Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.2014, Síða 24
Vikublað 11.–13. nóvember 201424 Neytendur
H
já svínabúinu Korngrís í
Laxárdal, í nágrenni Sel-
foss, eru svínin alin á
byggi, hveiti og repju sem
bændurnir á bænum rækta sjálf-
ir. Á nokkurra mánaða tímabili var
kjöti frá Laxárdal haldið aðskildu
frá öðru kjöti í sláturhúsi SS á Sel-
fossi og sent sérmerkt í verslanir
Nóatúns. Því var svo hætt af hálfu
sláturhússins því salan var ekki
næg. Nú blandast allt kjöt frá Lax-
árdal kjöti svína frá öðrum búum
sem alin eru á hefðbundnu fóðri.
Hluta kjötsins taka bændurnir í
Laxárdal heim og selja í hálfum
skrokkum og hluti þess er seldur
sérmerktur úr kjötborði hjá Kjöt-
smiðjunni. „Við myndum vilja
sérmerkja allt okkar kjöt og ég tel
að slíkri markaðssetningu þurfi
að gefa meiri tíma. Mín tilfinning
er sú að neytendur almennt vilji
upprunamerkingar. Oft erum við
spurð hvar hægt sé að kaupa kjötið
okkar og af hverju því sé blandað
saman við annað kjöt. Nokkuð er
um að fólk sé með óþol fyrir ýmsu
kryddi og aukaefnum í mat og vilji
því kaupa ómeðhöndlað íslenskt
svínakjöt,“ segir Petrína Þórunn
Jónsdóttir, bóndi í Laxárdal.
Að sögn Steinþórs Skúlasonar,
forstjóra Sláturfélags Suðurlands,
var sérmerkta svínakjötið selt á
hærra verði en svínakjöt almennt.
Ekki hafi verið næg eftirspurn til
að halda því áfram aðskildu og í
sérmerktum pakkningum. „Það
kostar meira að halda kjötinu að-
skildu og því þarf augljóslega að
selja það á hærra verði. SS setti
peninga í þetta á sínum tíma en
það fjaraði út vegna ónógrar eft-
irspurnar,“ segir hann. Jóhannes
Gunnarsson, formaður Neytenda-
samtakanna, segir neytendur kalla
eftir sem nákvæmustum upplýs-
ingum um vörur. „Eitt af því sem
fólk vill gjarna vita er frá hvaða býli
kjöt kemur.“ n
dagny@dv.is
Kjöt af svínum á íslensku fóðri blandast öðru kjöti
Formaður Neytendasamtakanna segir neytendur vilja upprunamerkingar
Korngrís Svínin eru alin á
korni sem ræktað er á bæn-
um. Myndin er úr safni.
M
esti verðmunur á hinum
nýju iPhone 6- og iPhone
6 Plus-snjallsímum frá
Apple á Íslandi er 3,8 pró-
sent. Þetta leiðir verð-
könnun DV hjá átta vinsælum fyrir-
tækjum og söluaðilum í ljós. Mikil
eftirspurn og sala er á símunum þrátt
fyrir að ódýrasta og minnsta útgáfan
af þeim kosti rétt tæplega 119 þús-
und krónur. Viðskiptavinir bíða í
röðum eftir að komast yfir símana
og verslanir anna vart eftirspurn
og segja ljóst að þau gætu selt mun
meira ef afhending frá Apple léti ekki
á sér standa. Verslanir gefa ekki upp
sölutölur sínar en ætla má að þús-
undir iPhone 6-síma hafi selst síðan
þeir komu formlega í verslanir þann
31. október.
Sem dæmi um eftirspurn Ís-
lendinga eftir þessum dýru snjall-
símum þá greindi DV frá því þann
16. september að þá þegar hefðu
þúsund símar verið forpantaðir hjá
stóru símafyrirtækjunum Vodafone
og Símanum. Þegar símarnir komu
síðan í verslanir þann 31. október
mynduðust langar biðraðir við
fjölda verslana þar sem hundruð Ís-
lendinga voru ýmist að sækja pant-
anir eða tryggja sér eintak af símun-
um.
Verðkönnun hjá
átta fyrirtækjum
DV kannaði verðið á símunum
tveimur og þeim mismunandi út-
gáfum sem hann kemur í hjá átta
fyrir tækjum sem selja þá. Báðir sím-
arnir koma í þremur útgáfum, með
16 gígabæta (GB), 64 GB og 128 GB
minni. Ekki selja þó allar verslan-
ir stærstu og dýrustu 128 GB útgáf-
una. Í könnun DV er aðeins horft
í verðið en ekki þjónustu eða fríð-
indi sem fylgja kaupum. Neytendur
ættu að kynna sér vel hvað boðið er
upp á með símunum. Einhver síma-
fyrirtækjanna bjóða til dæmis inn-
eignir, gagnanotkun og þess háttar
með keyptum símum. Þegar verðið
á ódýrasta og dýrasta símanum af
hvorri tegund í sömu stærð er skoð-
að sést að sáralítill munur er á verði
milli verslana.
Nær enginn verðmunur á
stærstu týpunni
Þegar minni og ódýrari iPhone 6 er
skoðaður má sjá að aðeins er 0,83%
verðmunur á ódýrasta og dýrasta
iPhone 6 í 16 GB-útgáfunni. Er hann
ódýrastur hjá Elko á 118.995 krón-
ur en dýrastur hjá Vodafone, Nova,
Epli og Macland sem selja hann
öll á 119.990 krónur eins og sjá
má í meðfylgjandi töflu. Mestur er
verðmunurinn á 64 GB-útgáfunni
af iPhone 6, eða 3,8% milli versl-
ana. Þar er hann ódýrastur í Nova á
129.990 kr. en dýrastur hjá Voda fone,
Epli og Macland á 134.990. Munur
upp á fimm þúsund krónur. Nán-
ast enginn verðmunur er á dýrasta
og ódýrasta iPhone 6 í 128 GB-út-
gáfunni hjá þeim fyrirtækjum sem
bjóða upp á þá týpu. 0,06% þar sem
sumir selja hann á 149.900 krónur en
hinir 90 krónum betur.
Mesti munurinn á ódýrustu
tegund Plus
Þegar verðsamanburður er gerður á
þessum þremur útgáfum af iPhone
6 Plus, sem er stærri og þar af leið-
andi dýrari, munar mestu á 16 GB-
týpunni, eða 3,8 prósentum á þeim
ódýrasta og dýrasta í könnun DV.
Hann er ódýrastur í Nova á 129.990
krónur en dýrastur hjá Voda fone,
Epli og Macland sem verðleggja
hann á 134.990 krónur. 0,66% verð-
munur er á ódýrasta og dýrasta iPho-
ne 6 Plus í 64 GB og aðeins 0,05%
verðmunur á ódýrasta og dýrasta
iPhone 6 Plus í 128 GB, hjá þeim fyr-
irtækjum sem bjóða upp á þá týpu.
Lítil álagning
DV leitaði skýringa á þessu einsleita
verði hjá nokkrum þeirra fyrirtækja
sem könnunin náði til. Hjá Nova
fengust þau svör að skýringin fælist
líklega fyrst og fremst í því að þessi
tæki beri mjög litla álagningu. Hjá
Elko fengust aðeins þau svör að
kappkostað væri að bjóða gott verð
auk þess sem þar væri boðið upp á
30 daga verðvernd, sem þýðir að ef
þú finnur vöru ódýrari annars stað-
ar innan þess tíma færðu mismun-
inn endurgreiddan í peningum og
10% af mismuninum að auki. Hjá
Nova var bent á að Apple væri með
fast heildsöluverð á tækjunum og
því miðist söluverð eðlilega við það.
Hjá Símanum fengust þau svör
að afar lág álagning væri á símtækj-
um hjá fyrirtækinu auk þess sem
Einsleitt verð á iPhone 6 á Íslandi
n Ekki hægt að tala um verðstríð á snjallsímamarkaði n Verslanir segja álagningu lága
Sigurður Mikael Jónsson
mikael@dv.is