Feykir - 21.08.1991, Qupperneq 8
21. ágúst 1991, 28. tölublað 11. árgangur
Auglýsingar þurfa að berast eigi síðar
en um hádegi á föstudögum
BILALEIGA SAUÐARKROKS
FYRIRTÆKI - STOFNANIR - EINSTAKLINGAR
TOYOTA Hl - LUX DOUBLE CAB 1991
LEYSIR FLUTNINGSVANDAMÁLIN
GÓÐIR BÍLAR Á GÓÐUM KJÖRUM
SÍMAR 36050 ■ 35011 H.S. (STEFÁN)
Fyrsta steypan í bóknámshúsið
Framkvæmdir við byggingu bóknámshúss fjölbrautaskólans
eru komnar vel af stað. Það er alltaf áfangi þegar steypunni
er rennt í mótin í fyrsta skiptið í hverri byggingu.
Síðastliðinn föstudag var tekið á móti fyrstu steypu í
bóknámshúsið. Ekki var þó um stórsteypu að ræða. Fimm
rúmetrar fóru niður á mesta dýpið í grunninum í undirstöður
undir sökkla.
„Erum að leita leiða til að halda
skipinu og kvótanum í bænum"
Framkvæmdastjóri Dögunar ósáttur við
verðlagningu á köldu vatni til fyrirtækisins
Tófur við túnfótinn hjá
Hjaltdælingum
Refaskyttur úr Fljaltadal og
Viðvíkursveit náðu nýlega að
granda sex tófum skammt frá
bænum Kjarvalsstöðum í
Hjaltadal. Vegfarendur um
Hjaltadalsveg urðu þess varir
að dýrbítur var að atast í fé
rétt við fjárhúsin á bænum.
Sjaldgæft er að lágfóta láti
nappa sig svo skammt frá
byggð yfir hásumarið.
Það tók refaskytturnar
Steinþór Tryggvason Kýr-
holti og Pálma Ragnarsson
Garðakoti tvö kvöld að
vinna dýrin sem voru á
flækingi utan grenis í
fjallshlíðinni fyrir ofan Kjar-
valsstaði. Um tvær læður og
fjóra hvolpa var að ræða, en
karldýrin náðust ekki. Ekki
er vitað til þess að dýrin hafi
verið búin að drepa fé. Lamb
í eigu Hallgríms bónda á
Kjarvalsstöðum slapp úr
klóm rebba án teljandi
áverka, en áður hafði hann
orðið var sára á júgt i lambær.
Annar bóndi í dalnum hafði
einnig séð torkennileg sár á
kindum sínum og beindist
gmnur bændanna að hundum,
enda höfðu viðlíka atburðir
gerst suður á landi fyrr í
sumar.
Talsvert mun vera um tófu
í austanverðum Skagfirði. Til
að mynda voru nokkur dýr
skotin úr skothúsum í'
Hjaltadal á liðnum vetri.
„Það er alveg greinilegt að
bæjaryfirvöld skilja ekki alvöru
málsins. Við erum að leita
allra leiða til að lækka
reksturskostnaðinn, einmitt
til að geta haldið skipinu
okkar og kvóta þess hérna í
bænum. Menn verða að skilja
að þetta er dýrt skip fyrir
okkur, enda nýlega keypt.
Nógu erfitt var þetta fyrir
áður en markaðsverðið hrundi
um 25% fyrir ári”, sagði
Ómar Þór Gunnarsson fram-
kvæmdastjóri rækjuvinnslunnar
Dögunar á Sauðárkróki.
Veitustjórn Sauðárkróks
synjaði beiðni Dögunar um
lækkun á verði neysluvatns,
til samræmis við það sem
rækjuvinnslurnar á Siglufirði
og Blönduósi þurfa að greiða
fyrir líterinn af köldu vatni.
en það mun vera talsvert
lægra en Dögun greiðir. ,,Við
borgum 14 krónur fyrir
rúmmeterinn meðan aðrar
vinnslur greiða allt niður í 4-6
krónur. Mér finnst vanta
mikið upp á að okkar
sérstöðu sé sýndur viðhlít-
andi skilningur. Vatnsnotkun
okkar er gífurleg, og að
sjálfsögðu reyna þeir sem
verða fyrir áföllum í tekju-
öflun eins og við höfum orðið
fyrir að minnka rekstrar-
kostnaðinn. Það veitirekkiaf
að reyna að minnka hann á
öllum sviðum” sagði Ómar í
Dögun.
I máli Hilmis Jóhannes-
sonar formanns veitustjómar
við afgreiðslu málsins í
bæjarstjórn kom fram að
veitustjórn treysti sér ekki til
að lækka vatnsverðið hjá
einum aðila, því búast mætti
við að þá kæmu fleiri á eftir
sem vildu lækkun. Hilmir
sagði um vatnsnotkun Dögunar
að á venjulegum mánudegi
þegar allir bæjarbúar væru á
fótum, notaði hún 10
sekúntulítra af vatni eða til
hálfs við neyslu allra bæjar-
búa. I máli Hilmis kom
einnig fram að full ástæða er
orðin fyrir veitustjórn að
svipast um eftir vatnslindum.
Þegar harðast væri á dalnum
gerði vatnsforði veitunnar
ekki betur en duga.
Þess má geta að ekkert
fyrirtæki á Króknum notar í
líkingu við það af köldu vatni
sem rækjuvinnslan Dögun
gerir.
Möskvarnir löglegir en spurning um
hvort skerið telst til fasta landsins
Enn er deilt um netalögn við Miðfjörð
Enn er deilt um lögmæti
netalagna við Miðfjörð. Rann-
sókn nýjasta málsins er vel á veg
komin og þætti þess lokið er
Sjúkrahús Skagfirðinga:
Ungur Siglfirðingur í
starf framkvæmdastjóra
Birgir Gunnarsson 27 ára
Siglfirðingur hefur verið ráðinn
framkvæmdastjóri Sjúkrahúss
Skagfirðinga í stað Sæmundar
Arna Hermannssonar er lætur
af störfum um næstu áramót
sökum aldurs. Ellefu aðilar
sóttu um stöðuna sem stjórn
sjúkrahússins veitti.
Birgir er 27 ára að aldri,
rekstrarfræðingur að mennt
ftá Samvinnuskólanum Bifröst
og starfaði síðast við innra
eftirlit hjá Olís. Birgir er
kvæntur Þorgerði Sævars-
dóttur frá Sauðárkróki.
Fjórir umsækjenda um
stöðuna óskuðu nafnleyndar,
en aðrir eru: Baldvin Jónsson,
Ólafur Jóhannsson, Hörður
Ingimarsson og Þorsteinn
Birgisson á Sauðárkróki,
Halldór Rafnsson Akureyri
og Lúðvík Hjalti Jónsson
Reykjavík.
snertir netalögnina sjálfa og töku
netsins úr vörslu lögreglunnar. Að
sögn Grétars Sæmundssonar
rannsóknarlögreglumanns eru
möskvar netsins löglegir, en
lögmæti lagnarinnar snýst um
það hvort sker skammt frá landi,
sem þurrt er út á i fjöru, telst til
fastalandsins.
Grétar sagði að það væri ekki
sitt að dæma um þetta atriði.
Gögnin væru komin til ákæru-
valdsins og frekari meðferð
málsins hlyti að ráðast alveg á
næstunni.
Forsaga málsins er þannig.
Að kvöldi dags 7. ágúst sl. fóru
nokkrir menn á báti frá
Skagaströnd til að grennslast
fyrir um net við Miðfjörð. Þetta
vom veiðieftirlitsmaður, lögreglu-
þjóninn á Skagaströnd og tveir
menn frá björgunarsveitinni á
staðnum. Við Vatnsnes töldu
þeir sig finna eitt ólöglegt net,
þar sem grunur lék á því að
möskvar þess væru ólöglegir og
það lagt of langt frá landi.
Drógu þeir netið upp og tóku í
sína vörslu. Eigandi netsins, sem
er frá Hvammstanga, verður
þess fljótlega var að netið var
horfið og vissi hvar þess var að
leita.
Þegar til Skagastrandar er
komið, bregður lögregluþjóninn
sér afsíðis til að nálgast bifreið er
aka skyldi með netið til
Blönduóss í vörslu embættisins.
Rétt í þann mund koma sex
menn á tveim bílum frá
Hvammstanga. Hefst orðaskak
og stimpingar á bryggjunni sem
enda með því að eigandi netsins
tekur það í sina vörslu.
Hvammstangabúunum var síðan
veitt fyrirsát við Blöndubrú og
þrír þeirra þurftu að gista
fangaklefa lögreglunnar um
nóttina, öðrum var sleppt.
Rannsóknarlögreglu ríkisins var
afhent málið til rannsóknar
strax morguninn eftir.
Auk fyrrnefndrar kæru hefur
eigandi netsins, Agúst Sigurðs-
son á Hvammstanga, gefið það
út, að lögfræðingur sinn muni
höfða mál á hendur lögreglunni
vegna ærumeiðinga og frelsis-
sviftingar.
GÆOAFRAMKOLLUN
GÆDAFRAMKÖLLUN
BÓKAEtED
BTWJÆS