Feykir - 07.12.1988, Síða 5
44/1988 FEYKIR 5
„Það er algjört jafnrétti hjá okkui^
Litiö við í útibúi Netagerðar Vestíjarða á Hvammstanga
Það kom manni óneitanlega
spánskt fyrir sjónir að sjá við
Hvammstangabraut skilti á
húsi við götuna sem á stóð:
Netagerð Vestljarða. Því það
þykir nokkurn veginn kiárt
mál að Hvammstangi tilheyri
Norðurlandi vestra en ekki
Vestfjörðum.
Það var því forvitnilegt að
líta inn á þennan vinnustað
sem reyndist útibú frá
Netagerð Vestfjarða.
Strax og komið var inn úr
dyrunum blöstu við net og
aftur neti út um allt
verkstæðið og fremur lágt er
til lofts þarna inni. Þaðvakti
athygli að tvær stúlkur
hömuðust með netnálarnar
og virtust ekki gefa karlpen-
ingnum neitt eftir. Olgeir
Haraldsson heitir sá sem
veitir verkstæðinu forstöðu
nú, í stað Arna Skúlasonar
félaga síns sem stundar í
vetur tækninám syðra.
Olgeir sem er vestan frá
Isafirði sagði að tildrög þess
að Netagerð Vestfjarða kom
upp útibúi á Hvammstanga
fyrir 4 árum, hafi verið sú að
félagi sinn Arni Skúlason frá
Hvammstanga lærði fyrir
vestan. Árni hafisíðanfengið
sig í lið með sér og sé það
alveg greinilegt að menn séu
ekki eins bundnir niður
þegar tveir eru við stjórnvöl-
inn. Að staðaldri vinna sex
manns í netagerðinni, og þar
af er helmingurinn kvenfólk.
,,Já þetta er algjört jafnrétti
hjá okkur. Kvenfólkið hefur
reynst okkur mjög vel og við
borgum þeim alveg sama
kaup og karlmönnunum.
Það er ekki spurning að þær
eiga það fyllilega skilið”.
Hver er aðalmarkaður
ykkar?
„Viðskiptin eru aðallega
við innfjarðarrækjubátana,
en einnig við svolítinn hluta
af úthafsrækjubátunum. Við
fáumst sem sagt mestmegnis
við rækjutroll, en þó aðeins
átt við fiskitroll. Síðan
byrjuðum við í sumar á því að
gera við snurvoðina. Þá má
geta þess að við erum að gera
tilraun með að setja leggpoka
á rækjutrollið. Með því móti
eiga bátarnir að losna frekar
við smásíld, smærri rækju og
þorskseiði sem vilja koma í
trollið”, sagði Olgeir Haralds-
son.
Glaðbeitt netagerðarfólk á Hvammstanga. Olgeir er annar frá vinstri
Leiðréttingar á Undir Borginni
Ekki var laust við að
prentvillupúkinn illræmdi heíði
sig í frammi í pistli Rúnars
Kristjánssonar undir Borg-
inni í síðasta Feyki. Réðst
hann til atlögu svo um
munaði að ljóðinu um Borgina
og var villu að finna í öllum
þrem erindunum.
í fjórðu Ijóðlínu í fyrsta
erindi átti að standa þar í stað
það og ljóðlínan því að vera
svona; þar er tjáning í formi
og línum. í þriðju ljóðlínu
annars erindis stóð svívirða
en átti að standa svívirðu, og
ljólínan lítur því svona út: En
þar var þó markað það
svívirðu sár. Næstsíðasta lína
í þriðja erindi átti að vera
svona: Og bent á hin náttúru
biessandi rök. Þá var einnig
essi ofaukið í annarri ljóðlínu
stökunnar. Þar átti aðstanda
myrkur í stað myrkurs.
Rúnar og lesendur blaðsins
eru beðnir velvirðingar.
Meiríháttar úrval af konfekti
Verð frá kr. 195.- 400 gr.
Verð frá kr. 179.- 300 gr.
Fjöldi úrvalstegunda:
Síríus/Nói, Marabou, Nidar Bergene,
Panda, Baronie og fleira
Jólakerti í fjölbreyttu úrvali
FHPSflHÍnQ nn kprti á Ipifti Bæjarins mesta úrval af tertum,
rriUctnjUb uy ivuril d ItílUI botnum og allskonar kökum frá
Sauðárkróksbakaríi,
'^Kristjánsbakaríí!
auk erlendra framleiðenda
Herra skyrtur - Verð frá kr. 1274.- Munið eftir laufabrauðinu og hinum
Herra kakíbuxur 4 litir - Verð frá kr. 1758.- eftirsóttu ensku jóiakökum
Herra flauelsbuxur - Verð frá kr. 1527,-
fUSI Barnapeysur, Stærðir 116-176 Mikiðúrvalafjólaskrautiogleikfanga-
Verð frá kr. 1037.- úrvalið hefur náð hámarki
Barnaflauelsbuxur stærðir 6 - 16 á kr. 1465.-
Kaffihlaðborð í kaffiteríunni
laugardaginn 10. desember
Njótið góðra veitinga
í fallegu umhverfi
Sumar vörur hafa
lækkað í verði
ATHUGIÐ ÞAÐ
SkagMingabúb
Þú þarft ekki annað!