Jökull - 01.12.1987, Qupperneq 105
an rafsoðin við. Að síðustu verður svo gengið frá verönd
í kringum skálann.
Bygging skála sem þessa er talsvert fyrirtæki, ekki síst
fjármögnun og hefur verið leitað, með góðum árangri,
til ýmissa aðila um framlög til verksins. Án þess að vilja
kasta rýrð á neinn þykir okkur sem erum í forsvari fyrir
þessari skálabyggingu þó vænst um hinn mikla áhuga
sem félagsmenn um land allt hafa sýnt þessari fram-
kvæmd með fjárstuðningi sínum, en eins og ykkur er
kunnugt, gafst öllum kostur á að bæta við félagsgjaldið
1986 framlagi til skálabyggingar. Um tveir þriðju hlutar
þeirra gíróseðla sem greiddir eru, hafa verið með fram-
lagi og viljum við þakka kærlega fyrir þessar góðu undir-
tektir. Skálabyggingunni miðar vel áfram. Unnið hefur
verið flesta laugardaga síðan smíðar hófust í október.
Búið er að gera skálann fokheldan og lokið er við að
einangra. Næsti áfangi er að setja krossvið innan á út-
veggi og loft áður en skilrúm og frekari innréttingar
koma.
FERÐIR
Vorleiðangur Jörfi 1986.
Haldið var frá Reykjavík að morgni 21. júní, komið í
Jökulheima kl. 16:30, lagt á jökulinn kl. 23:30 og komið
á Grímsfjall kl. 8:30 að morgni sunnudags. Unnið var í
Grímsvötnum fram á þriðjudagskvöld, haldið til Kverk-
fjalla kl. 01 aðfaranótt miðvikudags, gengið á hæsta tind
í austanverðum Kverkfjöllum (1933 my.s), komið í skál-
ann kl. 8:30 að morgni, farið í Hveradalinn og snúið til
Grímsvatna um kl. 23 að kvöldi og komið aftur á Gríms-
fjall snemmamorguns. Ofan af jökli var haldið að kvöldi
fimmtudags, dvalist í Jökulheimum föstudag og haldið
heim laugardag 27. júní. Einstök veðurblíða hélst alla
ferðina, hæg suðvestlæg átt, hlýtt og sólríkt, að undan-
tekinni þoku og rigningarúða á föstudag.
Unnið var að eftirtöldum verkefnum:
1. Hæð íshellunnar undir Vatnshamri mældist í 1426 m
y.s. Hvorki sást þar vatnsborð né við gosstöðvarnar
frá 1983. Vatnsborð er því að nálgast þá hæð, þegar
hlaupið getur úr Vötnunum.
2. Vetrarákoma á miðri íshellunni mældist 2140 mm
vatns (4.42 m af snjó). Er það nokkuð undir meðal-
tali áranna frá 1950, en það er 2450 mm.
3. íssjármælingar voru gerðar norðan og vestan
Grímsvatna, á leið frá Tungnárjökli til Grímsfjalls
og þaðan til Kverkfjalla, alls um 250 km. Hefur ekki
áður unnist eins mikið við íssjármælingar í vorleið-
angri JÖRFI.
4. Mæld var leysing á stikum á Tungnárjökli og þær
boraðar niður eftir þörfum.
5. Sýni voru tekin til samsætumælinga (súrefnis og
vetnis) með jöfnu millibili á leið frá Tungnárjökli til
Grímsfjalls og á leið til Kverkfjalla. Einnig voru
tekin sýni til geislamælinga á Grímsfjalli til að kanna
hvort þar hefði fallið geislavirk úrkoma eftir slysið í
Chernobyl.
6. Sett var upp nýtt loftnet í mastrið á Grímsfjalli og
beinir það sendingum niður að Vatnsfelli.
7. Gerðar voru tilraunir með endurbættan búnað til
upphitunar í skála á Grímsfjalli.
8. Settar voru upp stikur, nokkuð jafndreifðar, á ís-
helluna í Grímsvötnum og staða þeirra landmæld.
Stefnt er að því að landmæla þær aftur í haust svo að
upplýsingar fáist um skrið íshellunnar inn á jarðhita-
svæðið í Grímsvötnum.
9. Gerðar voru tilraunir með að finna segla, sem graf-
ist hafa snjó, með segulmæli og málmleitartæki.
Þessar tilraunir lofa góðu um að skilja megi segla
eftir á jöklinum að hausti og finna þá aftur að vori og
fylgjast þannig með hreyfingu jökuls og vetrar-
ákomu.
10. Hópur frá Orkustofnun vann að MT- mælingum
(jarðstraumsmælingum) vestan og norðan við
Grímsvötn og sunnan við Kverkfjöll.
11. Hæð Kverkfjallaskála mældist um 1720 m y.s. með
nákvæmum loftþyngdarmælingum, miðað við 1933
m hæð á hæsta tindi Kverkfjalla.
12. Skálinn á Grímsfjalli var tjargaður og Kverkfjalla-
skálinn málaður.
13. Síðast en ekki síst var valið stæði fyrir nýjan skála á
Grímsfjalli, grunnur tekinn, jafnaður og mældur.
Farartæki voru Jökull I, snjóbíll Landsvirkjunnar (X-
6306), Gosi Erlings Ólafssonar og sex vélsleðar. Þátttak-
endur voru 29.
Með í ferðinni var brautryðjandinn, Sigurjón Rist,
sem fyrir 35 árum vann að mælingum á þykkt Vatnajök-
uls í fransk-íslenska leiðangrinum. Einnig var með okk-
ur Gunnar Hjaltason, sem vann með Steinþóri Sigurðs-
syni að jöklarannsóknum á Mýrdalsjökli sumarið 1943.
Hann teiknaði margar myndir sem gaman verður að sjá
fullgerðar. Ennfremur voru með nýliðar sem mikils er af
vænst.
Með þessum leiðangri hefur JÖRFI enn einu sinni sann-
að gildi sitt, þar sem saman vann áhugasamt og félags-
lynt fólk úr ýmsum starfsstéttum að viðamiklum verk-
efnum, sem varla yrðu unnin án félagsins.
Langjökull 1986
Dagana 8.-9. júlí dvöldust 5 félagar í skála félagsins,
Kirkjubóli á Langjökli. Þeir báru fúavarnarefni á alla
lista á þaki og veggjum, einnig þéttu þeir glugga á suð-
urstafni. Seinni part dags þess 9. júlí var haldið til baka í
Þverbrekknamúla og um hina nýju göngubrú á Fúlukvísl
103