Feykir - 01.05.1991, Qupperneq 6
6 FEVKÍR 16/1991
Fótboltinn er hyrjaður að rúlla, en ekki gekk Tindastóli vel í
Tacticmótinu sem fram fór á Akureyri um helgina. I.iðið
tapaði fyrir Leiftri 1:0, Þór 2:0 og KA 3:0, en þar skoraði
Sverrir Sverrisson fyrrverandi Tindastólsmaður tvö rnörk. Á
myndinni eru Tindastólsstrákarnir að herjast við Þórsara í
æfingaleik um fyrri helgi, sem lauk með jafnatefli 2:2.
Körfuboltastúlkur Tindastóls:
Fimm í landslið
Fimm stúlkurfrá Sauðárkróki
léku i íslenska stúlknalands-
liðinu á Norðurlandamótinu
sem fram fór í Stykkishólmi
um síðustu helgi, þær nöfnur
Kristín Jónsdóttir og Magnús-
dóttir, Kristjana Jónasdóttir,
Inga Dóra Magnúsdóttir og
llirna Valgarðsdóttir. Þettaer
i l\rsta skipti sem stúlkur frá
I indastóli leika í landsliði i
körfubolta.
Liðinu gekk ekki sem
skyldi í mótinu. tapaði öllum
leikjunum. enda undirbún-
ingurinn ekki líkt því
nægjanlegur. Samæfingarnar
voru einungis sex að tölu og
enginn æfingarleikur spilaður.
Engu að síður var stígandi í
liðinu á mótinu. síðasti
leikurinn tapaðist einungis
með 11 stigum fvrir Norður-
landameisturum Svíum.
Endurbætur vegar yfir Lágheiöi:
Á dagskrá um aldamót
Fljótamenn skora á vegageröina aö
hefja snjómælingar strax næsta vetur
Hreppsnefnd Fljótahrepps hefur
óskað eftir því hréflega við
vegamálastjóra og umdæmis-
stjóra vegagerðarinnar á
Norðurlandi eystra og vestra,
að bráðlega verði ráðist í gerð
framtíðarvegar yfir Lágheiði
milli Fljóta og Ólafsfjarðar,
þar sem sýnt þyki að
samgöngur milli þessara
staða verði ekki um jarðgöng í
framtíðinni.
Samkvæmt nýrri 12 ára
áætlun um gerð þjóðvega.
eru endurbætur vegarins
milli Fljóta og Ólafsfjarðar
ekki á dagskrá fyrr en undir
lok tímabilsins. eða 1999.
Fljótamönnum og nágrönn-
um þeirra í austri finnst það
full löng bið. því nánast
ekkert hefur verið gert f'yrir
veginn vfir Lágheiði og í
gegnum sveitirnar beggja
vegna i áratugi. Finnst
mönnum tími til kominn að
vegirnir. sem á stórunr
köflum eru niðurgrafnir.
verði byggðir upp úr snjónum.
Hreppsnefndin skorar á
vegagerðina að hefja snjó-
mælingar á Lágheiði og í
grennd þegar næsta vetur.
Slíkar mælingar í nokkra
vetur ættu að auðvelda
mönnum val vegarstæðis.
sem líklega verði að færa að
talsverðum hluta. Bæjarstjóm
Ólafsfjarðar er sömu skoðunar
og Fljótamenn um bætt
vegarsamband yfir Lágheiði.
og telur að samgöngur
Ólafsfirðinga við Fljót og
Siglufjörð hafi lengi verið
algjörlega óviðunandi.
Atvinna
Vélsmiðja Sauðárkróks óskar
eftir að ráða vélvirkja eða
plötusmið. Upplýsingar hjá
Vélsmiðju Sauðárkróks
Borgartúni 1.
Góðir áskrifendur!
Munið að greiða
heimsenda gíróseðla
hið allra fyrsta
Feykir
L't í heim,
feróabteklingur
Flugleida, liggur
frammi á
söluskrifstofum
Flugleióa, hjá
umboósmönnum
um lattd allt og á
feróaskrifstofum.
t.ika er lia-gt aó fá
bteklinginn
sendan t pósti
meó þvi aó hringja
i91-690300.
FLUGLEIDIR
19 borgir. 15 þjóðlönd. Út íheim er ný-
útkominn ferðabæklingur Flugleiða sem
þú getur nálgast hjá umboðsmanni okkar
í þinni heimabyggð. Markverðir staðir,
leikhús, tónleikahallir, söfn, fornminjar,
skemmtigarðar, skemmtanalíf, veitinga-
hús, verslanir, hótel, náttúruperlur,
útivistarsvæði, ökuleiðir. tt íheim
greinir frá mörgu af því sem bíður
ferðamannsins á áfangastöðum
Flugleiða og á ferðalögum í eigin
bíl um heillandi lönd í Evrópu og
Bandaríkjunum.
ílt i heim er
grundvöllur aó
ógleymanlegri
upplifun í 19
borgum og 15
þjóólöndum
austan hafs og
vestan, veröld
innan seilingar
hrar sem þú ert.
Þú þarft ekki að fara langt
til að vera með út í heim!