Feykir - 21.08.1991, Blaðsíða 3
28/1991 FEYKIR 3
Dagskra heimsóknar
Vigdísar mjög
þéttskipuð
Forseti íslands frú Vigdís
Finnbogadóttir kemur í opin-
bera heimsókn til Skagafjarðar
á föstudaginn og staldrar við
fram á sunnudag. Skagfirðingar
hafa undirbúið heimsókn
forseta síns vel og eru
ákveðnir í að taka á móti
honum sem frekast er kostur.
Dagskrá heimsóknarinnar er
hinsvegar svo þéttskipuð að
vart kemur annað til en Vigdís
verði orðin hvíldarþurfi þegar
hún yfirgefur Skagafjörð á
sunnudagskvöld. Það kemur
þó væntanlega ekki að sök þar
sem Vigdís hefur gefið það út
að hún hafi yfir miklu úthaldi
að ráða og þreytist seint í
ferðalögum.
Dagskra forsetaheimsóknar-
innar hefst með því að flugvél
með forsetann innanborðs
lendir á Alexandersflugvelli
kl. 9,00 að morgni föstudags.
Þar verður um hálftíma
afhöfn að ræða og m.a. tekur
Karlakórinn Heimir lagið,
Skín við sólu, ef þannig
viðrar, annars annað lag. Þá
liggur leiðin í hús tónlistar-
skólans, þar sem kynning
verður á matvælaframleiðslu
héraðsins á vegum Mjólkur-
samlagsins, Sauðárkróksbakaiis
og kjötvinnslanna. Að loknum
morgunverði í tónlistarskóla-
húsinu verður haldið upp á
Nafir að útsýnisskífunni.
Forseti mun síðan aka
suður Nafirnar að væntan-
legum skrúðgarði Sauðkræk-
inga í Sauðárgili þar sem
gróðursettar verða þrjár
trjáplöntur, en það mun
forseti einnig gera á sex öðrum
stöðum í héraðinu; við Sólgarða
í Fljótum, á Steinsstöðum í
Tungusveit, við skála skáta-
félagsins Eilifsbúa í landi Brekku,
í Hólaskógi og við félags-
heimili Skarðs- og Skefilstaða-
hrepps.
Ur Sauðárgili verður haldið í
Safnahúsið og eftir skamma
viðdvöl þarekið beinustu leið
fram í Argarð í Lýtings-
staðahreppi, hádegisverður
snæddur þar í boði hrepps-
nefndar og hreppsbúar heilsa
upp á forsetann, sem m.a.
verður sýnt merkt bókasafn í
Laugarhúsinu. Þá verður
ekið til baka og á leiðinni upp
að Arnarstapa komið við í
Víðimýrarkirkju og í skála
Eilífsbúa við Brekku. Vigdís
mun þar heilsa upp á
skátana, en forseti Islandser
vemdari skátahreyfingarinnar
Byrjað að slá í þriðja
sinn í Skagafirði
Heyskapartíð hefur verið
eindæma góð Norðanlands,
sem um mest allt land i sumar.
Göngudagur
fjölskyldunnar:
Gengiö upp
Giljárgil
Ungmennasamband Austur-
Húnvetninga og Ferðamála-
félag A.-Hún. standa sam-
eiginlega fyrir göngudegi fjöl-
skyldunnar sunnudaginn 25.
ágúst nk. Þá verðurgengið um
Giljárgil, náttúruperhi héraðsins.
í gilinu er margt fossa sem
falla fram af fallegum bríkum
og þar má sjá mörg brot úr
jarðsögunni. Farið verðurfrá
Sóru-Giljá klukkan 14 og
gangan tekur um tvær
klukkustundir. Áeftirverður
farið í sundlaugina á Húna-
völlum.
MÓ.
Fyrsta slætti er lokið víðast
hvar fyrir nokkru og sum-
staðar öðrum slætti einnig. Á
einum bæ í Skagafirði a.m.k.
er þriðji sláttur að hefjast
þessa dagana. Trúlega er
fátítt að tún séu slegin þrisvar
á hinu stutta íslenska sumri.
Stefán Jónsson bóndi á
Grænumýri í Blönduhlíð var
farinn að bíða eftir þurrk-
spá fyrir helgina. Hann var
ákveðinn í því að bera ljá í
gras strax og viðrar í hluta af
túninu í þriðja sinn í sumar.
Stefán byrjaði fyrsta slátt
fyrstur í Skagafirði eða í
endaðan maí. Öðrum slætti
lauk hann um verslunar-
mannahelgina. Milli slátta
hefur hann farið með
mykjudreifara um slétturnar
og það flýtt sprettu mikið.
Bændur ljúka upp einum
rómi um að mjög langt sé
síðan heyfengur hefur orðið
jafnmikill og nú, bæði að
vöxtum og gæðum, þrátt
fyrir að léleg sprettutíð væri
mestallan júnímánuð.
Miklar framkvæmdir hafa verið á Sauðárkróki í sumar og ekki vafi að sumar hverjar tengjast
forsetaheimsókninni, a.m.k. að einhverju leyti; og ekki er það svo sem verra. Gífurlegar
framkvæmdir hafa orðið við Faxatorgið og það breytt töluvert um svip frá því þessi mynd var
tekin, þegar framkvæmdir voru nýlega hafnar seint í júlí. Malbikun er lokið og gangstéttalögn
stendur yfir, nýbúið að mála Safnahúsið og sjálfsagt verður búið að prýða torgið enn frekar um
næstu helgi.
í landinu.
I Miðgarði bíður síðan
síðdegiskaffi forsetans og þar
verður sameiginleg móttaka
Seylu-, Akra- og Staðar-
hrepps sem áætlað er að
standi í tvo tíma. Um kvöldið
situr síðan forseti kvöldveiðar-
boð bæjarstjórnar Sauðár-
króks, en heldur síðan til
gististaðar á Löngumýri.
Að morgni föstudags liggur
leiðin síðan út Blönduhlíð I
Fljótin, snæddur morgun-
verður að Sólgörðum, Barðs-
kirkja skoðuð og þaðan
haldið í móttöku Fljótamanna
sem verður í félagsheimilinu
á Ketilási. Hofshreppingar
bjóða síðan til hádegisverðar
í félagsheimilinu Höfðaborg.
Danska bjálkahúsið verður
skoðað og einnig mun forseti
virða fyrir sér stuðlabergið í
Staðarbjargarvík. Á leið frá
Hofsósi til Hóla verður
komið við í Grafarkirkju. Á
Hólum verður helgistund í
dómkirkjunni en að henni
lokinni móttaka í barnaskól-
anum á vegum Hóla- óg
Viðvíkurhrepps. Frá Hólum
verður ekið um Hegranes að
Glaumbæ, staldrað við í
safninu og um kvöldið bíður
forsetans kvöldverðarboð
héraðsnefndar í Miðgarði.
Að morgni sunnudags
verður haldið beinustu leið út
á Skaga, morgunverður
snæddur í félagsheimilinu
Skagaseli og þegar Skefl-
ungar hafa hitt forseta
sinn að máli verður ekið til
Sauðárkróks þarsem Vigdísi
er boðið í mat hjá sýslumanns-
og bæjarfógetahjónunum
Halldóri og Aðalheiði. Eftir
hádegið verður séra Hjálmar
með helgistund í Sauðárkróks-
kirkju. Skarðshreppingar
hyggjast síðan sýna forset-
anum sína gömlu og merku
kirkju á Sjávarborg. Vigdís
mun síðan heimsækja heimilis-
fólk á Öldrunar- og dvalar-
heimilinu, en síðan vitja
ungu kynslóðarinnar og
afhenda verðlaun á Króks-
móti í knattspyrnu. Síðdegis
verður síðan sameiginlegt
boð Sauðárkróksbæjar og
Skarðs- og Rípurhrepps í
íþróttahúsinu. Á sjöunda
tímanum mun síðan forseti
enda heimsóknina og yfir-
gefa Skagafjörð að loknum
þrem annasömum dögum.
SAUDÁRKRÓKSBÚAR
Forseti íslands, Vigdís Finnbogadóttir, er væntanleg í heimsókn
til Skagafjaröar og Sauöárkróks dagana 23. - 25. ágústn.k.
Þeir hlutar heimsóknarinnar, sem snúa aö Sauöárkróksbúum, eru:
Föstudagurínn 23. ágúst
Kl. 9.00 MóttakaáAlexandersflugvell.
Kl. 11.00 Gróöursetning í Sauðárgili.
Þeim, sem koma á bílum, er bent á aö leggja
sunnan íþróttahúss og ganga upp meö
heimavistinni aö sunnan.
Sunnudagur 25. ágúst
Kl. 15.00 Afhending verölauna á Króksmóti í knattspyrnu á
íþróttavelli.
Kl. 16.30-18.30 íþróttahúsiö
íbúum Sauöárkróks, Rípurhrepps og Skaröshrepps
er boöiö aö koma og þiggja veitingar meö
forseta íslands.
Öll börn sem mæta fá afhentan fána
Jafnframtþví sem Sauöárkróksbúar eru eindregiö hvattir til aö mæta
og taka þátt i ofangreindum athöfnum, er þaö einlæg von
Bæjarstjórnar Sauðárkróks aö allir leggist á eitt um að
bærinn veröi eins snyrtilegur og kostur er.