Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.2014, Page 8

Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.2014, Page 8
Vikublað 11.–13. nóvember 20148 Fréttir O líuslys af sömu eða svipaðri stærðargráðu og Exxon Vald- ez hefði stórkostleg áhrif á íslenskt lífríki og þar af leið- andi efnahagslíf. Íslenskt efnahagslíf hefur allt frá landnámi verið afar háð lífríki landsins. Þetta er meðal þess sem segir í misserishóp- verkefni sex nemenda við Háskólann á Bifröst. Verkefnið, sem ber heitið Hver yrðu möguleg umhverfisáhrif við Ísland ef olíuslys, á borð við Exxon Valdez, yrði innan íslenskrar land- helgi?, dregur lærdóm af því sem nú er vitað um Exxon Valdez-slysið, yfir- færir á íslenskar aðstæður og leggur mat á áhrif slíks slyss. 41 milljón lítrar Exxon Valdez var olíuflutningaskip sem strandaði við strendur Alaska, nánar tiltekið á Prince William Sound í Alaskaflóa, í mars árið 1989. Það kann að koma spánskt fyrir sjónir að meta áhrif slyss af sömu stærðargráðu og Exxon Valdez, enda vart um dag- legan atburð að ræða. Þrátt fyrir frægð umhverfisslyssins af endemum er það langt frá því að vera stærsta olíu- slys sögunar. Þannig komst Valdez ekki einu sinni á lista breska blaðsins The Telegraph yfir verstu olíuslys sögunnar sem birtur var skömmu eftir Deepwater Horizon-olíuslysið. Exxon Valdez innihélt um 200 milljón lítra af hráolíu þegar það strandaði. Talið er að um 40 milljónir lítra hafi lekið í sjóninn. Nokkrum dögum eftir slys- ið brast á óveður sem dreifði olíunni víða og magnaði áhrif mengunarinn- ar. Þrátt fyrir gríðarlegt hreinsunar- starf og mikið fé til uppbyggingar sér enn ekki fyrir endann á efnahags- og umhverfisáhrifum slyssins nú 25 árum síðar. Fiskveiðar og ferðaþjónusta „Olían sem fór í hafið í Exxon Valdez- slysinu hafði gríðarleg umhverfisáhrif á svæðinu. Fyrstu dagana myndaði olían stóran flekk, en dreifðist svo víða í kjölfar óveðurs sem brast á þremur dögum eftir slysið,“ segir í skýrslu hópsins. „Alls urðu um 1.300 mílur af strandlengjunni fyrir beinum áhrifum olíunnar sem raskaði verulega lífríki svæðisins, en heildardreifing olíunnar var um 28.500 km2 að flatarmáli. Enn þann dag í dag gætir áhrifa á umhverfi og dýraríki og ekki er enn vitað hvort eða hvenær umhverfið nær fullum bata.“ Þá segir að fiskistofnar, fuglar og spendýr á svæðinu hafi orðið illa úti vegna slyssins. „Talsverð rýrnun varð í ýmsum dýrastofnum, til að mynda laxastofnum svæðisins, en laxaganga er töluvert minni nú en fyrir slysið. Hámarksganga á árunum 1984 til 1988 var 23.500.000 fiskar og lágmark- ið var 2.100.000, en hámarkið eftir olíuslysið var 17.000.000 árið 2005 og lágmarkið datt niður í 1.300.000 árið 2002. Talið er að um 250.000 langvíur hafi drepist vegna olíunnar, þó að að- eins 21.000 hræ hafi fundist, en um er að ræða u.þ.b. 40% stofnsins á svæð- inu. Af þeim 36 háhyrningum sem áttu heimkynni á svæðinu hurfu 14 á árunum 1989 og 1990, en aftur á móti fundust engin hræ í því tilfelli. Þess ber að geta að aðeins er um mat að ræða og erfitt er að segja nákvæmlega til um þann skaða sem varð, þar sem að litlar sem engar rannsóknir voru gerðar á svæðinu áður en slysið varð.“ Olían við Ísland Vert er að hafa í huga að enn er margt á huldu er varðar olíuvinnslu við Íslandsstrendur. Árið 2008 hafði Morgunblaðið eftir Terje Hagevang, sem þá var framkvæmdastjóri norska olíufyrirtækisins Sagez, að á Dreka- svæðinu væri væntanlega að finna ígildi tíu milljarða tunna af olíu. Terje er í dag leitarstjóri breska fyrirtækisins Valiant og starfar fyrir íslenska félagið Eykon Energy. Miðað við heimsmark- aðsverð upp á 78,9 Bandaríkjadali á tunnu jafngildir verðmæti olíunar því 98 þúsund milljörðum króna. Komi til vinnslu olíu er ljóst að umferð olíu- flutningaskipa mun aukast verulega innan íslenskrar landhelgi. Vert er að hafa í huga að olíu- vinnsla innan íslenskrar efnahags- lögsögu er ekki eina olíuvinnslan sem talist getur umhverfisógn fyrir íslenskt lífríki. Lífríki norðurslóða er afar við- kvæmt en auk íslenskra yfirvalda hafa Norðmenn, Rússar og Grænlendingar áhuga á olíuleit og vinnslu á svæðinu. Hér á landi eru engar viðbragðsáætl- anir til að takast á við strand stórs olíu- flutningaskips. „Til að mynda er ekkert íslenskt skip sem getur dregið 100.000 tonna olíuflutningaskip, strandi það eða bili. Sá búnaður sem Umhverfis- stofnun býr yfir er eingöngu nothæfur í að takast á við lítil og meðalstór olíu- slys sem verða nærri landi. Ísland er þannig ekki í stakk búið að takast á við stór slys á hafi úti og landið er þannig ekki í stakk búið að takast á við stór slys á hafi úti og þyrfti þess vegna að leita sér utanaðkomandi hjálpar, til að mynda frá Norðurlöndum og Evrópu- sambandinu. Þetta veldur því að við- bragðstími er langur og útbreiðsla og áhrif olíuleka gætu orðið mikil.“ Stórskaðar lífríkið Exxon Valdez-slysið stórskaðaði líf- ríki Alaskaflóa sem svo leiddi af sér atvinnumissi og efnahagslegan sam- drátt á ýmsum geirum svæðisins. Síldarstofn svæðisins hefur ekki náð sér á strik eftir slysið með tilheyr- andi tekjumissi. Þá misstu rúmlega tvö þúsund frumbyggjar aðgengi að mikil vægum fæðustofnum auk 13 þúsund annarra vegna ótta almenn- ings um að mengun væri að finna í fiski á svæðinu. Ótta sem minnkaði eftirspurn eftir fisk af svæðinu umtals- vert. Ferðaþjónusta varð fyrir veru- legum skaða enda dróst straumur ferðamanna verulega saman í kjölfar slyssins. „Veiðisvæðum var lokað eða að- gangur að þeim í það minnsta tak- markaður frá því sem verið hafði, sem gerði það að verkum að ferða- menn leituðu á önnur svæði. Ágang- ur á þeim svæðum sem opin voru, jókst talsvert eftir því sem þeim ferða- mönnum sem heimsóttu svæðið var beint frá olíumenguðum ströndum. Þó að ferðaþjónustan sýni batamerki, má telja að hún ekki hafa náð því stigi sem hún var í fyrir slysið og er ekki enn útséð með hvenær það verður.“ Þá benda skýrsluhöfundar á að gildi svæðisins, sem varð fyrir áhrifum sökum olíulekans, sem ósnortinnar náttúruperlu hafi minnkað í huga almennings. Gildi þetta er kallað „óvirk notkun“. „Eftir slysið var mikil breyting á skoðunum almennings á svæðinu, þar sem ímynd þess sem ósnortin náttúruperla beið verulega hnekki. Talið er að fjárhagslegt tap í þessu efni hafi verið um 2,8 milljarðar dala. Þessi þáttur er talinn sýna bata- merki en fullur bati næst ekki fyrr en áhrifa slyssins gætir ekki lengur og svæðið telst aftur ósnortið í huga al- mennings.“ Eyja hreinleikans Árið 2007 skipaði þáverandi forsætis- ráðherra Geir H. Haarde nefnd sem gera átti tillögu að því hvernig styrkja mætti ímynd Íslands. Skýrslan hefur alla jafna ekki fengið jákvæða um- fjöllun árin eftir hrun enda þykir hún meðal tryllingslegra dæma um upp- sprengda sjálfsmynd íslenska víkinga- hagkerfisins. Þá var nefndin skipuð í kjölfar minikrísunnar svokölluðu sem átti sér stað árið 2006. Krísa sem hefði mátt vara flesta við því sem í vænd- um var en stjórnmála- og bankamenn túlkuðu fyrst og fremst sem ímyndar- vanda íslenskra banka og efnahags- lífs. Ímyndahópurinn skilaði af sér í mars árið 2008; nokkrum mánuðum fyrir hrun íslenska efnahagslífsins. Meðal verkefna nefndarinnar var að kanna skipan ímyndamála á Íslandi og leggja fram tillögur að því hvernig styrkja mætti ímynd landsins. Í skýr- slunni segir meðal annars að neyt- endur séu reiðubúnir að greiða hærra verð fyrir vöru frá löndum sem þekkt eru fyrir hreinleika. „Í rannsókn, sem gerð var fyrir verkefnið Iceland Naturally, kom fram að 76% af frönsk- um og þýskum neytendum og 65% af breskum voru tilbúin til þess að borga meira fyrir vöru frá stað sem er þekkt- ur fyrir hreina náttúru.“ Þá kemur fram að þekking á Ís- landi sem lands hreinleika hafi auk- ist á undanförnum árum. „Í fyrstu rannsókninni sem gerð var árið 1999 kom í ljós að um 62% tengdu landið við ís og snjó, 10% við framandi nátt- úru, 6% langt í burtu og um 89% svarenda vissu ekki um neinar vör- ur frá Íslandi. Niðurstaða þessarar fyrstu rannsóknar byggði upp Iceland Naturally- slagorðið og markaðsverk- efnið en þar kom skýrt fram að skila- boðin til hugsanlegra neytenda ættu að innihalda eftirfarandi orð: Ísland, náttúrulegur, ókannaður og gæði (e. Iceland, Natural, Undiscovered, Qu- ality). Frá því að verkefnið fór af stað og samkvæmt síðustu könnunum hefur tengingin við Norður-Ame- ríkumarkaði þróast og tengingin við náttúru og menningu aukist. Landið er orðið þekktara fyrir hreinleika en í fyrstu könnuninni nefndu um 2% hreinleika þess en 17% árið 2006. Áhugi hefur aukist á Íslandi sem ferðamannastað og þekking á vörum frá landinu hefur aukist en hægt er að merkja sérstakan áhuga hjá ungu fólki og útivistarfólki.“ Í sömu skýrslu er rætt við við- skiptafulltrúa íslensku sendiráðanna og þeir fengnir til að leggja mat á styrk og veikleika ímyndar Íslands. „Sterk- lega kom fram að þekkingin á landinu í viðkomandi löndum á meðal neyt- enda byggist á náttúrunni en einnig var sköpunargáfan nefnd nokkrum sinnum, Björk og tónlist, orkan, bókmenntir og fjárfestingar. Fólk í löndunum er almennt mjög jákvætt gagnvart Íslandi sem ferðamanna- stað. Áberandi var þó hversu lítil þekking virðist vera á Íslandi í Kína, Indlandi og Rússlandi.“ Á þessu má vera ljóst að ímynd hreinleika er afar mikilvæg íslensku efnahagslífi. Þar af leiðir að alvarlegt umhverfisslys hefði víðtæk áhrif á ímynd landsins út á við. Fiskvinnsluþjóðin Ísland er fiskvinnsluhagkerfi. Það á við í dag eins og á níunda áratugn- um þótt hlutdeild sjávarútvegs í hag- kerfinu sé ekki sú sama. Raunar dróst mikilvægi iðnaðarins saman um nokkurra ára skeið sökum ofsafengins vaxtar íslensks fjármalageira á árun- um 2004 til 2008. Hlutdeild sjávarút- vegs hefur sömuleiðis vaxið í kjölfar efnahagshrunsins. „Efnahagur Íslands hefur síðan á landnámsöld verið mjög háður þessu lífríki og byggja grunnstoðir hagkerfis- ins á farsælum og nýtanlegum fiskmið- um við landið,“ segir í misserisverkefni nemendanna. „Efnahags lögsaga Ís- lands býr yfir einum auðugustu fiski- miðum Norður- Atlantshafsins. Þessi mið eru grunnstoðir í íslenskum efna- hag og hafa verið það í áratugi. Sjáv- arafurðir eru auk þess uppspretta að- alfæðu Íslendinga en meðalneysla fiskafurða er 88 kg á íbúa á ári sem er sú hæsta í heimi, eða rúmlega fimm- Atli Þór Fanndal atli@thorfanndal.com n Hreinleiki Íslands verðmæt ímynd n Skortir búnað til að takast á við stórt umhverfisslys n Yfirvöld andsnúin eftirlitsstofnunum Efnahagsáhrif olíuslyss yrðu gríðarlEg „Efnahagslögsaga Íslands býr yfir einum auðugustu fiski- miðum Norður-Atlants- hafsins. Þessi mið eru grunnstoðir í íslenskum efnahag og hafa verið það í áratugi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.