Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.2014, Síða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.2014, Síða 32
32 Menning Vikublað 11.–13. nóvember 2014 rannsóknarréttarins Ástin á tímum Arngrímur Vídalín rýnir í Don Carlo í Íslensku óperunni. D rungi ríkir yfir Spáni. Fil­ ippo II hefur tekið við völd­ um eftir föður sinn og tek­ ið sér til brúðar Elisabettu, dóttur Frakklandskon­ ungs, til að innsigla frið milli land­ anna tveggja eftir langan ófrið. Elisabetta hafði upphaflega verið heitmey sonar hans, Dons Carlos, og nú þegar hún er orðin stjúpmóð­ ir hans getur Carlo vart á heilum sér tekið fyrir sorg. Illu verra er þó það að konungurinn er valdalaus í raun. Skuggi rannsóknarréttarins fylgir konunginum hvert sem hann fer; táknmynd hans, ógnandi eins og Damóklesarsverð, hangir skökk yfir sviðinu: sjálfur krossinn, stærri en allt. Sviðið er baðað í rauðu. Átök eru yfirvofandi. Stórfengleg umgörð Öll umgjörð sýningarinnar er stór­ fengleg. Páll Ragnarsson beitir lýs­ ingu á hógværan hátt sem dregur ekki athygli að sjálfri sér, heldur að stemningu hverrar senu með heit­ um og köldum litum eftir því hvort átök eða ró ríkir á sviðinu, en undir­ strikar allan tímann þunga leik­ myndarinnar. Leikmyndin er raunar aðeins þung á yfirborðinu, því með lauflétt­ um handtökum er henni gjörbreytt á milli sena á fáeinum sekúndum. Ég ætla að ganga svo langt að segja að hún sé tilkomumikið meistara­ verk, og ég efa að margir verði til að þræta fyrir það. Hún fellur svo listavel inn í Eldborgarsal Hörpu að staður og stund gleymast þegar á upphafssekúndunum, og áhorf­ andinn er færður undir öruggri leið­ sögn Guðmundar Óla Gunnarsson­ ar inn í drungalegan heim verksins. Og þar heldur hann honum uns yfir lýkur. Í eigin heimi Ef ekki væru stundarbil milli þátta og hlé í miðri sýningu er því hætt við að áhorfandinn kæmi út teljandi sig búa í öðrum heimi. Spánn 16. aldar er formlegt sögusvið verksins en búningar, leikmynd og umgjörð önnur sem Þórunn Sigríður Þor­ grímsdóttir hefur vanda og vegsemd af er skemmtilega tímalaus, svo að kenndin verður öll annarsheimsleg jafnframt því að hver persóna hefur sinn eigin stíl. Þetta er með öðrum orðum engin nútímauppfærsla og ekkert gufupönk heldur; Don Carlo Þórhildar Þorleifsdóttur hefur ekki áhuga á „raunverulegum“ eða ytri hugmyndum um tímaskeið, heldur býr sér til stað í eigin heimi. Og þetta er stórfenglega vel heppnað, að því undanskildu að heimur verksins er rofinn með því að persónugerð Carlos er af ein­ hverjum sökum sótt í raunverulega fyrirmynd persónunnar, fremur en í þá persónugerð sem Schiller bjó til í leikriti sínu Don Carlos, Infant von Spanien sem Verdi sjálfur studdist við. Carlo óperunnar er nefnilega hetja, en sá Carlo sem birtist á sviði Eldborgar er óstabíll, eigingjarn og barnalega ósjálfbjarga, nánast á barmi geðrofs að rýni virtist. Svo sannfærandi var Jóhann Friðgeir í túlkun sinni að um stund hélt rýn­ ir að hann væri kannski eitthvað stressaður. Vandinn við þessa fram­ setningu á Carlo er að hún gerir alla framvindu óperunnar ótrúverð­ uga, eða hvernig gæti hinn klóki Posa lagt óbilandi traust sitt á svona taugahrúgu án þess að vera haldinn alvarlegum dómgreindarbresti, og hvers vegna í ósköpunum ætti Elisabetta að vera stolt af honum, þessum jólasveini? Mér þætti það ekki einu sinni fyndið sem meðvitað háð þar sem Carlo vissulega bregst eins og í öllum harmleikjum, bara af allt öðrum og göfugri hvötum en gefið er í skyn hér. Það er ekki af því Carlo er ekki traustsins verður eða hann sé einhver bjáni. Það hlýtur að teljast ansi róttæk framsetning á persónu Carlos að gera hann hálfvitfirrtan fyrir sak­ ir sagnfræðilegs áreiðanleika, sér í lagi þegar allt annað í uppfærslunni hafnar sögulegum veruleika. Ég læt þetta liggja á milli hluta. Sennilega finnst einhverjum þetta snjallt. Óþægilegur Carlo Sem fyrr segir leikur Jóhann Frið­ geir hlutverk sitt eins og því er lýst hér á undan listilega vel; hann er all­ ur iðandi og nevrótískur og óþægi­ legur. Rýni fannst því ekkert eðli­ legra en að hann væri forsmáður af föður sínum og hornreka og einfari í hirð hans. Hann grætur sáran sína Elisabettu, sem stöðugt er nefnd móðir hans við hann til að bæta gráu ofan á svart, og hans einasta huggun er fóstbróðir hans Posa sem leikinn er af ungum söngvara, Oddi Arnþóri Jónssyni, sem heillaði rýni alveg upp úr skónum með söng sín­ um, og þótt rödd hans liggi hátt fyrir baritón smellpassar hann í hlutverk hins sjarmerandi Posa. Þeir Jóhann Friðgeir eru góðir saman. Eins góð­ ur og Jóhann er á efra sviðinu og sér í lagi á toppnótum fannst rýni þó eitthvað standa í honum lægra raddsviðið, röddin missti form sitt og fókusinn minnkaði. Synd, því annars stóð hann sig afar vel. Helga Rós Indriðadóttir var flott sem Elisabetta drottning, einkum í viðureign sinni við Filippo konung og í kjölfarið hina fláráðu Eboli, sem rýnir þó hafði nokkra samúð með. Hanna Dóra Sturludóttir skaraði fram úr í hlutverki hennar, hún var allt sem hlutverkið krafðist og meira til: hún átti persónuna. Slæðu­ sönginn „Nel giardin del bello“, sem sennilega er mest krefjandi arían í öllu verkinu, flutti hún með leik­ andi kólóratúr af svo miklu öryggi að persóna Eboli laukst öll upp fyr­ ir áhorfendum þá þegar við fyrstu kynni. Framúrskarandi. Og ekki versnaði það eftir því sem á leið. Tvímælalaust átti hún jafnbesta performansinn af öllum söngvur­ unum. Kristinn Sigmundsson fer með hlutverk Filippo konungs og ger­ ir það eins og Kristinn Sigmunds myndi gera. Hann syngur ekkert fyrr en í öðru atriði fyrsta þáttar en hef­ ur þó komið heilmikið við á sviði, og það þarf ekki að spyrja að því hver er konungur: það skín af hon­ um valdið. Persóna konungs eykst og verður mikilvægari því meir sem líður á verkið. Þeir Oddur Arnþór spila vel hvor af öðrum í dúett Posa og Filippo en hátindur verksins að hógværu mati rýnis er „Ella giamai m'amo“, sem Filippo syngur þegar hann hefur komist að raun um að Elisabetta elskaði sig aldrei, heldur soninn Carlo. Þessa aríu söng Krist­ inn af óviðjafnanlegri tilfinningu jafnframt því að hann fór örmagna meðfram veggjum, hálfskríðandi af sálarangist upp stiga á meðan hann söng, nokkuð sem ég hef ekki áður séð á óperusviði og hélt hreint út sagt að væri ekki hægt, eða að minnsta kosti enginn hægur leikur. Hápunktur í íslenskri óperusögu Eins flott og persónusköpun Il Grande Inquisitore var í meðför­ um Guðjóns G. Óskarssonar, skakk­ lappandi upp sviðið með hálfgerða kryppu, verulega ógeðslegur og óhugnanlegur með hálfpervertísk gleraugu, þá fannst rýni Kristinn engu að síður yfirgnæfa hann í dúett þeirra þar sem í ljós kemur fyrir fullt og allt hver raunverulega hefur völdin í konungsríkinu. Inquisitor­ inn á að pakka konunginum saman, svo að segja, en þegar á hólminn var komið virtist hann heldur lítt sann­ færandi og presensinn meiri hinum megin sviðsins. Rýnir er ekki með þessu að snobba fyrir Kristni, held­ ur að benda á hitt að Guðjón virtist skorta rétta sannfæringu og radd­ vigt í hlutverkið. Ekki það heldur að Guðjón sé nokkur aukvisi í faginu; hann söng vel og resóneraði fal­ lega á djúpa á E­inu. En rýni fannst hann heldur sunginn út af sviðinu en hitt, og fannst það miður. Þvílík sena annars! Ég kann að meta þegar fólk er ófeimið við að ganga alla leið í dramatískri sviðsetningu eins og þarna var gert. Erla Björg Káradóttir og Örvar Már Kristinsson voru ágæt í annars litlum hlutverkum. Loks ber að nefna Viðar Gunnarsson sem var voldugur og flottur í hlutverki Carlo V, og Hallveigu Rúnarsdóttur sem söng rödd af himnum, en rýnir hef­ ur alltaf verið mjög svag fyrir fallega skærri sópranrödd hennar. Kór­ inn hélt uppi frábærri stemningu og rýnir fylgdist sérstaklega með munkastrollunni hvenær sem hún birtist í allri regalíunni. Í heild verð ég að segja að fyrsta uppfærsla á Don Carlo á Íslandi er viss hápunktur í íslenskri óperu­ sögu. Umfangsmesta verk Verdis hefur nú verið sett á svið hér og einskis annars að bíða en þess að fleiri stórvirki verði frumflutt hér á landi. Rýnir sat opinmynntur af ánægju allan tímann meðan á sýn­ ingu stóð og sæluhrollurinn hríslað­ ist um hann allan, og þrátt fyrir fá­ eina hnökra var sýningin sennilega eitt það allra áhrifaríkasta og besta sem rýnir hefur fengið að upplifa í íslenskum tónleikasal. Öll var óper­ an flutt af getu, metnaði og gleði. Það er ekki síst gleðin sem stendur upp úr að sýningu lokinni. Gleðin yfir því að þetta er hægt hér, í dverg­ ríkinu Íslandi. n Don Carlo Leikstjórn: Þórhildur Þorleifsdóttir. Hljómsveitarstjóri: Guðmundur Óli Gunnarsson Lýsing: Páll Ragnarsson Búningar og leikmynd: Þórunn Sigríður Þorgrímsdóttir Aðalhlutverk: Jóhann Friðgeir Valdimars- son, Helga Rós Indriðadóttir, Kristinn Sigmundsson, Hanna Dóra Sturludóttir, Oddur Arnþór Jónsson og fleiri Arngrímur Vídalín ritstjorn@dv.is Ópera „ Í heild verð ég að segja að fyrsta uppfærsla á Don Carlo á Íslandi er viss hápunktur í íslenskri óperusögu. „Þetta er með öðr- um orðum engin nútímauppfærsla og ekk- ert gufupönk heldur. Klassísk Jóhann Friðgeir Valdimarsson og Helga Rós Indriðadóttir í hlutverkum sínum Meistaraverk Táknmynd rannsókarréttarins hangir yfir sviðinu, ógnandi eins og Damóklesarsverð, í íeikmynd Þórunnar Sigríðar Þorgríms- dóttur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.