Feykir


Feykir - 21.08.1991, Side 4

Feykir - 21.08.1991, Side 4
4 FEYKIR 28/1991 VV „Þetta er ekkert nema öfund frá mönnum sem geta ekki unað öðrum að bjarga sér Feðgarnir Uni og Ómar á Hofsósi segjast alsaklausir vegna kæru og ásakana um kvótasvindl „Það lítur helst út fyrir að þessi áróður sem hafður er í frammi gegn okkur stafi af öfund. Þetta er alltsaman tilbúningur og stenst engan veginn. Okkur finnst mjög gangrýnivert eins og staðið hefur verið að málum, að taka af okkur leyfið og hefja síðan rannsókn málsins. Þetta er algjörlega öfugsnúið við dómskerfið í landinu. Með þessu er í raun búið að dæma okkur þó sektin sé fjarri lagi sönnuð”, segir Uni Pétursson skipstjóri á Hofsósi. Um miðjan síðasta mánuð barst sjávarútvegsráðuneytinu kæra á hendur Una og syni hans Ómari fyrir ólöglegar veiðar. Kæruefnið byggist á því að þeir feðgar hafi sniðgengið lög um fiskveiðiheimildir á þann hátt að Uni, sem gerir út Berghildi SK-137 29 tonna bát, á að hafa umskipað netafiski úr bát sínum yfir í trillu Ómars, Svöluna SK-37, en sá bátur hafði krókaleyfi og var á færaveiðum. „Ég byrjaði á færunum í maíbyrjun og það má segja að ég hafi verið hundeltur síðan. Það hafa þrisvar sinnum komið eftirlitsmenn um borð til mín og þó hefur aflamagnið varla gefið tilefni til grunsemda, því eins og skýrslur segja til um hef ég ekki fengið nema 8-10 tonn á mánuði, sem er ekki nema meðalfiskirí hér fyrir norðan, mest fengið að mig minnir rúmt tonn yfir daginn. Og það er ekki einu sinni svo að efthiitsmennirnir hafi viljað skoða fiskinn hjá mér þó ég hafi boðið þeim það, ekki einu sinni þegar þeir sviptu mig leyfinu þann 23. júlí”, sagði Omar. Vorum ekki einu sinni á sömu miðum Feðgarnir þverneita sakar- giftum enda standist frásagnir af meintu atferli þeirra engan veginn. „Fyrri daginn, 15. júlí, sem við áttum að hafa staðið í fiskflutnigi á milli bátanna var svo mikil svarta þoka að ekki sást nema rétt fram fyrir bátinn. Það er því í meira lagi kyndugt að menn skuli hafa þóst sjá til okkar frá landi, 5- 6 mílur út. Seinni daginn sem við áttum að hafa staðið í þessum lögbrotum, 16. júlí; vildi nú einmitt svo til að bátarnir voru ekki einu sinni á sömu miðum. Og frásögn eftirlitsmanns er furðuleg, þar sem liann segist hafa séð til mín í hörkuaðgerð við Málmey kl. 6 um morguninn, síðan út af Siglunesi kl. 8 um morguninn á austurleið, en ég hafi ekki verið komin í höfn á Dalvík klukkan tvö um nóttina og ekki heldurkl. sjö um morguninn. Þegaröll tæki eru í lagi hjá mér eins og þarna er ég ekki nema 2 1/2- 3 tíma úr Eyjafirðinum og heim á Hofsós”, sagði Ómar. En hvar varstu þá meðan eftirlitsmaðurinn beið eftir þér á Dalvík? ,,Ég var bara á veiðum”. Komið að til að borða og fá ís Þeir feðgar fengu uppgefið í ráðuneytinu að þrír aðilar hefðu staðið að kærunni, en fengu ekki að vita hvaða aðilar þetta voru. ,,Það er óskapleg leyndsem hvíliryfir þessu og maður skilur ekki hvers vegna. En við teljum okkur svo sem alveg vita hverjir þetta eru, og það er alveg klárt mál að þetta er ekkert nema öfund. Menn sem una því ekki aðaðrirgeti bjargað sér. Heimaaðilarsem eru ósáttir við að við skulum ekki landa okkar afla hérna heima. En það er bara þannig að við fáum mun meira fyrir aflann á Dalvík, 80 krónur í stað 50. Fyrir utan að þjónustan á Hofsósi erengin, ekki einu sinni hægt að fá vatn við bryggju þó að það sé skylda þar sem löndunar- krani er. Síðan stendur ekkert á því að rukka mann um aðstöðugjald. Við erum einmitt nýbúnir að fá álagninguna, upp á fleiri hundruð þúsund í aðstöðu- gjald”, sagði Uni. En er til í dæminu að þið hafið lagt bátunum hlið við hlið á Firðinum? „Það hefur gerst einstaka sinnum. Stundum hefur hann komið yfir til mín og fengið sér að borða, og eins hefur komið fyrir að hann hafi lagt upp að til að fá ís, þar sem ísgeymslurnar eru miklu betri í mínum bát”, segir Uni. Gengiö vel og ekkert þurft á svindli að halda — En nú er það umtalað að þú sért nokkuð svalur gagnvart reglugerðum uni veiðar, og verstu tungurnar segja að þú hafir varla veitt bröndu úr sjó á löglegan hátt. Fékkstu ekki á þig dóm fyrir nokkrum árum fyrir að fara innfyrir? „Jú, ég var dæmdur á líkum, en þær voru fjarri lagi réttar. Síðan var ég settur í þriggja vikna bann í fyrra fyrir að gefa öðrunt báti fisk. Það er með það eins og annað hjá þeim í ráðuneytinu, að þeir sögðu að ég hefði frekar átt að henda fiskinum í sjóinn en gefa hann. Og svo eru þeir vitlausir út af því að smáfiski sé hent í sjóinn á togurunum”, sagði Uni. „Já þegar maður er í grennd við togarana sér maður alveg mökkinn af smáfiskinum koma frá þeim”, skýtur Ómar inn í. En stafar þessi öfund þá af því að þér hafi gengið vel Uni? „Já, eftirlitsmenn hafa komið og skoðað veiðarfærin hjá mér. Ég hef alltaf verið með lögleg veiðarfæri og veitt á löglegum stöðum. Mér hefur yfirleitt gengið það vel að fiska og því ekkert þurft á því að halda að svindla á neinu eins og sumir. Það eru eiturtungurnar sem gera mönnum lífið leitt, en ég veit ekki hvernig í ósköpunum menn ætla að sanna þessar síðustu sakir á okkur”. Munu fara í skaöabóta- og meiöyröamál „Það er heldur ekki þannig að ég hafi þurft að elta karl föður minn til að fá fisk. Og það var ansi hart að heyra það, að það hafi verið tími til kominn að grípa mig, þar sem ég hafi varla dýft færi í sjó í sumar”, sagði Ómar. En þrátt fyrir að þeir feðgar hafi misst leyfin á bátana eru þeir búnir að fá leyfi fyrir næsta aflaár, sem hefst 1. september nk. Það finnst þeim ósköp skrýtið og er ekki nema von. En þeir Uni ogÓmareru bjartsýnirá að vinna málið verði það á annað borð höfðað. „Og það er alveg klárt að við munum fara fram á skaðabætur og aukningu á kvóta, vegna þeirrar aflaskerðingar sem þetta stopp veldurokkur. því þessi vertíð verður notuðsem viðmiðun þegar kvóta verður úthlutað. Þá erlögfræðingur- inn okkar alveg harður á því að fara í meiðyrðamál vegna útvarpsfréttar 29. júlí. Þar sem við vorum eiginlega stimplaðir sem mestu afbrota- menn landsins”, sagði Uni Pétursson að endingu. Mál feðganna á Hofsósi: Rannsókn lokið hjá sýslumannsembættinu Hjá sýslumannsembættinu á Sauðárkróki er lokið rann- sókn vegna kæru á hendur feðgunum Una Péturssyni og Ómari Unasyni á Hofsósi, en þeir voru grunaðir um brot á lögum um veiðiheimildir. Að sögn Halldórs Jóns- sonar sýslumanns er skýrslu- gerð lokið og voru gögnin send ríkissaksóknara í síðustu viku. Búast má við úrskurði ríkissaksóknara um frekari meðferð málsins á næstu dögum.

x

Feykir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.