kirkjuna, slétta kirkjugarð og laga á ýmsan hátt, auk þess langar mig ákaflega mikið til að sett verði flóðlýsing í kirkjuna.” Hvað um kostnað við þessa framkvæmd? „Áætlað er að öll þessi framkvæmd kosti 40-50 Danskur múrari við vinnu í Hóladómkirkju. notað það til þessa. Nú eins og ég sagði áður verðurgólfið lækkað, það var að hluta til steypt en timburgólf undir kirkjubekkjum. Nú hefur verið ákveðið að sá hluti af gólfinu sem verður steyptur verði lagður rauðum steinflisum sem verða úr sama efni og kirkjan er byggð úr, en hún eins og kannski margir vita er byggð úr rauðum steini sem sóttur var upp í fjallið hér fyrir ofan Hóla á sínum tíma. Þá verður forkirkjan löguð allmikið en tréverk þar var orðið nokkuð fúið. Þá verða kirkjubekkir lagaðir vemlega eða jafnvel smíðaðir nýjir, einnig verður endurnýjuð raflögn og sett upp loftræsting svo eitthvað sé nefnt.” Hvenær á þessum fram- kvæmdum að ljúka? „Þeim framkvæmdum sem ég hef talið upp hér að framan á að ljúka á þessu ári og ekkert sem bendir til að svo verði ekki, en kirkjan á milljónir króna. Þetta kann í fljótu bragði að þykja nokkuð há upphæð en Hólakirkja er líka merkilegt hús, vígð 1763 og því elsta steinkirkja hér á landi. Kirkjan á sér svo langa og merkilega sögu að hana er nauðsynlegt að varðveita sem allra best. Svo við víkjum aftur að fjármálunum þá hefur verið veitt á fjárlögum 1987 og 1988 samtals 14 milljónum króna. Við gerum ráð fyrir að fá eitthvert fjármagn úr Jöfnunarsjóði kirkna en sá sjóður varð til með samþykkt nýrra laga skömmu fyrir áramót. Það er rétt að fram komi að kirkjumálaráðherra Jón Sig- urðsson er mjög áhugasamur um að þetta verk verði drifið áfram. Þá má geta þess að Trésmiðjan Borg hefur tekið að sér vinnu við alla trésmíði sem fylgir þessum framkvæmd- um, en framkvæmdastjóri yfir öllu þessu verki er Guðmundur Guðmundsson á Sauðárkróki.”

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.