Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.2014, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.2014, Blaðsíða 6
Vikublað 11.–13. nóvember 20146 Fréttir Í síðasta helgarblaði DV var við- tal við rúmlega fertuga móður í Reykjavík sem býr við fátækt. Hún hefur ekki getað keypt mat og því fengið matargjafir frá hjálparstofnun- um. Hún veiktist alvarlega í haust og hefur kostnaður við læknisþjónustu aukið á erfiðleikana. Tugir lesenda DV hafa í kjölfarið haft samband og viljað leggja sitt að mörkum til að létta undir með fjölskyldunni sem sér nú fram á örlítið bjartari tíma, næstu vikurnar að minnsta kosti. Konan á ellefu ára son og tvö börn um tvítugt sem flutt eru að heiman. Hún er með meltingarsjúkdóm og hefur verið öryrki í 20 ár. Í viðtalinu kom fram að mun erfiðara sé fyrir hana að sjá fyrir heimilinu núna en áður þegar eldri börnin hennar voru ung. „Þá gat ég í það minnsta sett mat á borðið. Það fékkst meira fyrir tekjurnar,“ sagði hún. Eins og áður segir veiktist móðirin alvarlega í haust. Hún getur því ekki lengur, heilsu sinnar vegna, stað- ið í röð eftir mat. Ekki er leyfilegt að senda aðra fyrir sig til hjálparstofn- ana að sækja mat. Móðirin hefur því aflað matar til heimilisins á síðu á Facebook þar sem gefinn er matur. Fólk hefur þá komið með matinn heim til fjölskyldunnar. „Konurnar sem standa að síðunni hafa bjargað lífi mínu,“ sagði konan í viðtalinu við DV. n dagny@dv.is Margir vilja hjálpa Tugir lesenda höfðu samband við DV vegna greinar um fjölskyldu í neyð Árétting Vegna fréttar í síðasta helg- arblaði DV, um mistök sem urðu við útborgun launa hjá Strætó bs. um síðustu mánaða- mót, vill Guðrún Ágústa Guð- mundsdóttir, verkefnastjóri stefnumótunar hjá Strætó, koma því á framfæri að ekki hafi verið um víðtæk mistök að ræða. „Tölvupósturinn sem vísað er til í fréttinni er tölvu- póstur sem sendur var út á laugardegi vegna þess að sam- kvæmt upplýsingum sem þá bárust vísuðu til þess að um al- mennt vandamál væri að ræða hjá okkar 320 starfsmönnum. Þegar farið var að rýna í málið kom hins vegar í ljós að um af- mörkuð tilfelli var að ræða sem að sjálfsögu voru strax leið- rétt og fólk beðið velvirðingar á mistökunum. Alls voru það fimm starfsmenn sem höfðu samband vegna launa sinna og fjórir þeirra sem fengu leið- réttingu,“ segir Guðrún Ágústa. Vændiskaupa- málin þingfest Á föstudag stendur til að þing- festa í Héraðsdómi Reykjavík- ur öll vændiskaupamálin sem embætti ríkissaksóknara greindi frá í síðustu viku. Alls hafa fjörtíu karlar verið ákærðir fyrir vændiskaup en á vef rík- issaksóknara segir að þeir geti átt yfir höfði sér sekt eða fangelsi allt að einu ári. Í frétt RÚV um málið er haft eftir Guðmundi Baldurssyni, yfirmanni rann- sóknardeildar um skipulagða brotastarfsemi hjá lögreglunni á Suðurnesjum, að málið sé stórt í sniðum. Það snúist um eina konu sem talin er hafa stundað vændi og karlarnir fjörtíu hafi allir átt viðskipti við hana. Um tíma lék grunur um að um mansal væri að ræða og að kona frá Austur- Evrópu hefði komið með ungar stúlkur hingað til lands. Hún var í haldi lögreglu um tíma vegna rannsóknarhagsmuna en er nú farin úr landi. F jallað var um Hilmar Kol- beins, mann með fötlun, sem hefur átt erfitt með að láta enda ná saman, í DV fyr- ir viku. Hilmar er aðeins með eitt nýra og hefur undanfarið notið heimahjúkrunar á vegum Reykja- víkurborgar þrisvar sinnum á dag, meðal annars við að tæma þvag- poka sem tengdur er við þvagrás. Í lok síðasta mánaðar var Hilmari til- kynnt munnlega að vegna óviðun- andi aðstæðna á heimili hans myndi hann ekki njóta heimahjúkr- unarinnar frá Reykjavíkurborg áfram. Hann hafði ekki getað greitt rafmagnsreikning sinn og var íbúð hans því rafmagnslaus. Þá hafði hann ekki getað keypt þær hjúkr- unarvörur sem þarf til heimahjúkr- unar. Rafmagnsreikningurinn hefur nú verið greiddur, en þrátt fyrir það fær hann ekki heimahjúkrun. Tólf þúsund krónur á dag Fyrstu dagana fór hann á milli Læknavaktarinnar og Bráðamót- töku og lét tæma þvagpokann en hefur undanfarna daga notið heimahjúkrunar á vegum einka- fyrirtækis. Sú aðstoð kostar 12.000 krónur á dag, eða um 360.000 krón- ur á mánuði, komi ekkert óvænt upp á. Einu tekjur Hilmars eru ör- orkubætur. Þess má geta að notend- ur heimahjúkrunar á vegum Reykja- víkurborgar greiða ekki fyrir hana. Nú hefur Hilmari borist reiking- ur frá hjúkrunarfyrirtækinu upp á 160.000 krónur sem ljóst er að hann mun ekki geta greitt. Það fyrirtæki mun því ekki veita honum hjúkrun lengur en til hádegis næsta fimmtu- dag. „Ég veit ekkert hvað tekur við þá og ég kvíði helginni. Ætli ég fari ekki á Læknavaktina og Bráðamóttök- una þó að það séu ekki réttu stað- irnir til að sinna þessu. Ég veit bara ekki hvert annað ég á að fara,“ seg- ir hann. Einu sinni á dag kemur fé- lagsliði á vegum Reykjavíkurborgar heim til Hilmars og tæmir þvagpok- ann en eftir klukkan 16.00 og um helgar þarf hann að leita annað. Sefur í fötunum Hilmar hefur einnig notið aðstoð- ar frá Reykjavíkurborg við þrifnað, að klæða sig og við aðrar athafnir daglegs lífs. Núna síðustu daga hef- ur hann þó ekki fengið þá aðstoð. „Ég hef spurst fyrir um þetta hjá Fé- lagsþjónustunni sem hefur bent á Heimahjúkrun sem hefur svo bent aftur á Félagsþjónustuna. Ég verð að sofa í fötunum. Ég hef ekki efni á því að borga einkaaðila fyrir að hjálpa mér við að klæðast.“ Hilmar nýtur nú aðstoðar lög- manns við lausn málsins. „Ég vona að ég fái áfram heimahjúkrun frá Reykjavíkurborg eða þjónustu- samning þannig að ég geti keypt heimahjúkrun af einkafyrirtækinu. Fólkið þar vill sinna mér áfram ef það getur treyst því að fá greiðslu. Heimahjúkrunin er lífsnauðsynleg fyrir mig. Ég hef velt því fyrir mér að flytja burt frá Íslandi og koma ekki aftur til baka því mér finnst staðan vægast sagt óþægileg.“ n Rafmagnið er komið á – fær samt ekki þjónustu n Hilmar kvíðir helginni n Getur ekki greitt fyrir heimahjúkrun frá einkafyrirtæki Dagný Hulda Erlendsdóttir dagny@dv.is Greiddi rafmagns- reikninginn Eftir að hafa lesið umfjöllun DV ákvað Lena Huld Sigurðardóttir að greiða rafmagnsreikning Hilmars. Hún þekkir Hilmar ekki og segir betra að gefa en að gera það ekki. „Mér finnst ömurlegt hvernig komið er fyrir hópi fólks á Íslandi í dag. Það er mikið af fólki sem hefur það miklu verra en ég,“ segir Lena sem er án atvinnu. „Aldraðir og fólk með skerta starfsorku þyrfti að hafa miklu hærri tekjur. Ég get ekki bjargað heiminum en ég get byrjað einhvers staðar,“ segir hún. „Ég verð að sofa í fötunum. Ég hef ekki efni á því að borga einkaaðila fyrir að hjálpa mér við að klæðast. Ókunnug borgaði Lena Huld greiddi rafmagns- reikninginn fyrir Hilmar. Hugo Boss söluaðilar: Reykjavík: Gilbert úrsmiður Laugavegi 62 s: 551-4100 Gullúrið–úra og skartgripaverslunv Mjódd s: 587-4100 Úra- og skartgripaverslun Heide Glæsibæ s: 581-3665 Meba Kringlunni s: 553-1199 Meba - Rhodium Smáralind s: 555-7711 Hafnarfjörður Úr & Gull Firði-Miðbæ Hafnarfjarðar s: 565-4666 Keflavík: Georg V. Hannah, úrsmiður Hafnargötu 49 s: 421-5757 Selfoss: Karl R. Guðmundsson, úrsmiður Austurvegi 11 s: 482-1433 Akureyri: Halldór Ólafsson úrsmiður Glerártorgi s: 462-2509 Akranes: Guðmundur B. Hannah, úrsmiður Suðurgötu 65 s: 431-1458 Egilsstaðir: Klassík Selási 1 s:471-1886 Úra- o skartgripaversl n Heide Glæsibæ - s: 581 36 5

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.