Feykir - 07.12.1988, Page 8
7. desember 1988 44. tölublað, 8. árgangur
Auglýsingar þurfa að berast eigi síðar
en um hádegi á föstudögum
TAXI Nýja bflasalan
Sauðárkróki Borgarflöt 5
Sími 5821 Þú færð bílinn hjá okkur
985-20076
985-21790 Símar 5821 og 6677
Ráðamenn Sjúkrahúss Skagfirðinga:
Berjast við fjárlögin
Allt ófaglært starfsfólk á
Sjúkrahúsi Skagfirðinga, rúm-
lega 50 manns, fékk upp-
sagnarbréf í síðustu viku.
Astæðan fyrir uppsögnunum
er athugun á breyttu vinnu-
fyrirkomulagi hjá stofnuninni.
Stefnt er að endurráðningu
alls starfsfólksins. Uppsagn-
imar vom nauðsynlegar sökum
þess að samkvæmt lögum er
ekki heimilt að breyta
vinnutilhögun fastráðins starfs-
fólks.
Eftir að horfið var frá
gamla daggjaldakefinu og
sjúkrahúsin sett á föst
fjárlög, hafa kröfur aukist
frá því opinbera á stjórnend-
ur sjúkrahúsanna að þeir
haldi rekstrinum innan þeirra
marka sem skammtað er í
fjárlögum. A mörgum sjúkra-
húsum hefur þetta reynst
erfitt þ.á.m. Sjúkrahúsi Skag-
firðinga. Síðasta ár kom
afleitlega út, en þá var farið
16 milljónir fram yfir
fjárlögin. Gripið var til
sparnaðar og aðhaldsaðgerða
fyrr á þessu ári, og við það
batnaði staðan, en ekki
nægjanlega og nú á að gera
tilraun sem á að koma
rekstrinum á næsta ári til
góða.
Það er nær eingöngu
launaliðurinn sem hefur
hleypt rekstrinum upp og við
10 mánaða uppgjör nú var
tapið orðið 11 milljónir. Þar
af voru 5 vegna fjármagns-
kostnaðar við skuld síðasta
árs.
A-Hún:
Samið um héraðsnefnd
Gengið var frá samningi um
stofnun héraðsnefndar í Austur
Húnavatnssýslu á fundi sýslu-
nefndar í síðustu viku. Var
ákveðið að fyrsti fundur
héraðsnefndar yrði haldinn
fyrir 10. desember. Héraðs-
nefndir skulu samkvæmt lögum
taka við hlutverki sýslunefnda
um næstu áramót.
Ákveðin var sú regla að í
þéttbýli yrði fulltrúi í
héraðsnefnd fyrir liverja 250
íbúa. Þetta þýðirað Blönduós
fær fimm fulltrúa og Skaga-
strönd þrjá. Fulltrúar sveita-
hreppanna, sem eru átta að
tölu, fá hver sinn fulltrúa
þannig að 16 munu sitja I
héraðsnefndinni.
Starfssvið héraðsnefndar
hefur verið ákveðið og mun
það aðallega ná til þriggja
mikilvægra málaflokka: Rekst-
ur Héraðshælisins og heilsu-
gæslu í sýslunni, málefnum
aldraðra s.s. íbúða fyrir
aldraðra og rekstur héraðs-
skjalasafns og bókasafns.
Þorbergur um Ruslakistuna:
„Þetta er hefndarráðstöfun”
„Þetta er eiginlega hefndar-
ráðstöfun hjá mér. Það var
hirt af mér handrit fyrir
nokkrum árum, ég veit
auðvitað alveg hver það gerði,
og sá reiknaði með að ég væri
orðinn svo gamall að ég mundi
ekki gera mikið fleiri vísur. En
þar skjátlaðisthonum og þetta
hefur verið að tínast til núna
síðustu misserin”.
Þetta sagði Þorbergur
Þorsteinsson frá Sauðá, en
þessa dagana er að koma út
ljóðabók eftir hann, er ber
nafnið Ruslakistan.
„Það er nú meira hvað þeir
eru búnir að tæta til þessir
bókaormar sem ég kalla
prófarkarlesarana. Þeir eru
einir 5 sem búnir eru að lesa
próförk, en mér finnst það
hinn mesti óþarfi. Eins og ég
hef sagt þá er þetta
ruslakista og það á ekkert
að vera að fægja það dót sem
þar er, birta þetta bara eins
og það kemur út úr
kjaftinum á mér”.
Þorbergur sagði að það
hafi staðið til í nokkurn tíma
að hann gæfi út bók.
Útgáfuna kostar hann sjálfur
og segir að ellilaunin dugi að
miklu leyti. Að þessu sinni
eru gefin út 150 eintök af
Ruslakistunni, sem prentuð
er hjá Sást á Sauðárkróki.
I inngangsorðum bókar-
innar segir Guðmundur
Sigurður Jóhannsson ætt-
fræðingur, en hann hefur
Hofsósingur með
réttu græjurnar
Hann Eiríkur Fjalar hallast alveg örugglega að því að
Sigurlaug Einarsdóttir 16 ára fjölhrautaskólanemi á
Hofsósi hafi verið með réttu græjurnar sl. föstudagskvöld
þegar hún skóf lukkutríómiða er færði henni glænýjan
Mitsuhishi Galant.
„Jú, sjálfsagt verða 2 næstu mánuðir lengi að líða hjá
mér og þetta þýðir að ég fer að læra á bíl strax efir
áramótin”, sagði Sigurlaug í samtali við Feyki. en hún
verður 17 ára 24. febrúar nk. Hún sagðist ekki oft kaupa
miða í lukkutríóinu en hafi fengið sér einn af rælni á
föstudagskvöldið. „Eg var reyndar í ágætu skapi. svo það
er ekki rétt sem þeirsögðu á Stöð 2 á laugardagskvöldið.
að ég hafi verið í leiðu skapi þegar ég fór að kaupa
miðann”.
Það er Landssamband björgunarsveita sem er með
lukkutríóið og faðir Sigurlaugar F.inar Jóhannsson er
einmitt varaformaður Björgunarsveitarinnar Grettis á
Hofsósi: „Þetta kom stelpunni ábyggilega mjög mikið á
óvart. Hún var einmitt að tala um það fyrir nokkrum
dögunum hvernig hún færi nú að því aðeignast bíl. því sig
langaði til að fara í bílprófið fljótlega. Hún hefur sjálfsagt
talið víst að ég yrði ekki gírugur að lána sér bílinn og ég
taldi líklegt að við hefðum einhver ráð með að kaupa
ódýran bíl, en síðan leystist málið á þennan hátt”, sagði
Einar.
reynst Þorbergi mikil hjálpar-
hella við útgáfuna: Þorbergur
hefur getið sér gott orð sem
hagyrðingur, þó fátt eitt af
kveðskap hans hafi birst á
prenti fyrr en nú, og mun
ekki ofmælt að að sumar
lausavísur hans séu land-
fleygar”.
Hér kemur ein vísan úr
Ruslakistunni: Að loknum
dansleik heitir hún.
Ó, mikill andskoti ballið er
búið
og bannsettar stelpurnar
farnar sinn veg,
og svo þegar gleðin og fólkið
er flúið,
fallítt á mölinni eftir stend
ég-
Sjóðandi, steikjandi helvíti
og hitt -
og heitbrenndur djöfull að
eig‘ ekki spritt.
En Þorbegur yrkir líka
angurblítt og í ljóðinu
Söknuði segir m.a.
Eg bind mína þrá í boðanna
föllum
er byltast að sandi við
harmþrungið lag,
þú hvíslar mér blær, sem
kemur af fjöllum,
að kysst hafi engil minn
síðast í dag.