Feykir - 07.12.1988, Side 2
2 FEYKIR 44/1988
■ RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR:
Þórhallur Ásmundsson ■ ÚTGEFANDI:
Feykir hf. ■ SKRIFSTOFA: Aðalgötu 2,
Sauðárkróki ■ PÓSTFANG: Pósthólf 4,
550 Sauðárkrókur ■ SÍMI: 95-5757 95-
6703 ■ STJÓRN FEYKIS HF.: Jón F.
Hjartarson, Sr. Hjálmar Jónsson, Sæmundur
Hermannsson, Sigurður Ágústsson, og
Hilmir Jóhannesson ■ BLAÐAMAÐUR:
Magnús Ólafsson ■ AUGLÝSINGASTJÓRI:
HaukurHafstaðsími 95-5959 ■ ÁSKRIFTAR-
VERÐ:J0 krónur hvert tölublað; ílausasölu
70 ■ ÚTGÁFUDAGUR: Miðvikudagur
■ SETNING, UMBROT OG PRENTUN:
SÁST sf., Sauðárkróki.
Eitt símtal og
áskrift 5757
Að versla í Glasgow eða heima
„ísland er ekki lengur afskekkt eyja í
Atlantshafinu”, heyrir maður stundum sagt og
er þá átt við að samgöngur við landið séu orðnar
það góðar að við séum í raun komin inn í
hringiðu alheimsins. Gott dæmi um það hlýtur
að teljast að við hér á Norðurlandi þurfum ekki
lengur að fara til Reykjavíkur að versla, heldur
er hægurinn hjá að bregða sér í stuttar ferðir til
útlanda.s.s. dagsferðirtil Glasgow. Margirhafa
notfært sér þær ferðir enda kostar fargjaldið
sáralítið meira en með áætlunarfluginu til
Reykjavíkur, fram og til baka.
Mörgum finnst það jákvætt að fólk fari í
slíkar verslunarferðir til útlanda og auðvitað er
hægt að taka undir það, að ekkert sé
sjálfsagðara en fólk fái að kynnast betra
verðlagi og notfæra sér það og ráðstafa sínum
fjármunum að vild. Jú, auðvitað er fólk
sjálfrátt, en með fullri virðingu fyrir dómgreind
okkar íslendinga þá vill greinarhöfundur efast
um gróðann af þessum verslunarferðum,
sérstaklega ef innkaupin eru gerð á ekki lengri
tíma en dagsparti.
Ætli fólk fari í slíkar ferðir nema einu sinni?,
komist það að því þegar heim kemur; að
tíminn til að velja vöru varekki nægjanlegur, að
fatnaðurinn á aðra fjölskyldumeðlimi passaði
ekki er farið var að máta að í sumum
tilfellum reyndist varan ekki eins góð og
í fyrstu var ætlað og síðast en ekki síst, þá
freistaðist viðkomandi til að notagreiðslukortið
mun meira en hann í upphafi ætlaði sérog hafði
í raun ráð á. Því trúlega kaupir fólk varning í
þessum ferðum sem það annars hefði aldrei
keypt.
En flestir hljóta að sjá að mikil verslun flyst úr
landinu með þessum verslunarferðum og
vitanlega er þetta sama fólk, sem hvað
óánægðast hefur verið með verðlag heima fyrir,
að minnka möguleikana á því að verslanir á
heimaslóð geti boðið lægra verð. Það hlýtur að
liggja í augum uppi.
En einnig ber að líta á aðra hlið málsins. Hún
er sú hvort kaupmenn sjálfir geti ekki kennt sér
um þessa þróun. Vitað er að álagning á sérvöru,
s.s. fatnaði er mjög há hér á landi. Spurningin er
hvort þeir haFi ekki á umliðnum árum spennt
bogann of hátt í álagningunni og séu nú að
súpa seiðið af því. Víst er að kaupmenn eru mjög
uggandi yFir þessari þróun og eru hræddir við að
verslunarferðir til útlanda eigi eftir að færast
enn frekar í vöxt á allra næstu árum.
En að lokum er spurningin þessi. Eiga
stjórnvöld að beita sér gegn þessum
verslunarferðum til útlanda, t.d. með auknu
tollaeftirliti, eða er það á annaðborð
framkvæmanlegt? Það er augljóst að ríkissjóður
verður af miklum tekjum vegna þessa og má
hann við því?
Ættir og óðal
Frásagnir Jóns á Reynistað
Maraþonknattspyrna
hjá Kormák
Út er komin hjá Sögufélagi
Skagfirðinga bókin Ættir og
óðal eftir Jón Sigurðsson á
Reynistað.
Jón fæddist hinn 13. marz
1888 að Reynistað í Skaga-
Firði og átti þar heima til
dauðadags, 5. ágúst 1972.
Hann var alþingismaður
SkagFirðinga um áratuga-
skeið og gegndi auk þess
fjölmörgum trúnaðarstörf-
um fyrir hérað sitt.
Jón var einn af kunnustu
fræðimönnum sinnar sam-
tíðar, lengi máttarstólpi og
driffjöður Sögufélags Skag-
Firðinga, skipulagði útgáfur
þess og vann því ómælt starf.
Bók þessi er geFin út í 100
ára minningu Jóns. Hann
hóf ritun hennar á árunum
upp úr 1940 og hafði til ígripa
um langt skeið. Hún er eins
konar ættarsaga, fjallar um
forfeður Jóns, allt frá
Sveinbirni bónda í Stóru-
Gröf á fyrri hluta 18. aldar,
en ítarlegast er sagt frá séra
Jóni Hallssyni prófasti og
Sigurði bónda Jónssyni á
Reynistað. Fjölmargir fleiri
koma þó til sögu.
Séra Gunnar Gíslason frá
Glaumbæ ritar ítarlegan
inngang um þau Reynistaðar-
hjón, Jón og Sigrúnu, og
drepur á hin margvíslegu
störf Jóns í þágu samfélags-
ins.
Bókin geymir þjóðlegan
fróðleik og persónusögu af
þeirri gerð, sem Islendingar
hafa löngum í hávegum haft.
Hún er prýdd yfir 50
ljósmyndum og fylgir manna-
nafnaskrá.
JÓLATILBOD
NESCO OG RADÍÓLÍNUNNAR
ORION VMC 103 „video-movie” tökuvél ..
SCHNEIDER M-2100 hljómtækjasamstæða
XENON CDH 03 geislaspilari ................
CROWN ferðatæki með geislaspilara .........
FIDELITY CLASSIC skáktölva ................
FIDELITY ELEGANCE skáktölva ...............
GRUNDIG PRIMA-BOY ,,eldhúsútvarp” ..
stgr. 55.990.-
stgr. 15.990.-
stgr. 13.500.-
stgr. 19.900.-
, stgr. 5.990.-
stgr. 18.990.-
.. kr. 3.490.-
.. kr. 1.990.-
SÆMUNDARGÖTU 1
Sauöárkróki - simi 95-5051
Eins og flestum ersjálfsagt
í fersku minni, vann
knattspyrnulið Kormáks á
Hvammstanga sinn riðil í 4.
deildinni í sumar og komst
upp í 3. deild. Er stefnt að því
að halda því sæti.
En það er kunnara en frá
þurfi að segja að það kostar
mikla peninga að reka
knattspyrnulið með slík
áform. Klukkan 18:00 sl.
föstudagskvöld mættu átta
vaskir sveinar í íþróttasalinn
í Reykjaskóla og hófu að
leika maraþonknattspyrnu.
Léku þeir sleitulaust í heilan
sólarhring og skoruðu á
þessum tíma yfir 1500 mörk,
lagleg summa það!
Samkvæmt upplýsingum frá
Bjarka Haraldssyni, einum
keppenda, söfnuðust um
82000 krónur í sjóðinn. Svo
er bara að vona að þetta verði
þeim piltum hvatning til
mikilla afreka næsta sumar.
LRÁ.
Tap gegn ÍR
Tindastólsmenn töpuðu
68:82 fyrir ÍR í Seljaskóla sl.
þriðjudag. Var þetta síðasti
íeikur liðsins í Flugleiða-
deildinni á þessu ári og
verður hlé á keppni fram í
miðjan janúar.
Þrátt fyrir að einungis 3 af
13 leikjum haFi unnist erekki
hægt að segja annað en
Tindastólsliðið haFi staðiðsig
vel í vetur, og raunar mun
betur en flestir bjuggust við.
Þó liðið sé neðst í sínum riðli
er það í 8. sæti í deildinni,
fyrir ofan Þór og ÍS. Ef
Tindarnir halda halda sínu
striki og vinna þessi lið sem
standa í botnbaráttunni
koma þeir til með að halda
sætinu í deildinni, en það er
einmitt það takmark sem
liðið setti sér áður en keppni
hófst í haust.
Það var einkum slæm
byrjun Tindastóls í leiknum
gegn IR sem reyndist liðinu
afdrifarík og sunnan menn
leiddu með 10 stigum í
leikhléi. Stig Tindastóls í
leiknum gegn IR skoruðu:
Eyjólfur 27, Valur 22, Björn
14, Kári 3, Ágúst og Sverrir 1
hvor.