Feykir


Feykir - 30.03.1988, Qupperneq 4

Feykir - 30.03.1988, Qupperneq 4
4 FEYKIR 12/1988 Knattspyrnulið Ungmennafélagsins Tindastóls á Sauðár- króki náði að tryggja sér sæti í 2.deild íslandsmótsins í sumar, eftir að hafa unnið sinn riðil í 3.deildinni sl. sumar. Þetta ætti að vera flestum kunnugt og í tilefni þessa leit blaðamaður Feykis við í herbúðum Tindastóls á dögunum, ræddi við þjálfarann, Bjama Jóhannsson og fleiri. Undirbúningur fyrir keppnistímabilið í sumar stendur sem hæst hjá Tindastóli, sem og öðrum liðum, og þegar þessi grein birtist er 25 manna hópur frá Tindastóli staddur í æfingaferð í Belgíu fram á n.k. laugardag. Þar verður æft af kappi og leiknir tveir æfingaleikir á æfingasvæði Lokeren, liðinu sem Amór Guðjónsen lék eitt sinn með. Leikmenn Tindastóls hafa að undanförnu staðið í fjáröflun fyrir þessa ferð, m.a. með happdrætti, selt klemmur, þvottapoka og gólftuskur og sölu á pylsum í pylsuvagninum við Faxatorg. Með í ferðinni til Belgíu er undirritaður, þannig að henni lokinni munu lesendur Feykis fá greinargóða ferðasögu í máli og myndum. Tindastóll er að spila í annað skiptið í 2.deild. Árið 1984 lék liðið þar og varð dvölin ekki löng því fall í 3. deild varð strax að vemleika. Er því vonandi að liðinu takist að gera betur í þetta skiptið. Eitthvað er um tilfæringar á leikmönnum hjá Tindastóli íyrir sumarið. Gunnar Valdimarsson leikur ekki með, hann skipti yfir i sitt gamla félag ÍR. Síðan eru miklar líkur á að „gamla” kempan Birgir Rafnsson muni leggja skóna á hilluna, en allt getur gerst í heimi knattspyrn- unnar. Þá er einnig ljóst að Bjarni þjálfari leikur ekki með í sumar, fyrst og fremst vegna meiðsla sem hentu hann í vetur. Hópurinn mun hinsvegar styrkjast veru- lega með tilkomu fimm nýrra leikmanna. Fyrst skal telja tvo nýja „gamla” leik- menn, þá Bjöm Sverrisson og Sigurjón Magnússon. Björn hefur spilað með ÍR að undanförnu og Sigurjón (Siggi Böggu) lék síðast með og þjálfaði lið Stokkseyringa. Báðir eru þeir uppaldir Króksarar og Tindstælingar. Þá bætist Arni Olason í hópinn frá Emherja Vopna- Firði, en Arni lék með Tindastóli í 2.deild 1984. Þannig að eftir eru tveir glænýjir leikmenn, þeir Eysteinn Kristinsson og Ólafur Adolfs- son. Eysteinn kemur frá Þrótti Neskaupstað og Ólafur frá Víkingi Ölafsvík. Báðir eru þetta mjög sterkir leikmenn. Síðan má ekki gleyma, þegar verið er að tala um nýja leikmenn, ungu og efnilegu strákunum sem eru að koma upp úr yngri flokkum félagsins. Þeir styrkja liðið ekki síður en þeir sem eldri eru og reyndari. Tveir gamlir jaxlar Talandi um eldri og reyndari leikmenn þá hitti blaðamaður tvo slíka að máli, áður en hann náði tali á Bjarna þjálfara. Það voru þeir Þórhallur Ásmundsson og Rúnar Björnsson. Þeir hafa leikið vel og lengi með m.fl. Tindastóls, Þórhallur í 12 ár og Rúnar í 14 ár. Áður höfðu þeir spilað með liði UMSS í 3.deildinni þannig að hér eru á ferð tveir gamlir jaxlar. Ekki var hjá því komist að spyrja kappana nokkurra spurninga. Hvað eru þið gamlir strákar? Þ: „Við erum ungir.” Hvað eru þið ungir? R: „Ég er 32 ára.” Þ: „Samkvæmt almanakinu er ég nýorðinn 35 ára.” Ætlið þið ekkert að fara hætta þessu? R: „Jú, jú, það fer að koma að því.” Þ: „Ætli þetta verði ekki síðasta sumarið okkar. Annars er með þetta eins og kemur fram í laginu Popplag í G- dúr, það er engin leið að hætta, það er í rauninni engin einasta leið að hætta sko.” Eigið þið séns á að komast í 11 manna hópinn? R: „Við værum hérna ekki annars.” Þ: „Maður væri nú ekki að mæta hérna nema að komast í 11 manna hópinn. Maður myndi frekar vera heima að horfa á sjónvarpið á ensku knattspyrnuna, eða bara dunda sér í garðinum.” Þar með höfum við það, eldhressir „strákar” þarna á ferð og engan bilbug á þeim að finna. Þeir verða sterkir í sumar að vanda. Bjarni þjálfari Þá er kominn tími til að spjalla við Norðfirðinginn Bjarna Jóhannsson þjálfara Tindastóls. Bjami kom hingað sl. vor og tók við þjálfun liðsins og kom því upp í 2.deild. Bjarni er 30 ára, fæddur og uppalinn á Neskaupstað. Að lokinni skólagöngu á Neskaupstað fór hann í Menntaskólann í Hamrahlíð og útskrifaðist þaðan sem stúdent árið 1980. Þá lá leið Bjarna beint á Laugarvatn í íþróttakennara- Litíð við hjá knattspym „Takmarkið að halda Rætt við Bjama Jóhannss Bjarni Jóhannsson þjálfari Tindastóls. keppt í öllum flokkum frá 7.flokki upp í m.fl. og 3.fl. kvenna bætist við. Fólk verður að skilja það að aukið umfang krefst aukinnar aðstöðu og gífurlegrar vinnu.” Hvað finnst þér um hug bæjarbúa gagnvart knattspym- unni? Er nógu mikið líf í kringum hana? „Sko, ef að lið ætlar að ná langt í knattspyrnu þá er það þáttur svo margra. Þáttur Hluti af liði Tindastóls á æfingu í ga< skólann og ‘82 útskrifaðist hann sem íþróttakennari. Eftir það fór hann til Isafjarðar og kenndi þar sem íþróttakennari í þrjá vetur. Árið 1985 fékk Bjarni inngöngu i Norska Iþrótta- háskólann í Osló. Var hann þar þangað til hann kom í Skagafjörðinn og þá með gráðu í heilsu- og íþróttalíf- fræði upp á vasann. Bjarni, ef þú byrjaðir á að renna í gegnum knattspyrnu- ferilinn? „Já, ég spilaði í gegnum alla yngri flokkana hjá Þrótti Neskaupstað, síðan með m.fl. í 3. deild og 2.deild frá 1975-1981. Árið ‘82 og ‘83 lék ég með Isfirðingum í l.deildinni og ‘84 með KA, einnig í l.deild. Síðan þjálfaði ég og lék með Þrótti Nes. sumarið áður en ég fór til Noregs, semsagt ‘85. Sumarið eftir þjálfaði ég og lék með 4. deildarliðinu Askim í Noregi. Svo var það Tindastóll sl. sumar.” Hvernig var svo að koma á Sauðárkrók og taka við þjálfun Tindastóls? „Útlitið var nú ekki bjart, þegar ljóst var að margir leikmenn liðsins frá árinu áður höfðu horfið á braut, þannig að hópurinn var ekki stór. Það má segja að það hafi ríkt svartsýni yfir því að liðið gæti verið áfram í toppbaráttu 3. deildar. En annað átti eftir að koma i ljós og ég vil meina það að fyrsti leikurinn á Neskaupstað gegn Þrótti hafi þjappað mönnum okkar saman. (Leikur- inn vannst 1-0 innsk. blm.) Þetta var eini leikurinn sem ég sá ekki um, Palli Ragnars sá um hann. Þarna náðu menn neista sem þeir héldu allt sumarið, það var góður mórall og menn lögðu sig fram í leikjum og á æfingum.” Ef þú hugsar til baka Bjarni yfir síðasta sumar. Var eitt- hvað sem kom þér á óvart? „Ég verð að segja að það voru nokkrir leikmenn sem komu mér á óvart, leikmenn sem bjuggu yfir miklu meiri getu en ég hafði búist við. Sumarið byrjaði mjög vel, við unnum fimm leiki í röð í byrjun og síðan gerðum við jafntefli við Magna á útivelli. Það var mjög góður kafli. Síðan fórum við á Landsmótið og spiluðum ekki deildarleik frá 8. júlí til 26. júlí. Eftir það kom slæmur kafli fram í miðjan ágúst. Þá héldu margir að liðið væri búið að missa dampinn, eins og svo oft áður í lok tímabils. En síðan komu tveir dúndurleikir sem unnust með tveggja stafa tölu. Það hleypti nýju blóði í mannskapinn aftur. Ég vil meina það að við lukum þessu móti með sóma, þó mér hafi fundist það sárastaf öllu á þessu tímabili, úrslita- leikurinn í Reykjavík gegn Fylki, að tapa honum á vítaspyrnukeppni. ” Hvernig finnst þér staðið að knattspyrnumálum hjá Tinda- stóli? „Það er líf í kringum fótboltann hérna vil ég meina. En sá kraftur sem er á bakvið knattspyrnuna hérna, hann er allt of fámennur. Því sem ég hef kynnst þá hefur verið staðið ágætlega að málum hér. Við verðum að gera okkur grein fyrir einu að þegar betri árangur næst þá verður auðvitað allt að fylgja með. Betri árangur krefst betri aðstöðu. Þó svo þessi bær búi yfir góðum grasvelli sem er stolt knatt- spyrnunnar hér þá þurfum við að spyrja okkur að einu hvort við þurfum ekki æfingasvæði. Ég vil meina það að malarvöllurinn sé í mjög slæmu ástandi. Það liggur alveg ljóst fyrir að umfang knattspyrnunnar hér á Sauðárkróki fer sívaxandi. Sem dæmi um það þá verður í sumar, eins og síðasta sumar, hins almenna bæjarbúa skiptir miklu máli, sjáum t.d. á Ólafsfirði. Hér á Sauðárkróki eru alltof fáir á vellinum, það ættu að vera um 4-500 manns á hverjum heimaleik. Það er alveg staðreynd að á þeim stöðum úti á landi, af svipaðri stærð og hér, sem náð hafa langt í fótboltanum, að þar er allur bærinn í þessu af lífi og

x

Feykir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.