Feykir - 30.03.1988, Page 5
12/1988 FEYKIR 5
luliði Tindastóls
sætinu”,
;on þjálfara
Myndir og texti: Björn Jóhann Björnsson
sál. Ég hef enga ástæðu til
annars en að ætla að þetta
verði svona hér í sumar.
Maður sá það síðasta sumar
að á úrslitaleiknum komu
miklu fleiri á völlinn og ég
ætla svo sannarlega að vona
að fólk fjölmenni á völlinn í
sumar og styðji við bakið á 2.
deildarliði Tindastóls. Ekki
nóg með það, heldur hvet ég
alla foreldra sem eiga börn á
yngri árum í fótboltanum að
fylgjast nú vel meðsínu barni
í leik og starfi, þar sem boðið
verður uppá mjög fjölbreytta
starfsemi innan félagsins í
sumar. Það sást mjög vel á
pollamótinu sl. sumar í
tilefni 80 ára afmælisins að
þeir foreldrar sem störfuðu
og fylgdust með krökkunum
fannst það mjög ánægjulegt.
Það er akkúrat svona sem við
verðum að ná fólkinu, við
verðum að ná því í gegnum
börnin því allir vilja börn-
unum sínum vel.
Þáttur foreldra í starfi
yngri flokkanna verður að
margfaldast og ég segi fyrir
mig að ein af ástæðum fyrir
því að ég kom hingað á
Sauðárkrók var sú að ég
taldi þennan bæ einmitt búa
Hvemig hefur svo undirbúningi
verið háttað í vetur fyrir 2.
deildina?
„Keppnistímabilinu lauk í lok
september og óformlegar
æfingar hófust um miðjan
október. Þá setti ég upp æfinga-
áætlun sem mönnum var
frjálst að fara eftir, þar sem
var um að ræða hlaup og létta
styrktarþjálfun. þetta stóð yfir
fram í miðjan desember. Síðan
tókum við þátt í íslands-
mótinu í innanhússknatt-
spyrnu 20. janúar og komust
því miður ekki upp. Undir-
búningstímabilið hófst svo
fyrir alvöru 25. janúar og við
erum búnir að æfa grimmt
síðan, eða alls um 25 æfingar.
Spiluðum svo tvo æfingaleiki
á gervigrasvellinum í Reykjavík
við Leikni og KR. Unnum
Leikni 3-0 en töpuðu fyrir
KR 2-0. Síðan er það
Belgíuferðin, sem er náttúrulega
mikil lyftistöng fyrir okkur.
Ég lít á þessa ferð fyrst og
fremst til að þjappa hópnum
saman og sameina þessi brot
sem æfa víðs vegar um
landið. Nokkrir hafa æft í
Reykjavík i vetur, einn á
Laugarvatni og einn á
Neskaupstað. Þarna koma
Idinum
yfir þessum punktum. Hér
eru árgangar af mjög góðri
stærð. Ég verða að segja það
að þetta lítur ágætlega út fyrir
sumarið. T.d. er4.flokkur að
fara til Noregs, knattspymu-
deildin búin að stofna sér
unglingaráð og meiningin er
að í kringum hvem yngri
flokk veiði sérstakt foreldraráð.”
nýjir menn í hópinn og einnig
ungir strákar sem em að
koma upp úr yngri flokk-
unum, þeir fá þarna tækifæri
á að fara út í æfingabúðir. Að
lokinni Belgíuferðinni eftir
páska spilum við æfingaleiki
nánast um hveija helgi fram að
móti.”
Hverja telur þú möguleika
liðsins í sumar?
2. flokkur UIVIFT 1987.
,,Ég tel auðvitað möguleika
þessa liðs að halda sætinu í
2.deild mjög raunhæfa, og
raunsætt markmið er náttúm-
lega að halda því. Maður
væri ekki að standa í þessu ef
maður tryði því ekki og það
er einmitt þetta, menn verða
að hafa trú á því sem þeir eru
að gera og standa og falla
með þeim ákvörðunum sem
teknar eru. Ef að menn gera
það ekki og hafa ekki trú á
þessu, þá vantar mikið.”
Hvemig hefur þér svo líkað á
Króknum, á að vera áfram?
„Mér hefur líkað mjög vel
hérna og síðasta sumar var
náttúrulega ánægjulegt. Ég
hef verið að kenna í vetur
íþróttir og líkað það vel.
Samningurinn minn rennur
út næsta haust og ég hef
ekkert hugsað lengra. Það
verður bara að koma í ljós
hvað framtíðin ber í skauti
sér.”
Eitthvað að lokum Bjarni?
„Ég hvet alla bæjarbúa og
fyrirtæki til að styðja vel við
bakið á þessu liði vegna þess
að ég tel liðið hafa raunhæfa
möguleika á að halda sér í
deildinni. Ég tel það mikil-
vægt fyrir knattspyrnuna
hérna á Sauðárkróki að eiga
2. deildarlið til áframhaldandi
uppbyggingar. Ég vil minna
menn jafnframt á það að við
megum ekki gleyma okkur
bara í baráttunni í 2.deild,
við verðum að halda áfram
að byggja ötullega upp yngri
flokkana. Þar ætla ég að
vona að það starf sem er í
kringum knattspymuna verði
metið af fólkinu hér, verði
metið af bæjarfélaginu og
verði metið af fyrirtækjum.
Annars er þetta ekki hægt.
Síðast en ekki síst þá eru það
leikmenn sem verða aðleggja
sig fram. Æfingasókn, gleði
og ánægja verður svo að
fylgja þessu. Að lokum vil ég
síðan bara segja AFRAM
TINDASTÓLL.”
Þar með höfum við það og
þá er bara að vona að
Tindastóll nái settu marki,
að halda sér í 2. deild og ná þar
„standard”. Feykir þakkar
Bjama kærlega fyrir spjallið
og minnir um leið lesendur
sína á að eftir páska mun
birtast í blaðinu grein frá ferð
Tindastóls til Lokeren í Belgíu.
Þú færð páskamatinn
í Tindastóli
Svínahamborgarahryggur
Bayonaiseskinka
Úrbeinaður svínakambur
Ný og reykt svínalæri
Nýir svínahryggir og svínakótilettur
Rauðvínslæri - Jurtakrydduð læri
Hangikjöt - Kjúklingar
Graflax og reyktur lax
á frábæru verði
2 lítrar Pepsi
kr. 115.-
Páskaegg frá Nóa
á góðu verði
Nr. 3 kr. 382,- Nr. 5 kr. 935,-
Nr. 4 kr. 595,- Nr. 6 kr. 1495,-
Öl og gos
Pizzur á tilboðsverði
Vegna hagstæðra innkaupa getum við
boðið Adidas vörur á stórlækkuðu verði
Fótboltar frá kr. 690.-
Opið:
31. mars, skírdag kl. 10-22
2. apríl, laugardag kl. 9-22
4. apríl, annan páskadag 10-22
Flip barnaskór með frönskum lás
kr. 1490.-
Körfuboltar og iþróttatöskur á
stórlækkuðu verði
Verslunin TINDASTÓLL
Hólavegi 16 - Sími 5119