Feykir - 26.06.1991, Side 1
raisjá hf
RAFVERKTAKAR
SÉRVERSLUN
MEÐ RAFTÆKI
SÆMUNDARGÖTU 1
SAUÐÁRKRÓKI
Sala á steinull aukist
frá því í fyrra
en samdráttar gætt á síðustu vikum
2370 tonna sölu fyrstu fimm
mánuði þessa árs.
Að sögn Einars Einarsson
framkvæmdastjóra vona menn
að minnkandi sala undanfarið
sé árstíðabundin, þó svo að
menn þykist merkja viss
teikn um samdrátt í sölu
einangrunar á næsta hausti.
Þá hefur gengisþróun verið
rekstri verksmiðjunnar óhag-
stæð á þessu ári, dollarinn
hækkað en pundið lækkað.
Fólk naut veðurblíðunnar í fallegu umhverfi dómkirkjunnar.
Talsvert meiri sala varð á
steinull fyrstu fimm mánuði
ársins, en á sama tíma í fyrra
og nánast jafnmikið og
söluáætlun gerði ráð fyrir.
Einangrunarsalan var mjög
góð fyrstu mánuðina, en upp á
síðkastið hefur salan dregist
saman og hefur það aðalega
gerst á Bretlandsmarkaðnum.
Sala fyrstu fimm mánuði
ársins var 2350 tonn. Sömu
mánuði í fyrra nam hún 2060
tonnum og gert var ráð fyrir
26. júní 1991, 24. tölublað 11. árgangur
w
Oháð fréttablað á Norðurlandi vestra
Biskupsvígsla á Hólum
Vilkó Blönduósi:
Útflutningi á fjalla-
grösum haldið áfram
Það var hátíðlegt um að litast
á Hólastað sl. sunnudag þegar
fram fór vígsla nýs vígslu-
biskups í Hólastifti, séra
Bolla Gústafssonar. I máli
hins nýja vígslubiskups kom
fram að hann hefur fullan hug
á að auka veg biskupsstóls á
Hólum ennfrekar og Hólar
verði nokkurs konar kirkjuleg
akademía fyrir norðurhluta
landsins. Reisn Hólastaðar
verði mikil eins oghún varallt
þar til biskupsstóll var lagður
niður fyrir 190 árum.
Þrátt fyrir blíðviðri á
sunnudag var athöfnin ekki
jafnfjölmenn og búist var
við. Öll sæti í kirkju voru þó
setin og nokkrir gesta nutu
athafnarinnar undir berum
himni í fallegu umhverfi
Hóladómkiikju Fjömtíu prestai'
tóku þátt í athöfninni, en í
gær hófst einmitt prestastefna
á Hólum.
Biskup Islands herra Ólafur
Skúlason vígði séra Bolla til
embættist vígslubiskups. Séra
Gísli Gunnarsson þjónaði
fyrir altari og séra Birgir
Snæbjörnsson lýsti vígslu.
Vígsluvottar voru séra Arni
Sigurðsson, séra Dalla Þórðar-
dóttir, séra Hjálmar Jónsson
og séra Ingimar Ingimarsson.
Kirkjukór Hóla- og Viðvíkur-
sókna söng undir sjtórn og
undirleik Pálínu Skúladóttur.
Gerður Bolladóttir söng
einsöng.
Meðal gesta var forseti
íslands frú Vigdís Finnboga-
dóttir, ráðherrarnir Halldór
Blöndal og Þorsteinn Páls-
son, helstu framámenn kirkju-
mála í landinu og tveir
sjðustu biskupar á undan
Ólafi, Pétur Sigurgeirsson og
Sigurbjörn Einarsson.
Ný lög sem samþykkt voru
á síðasta ái i gera vígslubiskupi
skylt að hafa aðsetur á
Hólum. Margir túlka lögin á
þann hátt að vald og starf
vígslubiskups komi til með
að aukast á næstu árum.
Vígslubiskupar komi til með
að létta undir hinu yfirgrips-
mikla starfi biskups, en
skerða þó í engu hans
starfsvettvang og kirkjulega
vald.
Útflutningi á fjallagrösum,
sem súpugerðin Vilkó á
Blönduósi stóð fyrir á síðasta
ári í fyrsta sinn, verður haidið
áfram í ár. I fyrra voru send út
300 kíló af fjallagrösum og í
ár er stefnt á tínslu 500 kílóa.
Það er þýskt lyfjafyrirtæki
sem kaupir grösin, en ástæðan
fyrir því að fyrirtækið sækist
eftir jurtinni héðan er að
hagar víða í Evrópu spilltust
við Chernobilslysið.
Þrjár húsfreyjur í Sveins-
staðahreppi hafa tekið að sér
tínslu grasanna: Vigdísamar
á Hofi og Bjarnarstöðum og
Kristín á Giljá. Að sögn
Vigdísar á Hofi hafa þær
stöllur aðeins farið í eina
vettvangskönnun og þá kom
í ljós að ekkert þýðir að heíja
tínslu fyrr en eitthvað
blotnar um. Þurrkarnir í vor
hafa gert grösin hörð og
stökk og að auki fylgir þeim
mikið rusl þegar þau eru tínd
í þannig ástandi. Ætlunin er
að tínslan fari fram á
heiðunum húnvetnsku og
einnig hafa konurnar fengið
vilyrði fyrir grasalendum
vestur á Ströndum.
„Við vitum ósköp lítið
hvað við erum að fara út í, og
búumst nú ekki við að tína
sjálfar nema svona 200-250.
Ætli við verðum ekki að fá
fleiri til liðs við okkur til að
ná 500 kílóunum”, sagði
Vigdís á Hofi.
Hörður Kristinsson á
Náttúrufræðistofnun Norður-
lands er fléttufræðingur og
veit manna best um fjalla-
grasalendur hér á landi.
Hann segir fjallagrös stór-
vaxnari til fjalla en á
láglendi, og þónokkuð góðir
möguleikar hljóti að vera á
hentugum svæðum til tínslu á
húnavetnsku heiðunum. T.d.
innarlega á Auðkúluheiði í
flánum við Sandkúlufell.
Hörður segir að fjallafrös
vaxi best þar sem votlendi og
þurrlendi mætast, birta sé
næg og skjólsælt.
Vígslubiskupinn sr. Bolli Gústavsson nývígður í ræðustól.
HCTe^iH U$—
Aðalgötu 26 Sauöárkróki
ALMENN RAFVERKTAKAÞJÓNUSTA
FRYSTI- OG KÆLIÞJÓNUSTA
BÍLA- OG SKIPARAFMAGN
VÉLA- OG VERKFÆRAÞJÓNUSTA
SÍMI: 95-35519» BlLASÍMI: 985-31419 • FAX: 95-36019
Bílaviðgerðir • Hjólbarðaverkstæði
RÉTTINGAR • SPRAUTUN
Jfflfl [bilflverhtddi „
1 SAUOíStíDKI ... o.w noi w
SÆMUNDARGÖTU - S(MI 35141