Feykir - 21.11.1990, Qupperneq 1
rafsjá
Sérverslun
með raftæki
Sæmundargötu 1
Sauðárkróki
Enn syrtir í álinn á Hofsósi:
Frystihúsið gjaldþrota
Sl jórn I Iraði'rystiluissins á
llof'sósi saniþvkkti á l'undi
sínum sl. mið\ikuda” að óska
cftir því við skiptaráðanda að
hann úrskurði f’élagið j»jald-
þrota. Akvörðun' st jórnarinnar
h\»”ist á því, að hún telur að
hagur skuldhcimtumanna muni
versna, el’ dráttur verður á
uppgjöri. Tekjur verði minni
en áfallandi krölur o» ekki
liægt að gera upp vanskil.
Svnt er að kröl'ur frá
el'tirlitsaðilum. svosem Hollustu-
vernd og Brunamálastol'nun.
þýða mjög kostnaðarsamar
endurbætur sem ekki er séð
hvernig luegt verður að
ma'ta. né hvernig hægt sé að
kaupa viðbótarkvóta til að
tryggja starl'semi allt árið.
Eíl'tir skuldbreytingu og hlnta-
fjárl'ramlög á síðasta ári
hefur stjórnin stöðugt unhið
að þ\í að stvrkja eiginfjár-
stöðu fvriruckisins. en ekki
hel'ur tekist að fá l'rekari
hlutaljárframlög.
..Atvinna og tekjuöflun
íbúa á Hofsósi byggist hér
eftir sem hingað til að
stícrstum hluta á að framhald
verði á fiskvinnslu á staðnum".
segir í fréttatilkynningu frá
stjórn frystihússins. Það er
von stjórnar að þessar
róttæku og sársaukafullu
aðgerðir \erði þáttur í þ\ í að
tryggja stöðuga atvinnu
verkafólks á staðnum í
framtíðinni. eftir þá endur-
skipulagningu sem endanlegt
uppgjör fyrirtækisins hefur i
för með sér.
Heildarskuldir frystihúss-
ins munu nema 170-180
milljónum. Stærstu lána-
drottnar eru Byggðasjóður.
Fiskveiðisjóður og Atvinnu-
tryggingasjóður.
Fiskiðja Sauðárkróks tók
rekstur frvstihússins á leigu í
haust. Sá samningur rennur
út um áramót. Það verður í
höndum bústjóra livort leitað
\erður eftir framlengingu á
þeim leigusamningi. Málið
hafði ekki verið tekið fvrir í
skiptarétti Skagaíjarðar á
inánudag.
Jón Guðmundsson sveitarstjóri:
„Gífurleg óvissa”
„Þetta er gífurleg óvissa, og
ekkert gefið hvernig þetta fer,
hvort það komi atvinna út úr
þessu. Bjartsýnin er nú það
eina sent menn liafa hér, og
agalegt að f'á þetta ol'an í það
sem á undan er gengið. En við
ntununi að sjálfsögðu leita
allra leiða", segir Jón
Guðmundsson sveitarstjóri
Hofshrepps, eftir að llrað-
frystihúsið á Hol'sósi aðal
atvinnutæki hreppsins var lýst
gjaldþrota í fyrradag.
„Jú. það verður rætt við
þingmenn kjördæmisins og
Byggðastofnun. Það er ekki
hægt að hugsa þá hugsun til
enda ef frystihúsið yrði ekki
rekið áfram. Þetta er lífs-
spursmál fyrir byggðina
hérna. Annars tel ég ekkert
fráleitt að einhverjir vilji
eignast húsið og reka það
áfram. Utkoman eftir fytstu
níu mánuði ársins sýnir að
það er liægt að reka
frystihúsið ef skuldastaðan
væri þokkaleg. En það er
Byggðastofnun stærsti lána-
drottinn frystihússins sem
hefur mest um þetta að
segja”, sagði Jón sveitarstjóri.
Sauðárkrókur:
Dýpkun
hafnarinnar
lokið
Dýpkunarframkvæmdum við
Sauðárkrókshöfn, sem staðið
hafa yfir í haust, lauk um
helgina. Verkið tók ntun lengri
tíma en gert var ráð fyrir,
seinkaði einkuni vegna bilana
í skipinu og einnig var tekið
meira efni upp úr höfninni en
til stóð í upphafi. hátt í
þriðjungi meira.
„Þetta var samt minna
viðbótarmagn, en yfirleitt
gerist þar sem dýpkað er.
Þeir vilja ólmir fá að grafa
sem mest á skipinu. Hóllinn
við innsiglinguna var orðinn
stærri en menn ætluðu og því
þurfti að taka meira úr
honum. Þá létum við líka
grafa frá Syðra-planinu að
norðanverðu, þar sem Þórir
liggur venjulega. Þar var það
þannig að báturinn tók niðri á
stórstraumsfjöru. Til dætnis
komst hann ekki út af þeim
sökum á síðasta vori, til að
aðstoða trillu sem hafði misst
vélarail skammt fyrir utan
hafnarmynnið”, sagði Snorri
Björn bæjarstjóri.
í sal lutns hátignar, sýning Leikfélags Sauðárkróks á hrotum úr
leikverkum Jónasar Árnasonar, var frumsýnd í Bifröst sl.
sunnudagskvöld við húsfyllir og góðar undirtektir áhorfenda.
Hér eru þau María Gréta Ólafsdóttir og Bragi Haraldsson í
hlutverkum sínum í sýningunni. Mvnd-PIB
Miklilax:
Boranir ekki
borið árangur
Ekkert nothæft vatn kom úr
þeim horunum sem Glaumur
bor Jarðborana ríkisins gerði
á vegum Miklalax í landi
Hrauna. Boraðar voru tvær
holur, en í hvorugri þeirra var
hitastig vökvans nægjanlega
hátt. Það situr því enn við
sama í varmabúskap þeirra
Miklalaxmanna.
I fyrradag var svo byrjað
að bora eftir viðbótarmagni
af jarðvarma á Lambanes-
Reykjum. Er vonast til að
liitta á góða og endingar-
drjúga æð, og þá verður
varminn leiddur í leiðslum út
í matfiskeldisstöðina við
Hraunkrók. Lágt hitastig
yfir meginhluta ársins hel'ur
hamlað vaxtarhraða fisksins
í stöðinni. Það er einungis
yftr sumartímann sem vaxtar-
hraðinn er góður. Því er
mikilvægt fyrir framleiðslugetu
Miklalaxstöðvarinnar, að bor-
anir þær sem nú standa yfir
beri árangur.
Bílaviðgerðir - Hjólbarðaverkstæði
Réttingar - Sprautun
JRKli«ÉWj«
SÆMUNDARGÖTU - SlMI 35141
Almenn rafverkatakaþjónusta
Frysti- og kæliþjónusta
Bíla- og skiparafmagn
—ICTch?íII —
Aðalgötu 26 Sauðárkróki
Sími: 95-35519
Bílasími: 985-31419
Fax: 95-36019