Feykir - 26.06.1991, Page 5
24/1991 FEYKIR 5
Islandsk stemmeprakt!
Islenskir raddtöfrar
Þannig hljóðaði fyrirsögn norska blaðsins með þessari mynd.
Pétur Pétursson einsöngvari kórsins þenur raddböndin og
einn af yngri kórfélögunum einnig. Það er annarhvor
tvíburabræðranna Þorleifur eða Kolbeinn Konráðsson. Alltaf
jafn erfitt að þekkja þá sundur.
Heimismenn fá góöa
dóma í norskum blöðum
Kórfélagar í Karlakórnum
Heimi eru nýkomnir heim úr
velheppnaðri söngferð til
Norðurlandanna, sem stóð frá
6.-19. júní. Lengsta viðdvöl
hafði kórinn í Noregi, enda til
fararinnar stofnað vegna
tengsla við fyrrverandi stjórn-
anda kórsins Sven Arne
Korshamn og blandaða kórinn
í Stryn, en með þeim kór
syngja einmitt skagfirsku
hjónin Sigurður Þorvaldsson
frá Þrastarstöðum og Hall-
fríður Friðriksdóttir frá Sauðár-
króki.
I samtali við Feyki sagði
Þorvaldur Oskarsson for-
maður Heimis að mótttökur í
ferðinni hefðu verið einstakar,
og á þrem stöðum svo
frammúrskarandi að ekki fái
orð lýst. Það var til að byrja
með hjá þeim hjónum
Sigurði og Hallfríði, síðan í
Haret heimabæ Sven Arne
og að síðustu í Kristjanstad
vinabæ Sauðárkróks í Svíþjóð.
Þakkað góða veðrið
Norsku blöðin fara mjög
lofsamlegum oiðum um frammi-
stöðu Heimismanna ekki
aðeins í söngnum heldur
þakkar Fjördingen staðar-
blaðið í Sryn og nágrenni
Heimismönnum fyriraðhafa
komið með góða veðrið með
sér. Eftir kulda- og vætutíð
brá til betri tíðar við komu
Islendinganna.
Heimir var þátttakandi í
kóramóti í Stryn, þar sem
sungu 13 kórar. I grein
staðaiblaðsins um kóramótið
fær Heimir mestu umfjöllun-
ina. Sagt er að Heimir hafi
fengið stórkostlegar mót-
tökur. Heimismenn hafi
staðið sig frábærlega á
báðum konsertunum, og þeir
orðið að endurtaka lög þó
svo að ákveðið hafi verið að
ekki yrðu tekin aukalög,
enda enginn tími fyrir slíkt.
Stormandi og kraft-
mikill flutningur
í vikublaðinu Vesturpóst-
inum frá 11. júní er að finna
lofsamlega gagnrýni um
tónleika Heimis. „íslending-
arnir heilluðu Norðmenn”
segir blaðið. Þessir frændur í
vestri sem Norðmenn eigi svo
margt skylt með, hafi sýnt
sitt einkenni í söngnum.
Sterklegast hafi þetta komið
fram í stormandi og kraft-
miklum fiutningi lagsins ,,í
útsæ rísa íslandsfjöll”. Þægi-
legur kliður hafi farið um
áhorfandann og honum
fundist hafsvalinn hríslast
niður um hálsmálið.
Húmorinn kom í Ijós
Vesturpósturinn segir Heimi
Keppni í fjórðu deild d-riðils
virðist ætla að verða jöfn og
spennandi í sumar. Liðin raða sér
þétt á töfluna og það virðist
einungis vera Þrymur frá Sauðár-
króki og trúlega UMSE b einnig
sem ætla ekki að blanda sér í
toppbaráttuna.
HSÞ b skaust á toppinn þegar
Mývetningarnir lögðu Kormák
örugglega að velli á Laugum,
4:1. Kormákur byrjaði þó betur
og komst í 1:0 um miðjan fyrri
hálfleik. Var markahrókurinn
Albert Jónsson þar að verki. En
Þingeyingamir jöfnuðu skömmu
fyrir leikhlé og skoruðu síðan
þrjú í seinni hálfleiknum, þar af
tvö á síðustu tiu mínútunum.
mjög einbeittan og agaðan
kór. Það haft vakið athygli að
stjómandinn Stefán R. Gísla-
son hefði ekki einu sinni
verið með nótur fyrir framan
sig, en árangurinn samt verið
hreint ótrúlegur. Hinn dug-
mikli stjórnandi virtist hafa
hvern einasta söngmann í
hendi sinni. Síðan hafi
húmor íslendinganna komið
fram þegar þeir slepptu fram
af sér beislinu í lokin og
enduðu söngdagskrána með
norska laginu „Kerlingin
með stafinn”.
Norðmönnum kom þó
mest á óvart að á efnsisskrá
Heimis voru nær eingöngu
íslensk lög, en Norðmenn
hafa vanist því í seinni tíð að
þarlendir kórar fiytji nær
eingöngu erlend lög. Þá þótti
einnig athyglisvert að einn
kórfélaga var einn af þremur
íslenskum biskupum, Sigurður
Guðmundsson þáverandi
vígslubiskup á Hólum.
Neisti komst í annað sætið
þegar SM kom í heimsókn á
Hofsós á laugardaginn. Neista-
menn sýndu mikla yfirburði í
fyrri hálfleiknum og skoruðu þá
þrjú mörk. Bættu síðan því
fjórða við í upphafi seinni
hálfleiks. Eftir það slökuðu þeir
á og SM skoraði tvö mörk á
lokakafla leiksins. Oddur Jóns-
son þakkaði fyrir að fá tækifæri
til að leika stöðu miðherja, með
því að skora þrjú mörk og
Olafur Olafsson gerði eitt.
Meðal leikja um næstu helgi
má nefna: Kormákur-Þrymur
og Neisti-Hvöt. HSþ b er með 10
stig eftir 5 leiki og Neisti með 9,
Hvöt með 8 og Kormákur 7, öll
eftir 4 leiki.
Jöfn keppni í fjórðu deild
Grillað við Ásbvrgi í Miðfirði. Mvnd-EA.
Laugarbakki Miöfiröi:
Þroskaheftir í heimsókn
Það var mikil stemmning sem
ríkti meðal fólksins sem kom
saman í félagsheimilinu Ásbyrgi
Laugarbakka á föstudags-
kvöldið. Voru þarna áferðinni
þroskaheftir bæði frá Reykja-
vík og Akureyri, og höfðu þeir
ákveðið að hittast á miðri leið.
Að sögn Gunnhildar Braga-
dóttur hópsstjóra hjá Þroska-
hjálp á Akureyri, var tilefni
þessarar ferða að hittast og
gera eitthvað skemmtilegt
saman og segja frá helstu
viðburðum vetrarstarfsins.
Má segja að þetta hafi verið
nokkurskonar uppskeruhátíð.
Hópurinn byijaði að skoða
nágrenni Laugarbakka á
föstudaginn. Var m.a. litið
við í Gallerí Bardúsa á
Hvammstanga og einnig var
Gauksmýrarheimilið heim-
sótt. Um kvöldið var byrjað á
grillveislu við félagsheimilið
Asbyrgi, grillað var á
nokkrum útigrillum og síðan
matast innan dyra. A eftir
var svo kvöldvaka þar sem
m.a. var sagt frá málþingi
þroskaheftra í Færeyjum í
maí s.l. Á eftir var síðan
diskótek og dansað fram á
nótt.
Á laugardag var síðan
farinn hringurinn um Vatns-
nes og m.a. staldrað við hjá
Hvítserk og Borgarvirki.
Leiðsögumaður var Kristján
Isfeld á Jarðri en hann situr í
Svæðisstjórn þroskahjálpará
Norðurlandi vestra. EA.