Feykir - 28.08.1991, Page 1
rafsjá hf
RAFVERKTAKAR
SÉRVERSLUN
MEÐ RAFTÆKI
SÆMUNDARGÖTU 1
SAUÐÁRKRÓKI
Kennaramálin í kjördæminu:
„Staöan síst verri
en undanfarin ár"
„Staðan er síst verri nú en
undanfarin ár, þó að verið sé
að ráða kennara á síðustu
dögum. Að vísu eru málin víða
leyst með leiðbeinendum, en
mig grunar að hlutfall
réttindakennara hafi heldur
skánað. Það kemur þó ekki í
Ijós fyrr en búið er að raða
kennslunni niður”, sagði Guð-
mundur Ingi Leifsson fræðslu-
stjóri um ástand kennaramála
nú þegar skólar eru að hefjast
á næstu dögum.
Guðmundur sagði að þetta
væri líklega að smella saman.
Á Skagaströnd, þar sem
ástandið var talið einna vest,
vantaði fyrir nokkmm dögum
yfirkennara og í eina stöðu
að auki. Þá voru kennaramál í
gagnfræðaskólanum á Krókn-
um heldur ekki komin á
hreint.
Mestur hefur skorturinn
verið á íþróttakennurum.
Skagstrendingar fóru út í að
auglýsa í Danmörku, fengu
fimm umsóknir og hafa ráðið
danskan íþróttakennara til
starfa. Á Hvammstanga
verður í vetur þýskur
íþróttakennari. Þá vantaði
einnig íþróttakennara við
Laugabakkaskóla. Á Hofsósi
hefur leiðbeinandi hjá ung-
mennafélaginu Neista, Magnús
Jóhannesson, verið ráðinn
til íþróttakennslunnar.
Vestur Húnavatnssýslur:
Ferðamannastraumurinn
aldrei veriö meiri
Vigdís Finnbogadóttir forseti brosir hér breitt til mannfjöldans við komuna á
Alexandersflugvöll sl. föstudagsmorgunn. Við hlið hennar er Þorsteinn Ásgrímsson formaður
héraðsnefndar.
Metaösókn í Fjölbrautaskólann
„Ferðamannastraumur hér
hefur aldrei verið eins og nú í
sumar. Það hefur verið mjög
mikil traffík hérna á tjald-
stæðunum uppi í Hvamminum.
Nei!, skiltamálin hafa ekkert
verið að plaga okkur í sumar”,
sagði Bjarni Þór Einarsson
Sveitarstjóri á Hvammstanga.
Bjarni gat þess að í vor hafi
verið gert átak í að fá
vegfarendur um þjóðveg 1 til
að stoppa, og þeir hafi
eiginlega ekki búist við að
það mundi skila sér fyrr en
eftir tvö til þrjú ár. ,,Það eina
sem við erum ekki ánægðir
með, er að við vonuðumst til
að vegagerðin mundi setja
upp leiðbeiningarskilti yfir
sýsluna við gatnamótin. Við
erum hinsvegar alveg viss um
að þeir verða búnir að því
næsta vor”, sagði Bjarni.
Nemendur Fjölbrautaskóla Norð-
urlands vestra verða fleiri í
vetur en nokkru sinni, á bilinu
380-400. Nýnemar hafa heldur
aldrei verið fleiri, 170 voru
þeir orðnir fyrir helgina, en
ekki reyndist unnt að stað-
festa tæplega 50 umsóknir
vegna skorts á heimavistar-
rými. Af þeim sökum verður
heimavistin við Kirkjutorg
nýtt í vetur að nýju.
Fjölbrautaskólinn verður
settur á mánudaginn kemur
og kennsla hefst síðan
samkvæmt stundaskrá næsta
dag. Nýjung við skólann í
vetur er námsbraut fyrir
þroskahefta. Anna Dóra
Antonsdóttir hefur verið
ráðinn til umsjónar náminu.
Nemendur á námsbrautinni
verða fjórir.
Litlar breytingar verða á
kennaraliði frá síðasta vetri.
Nýr kennari við skólann er
Sigurður Jónsson jarðfræð-
ingur.
Nýlokið dýpkun Hvammstangahafnar
og malbikunarframkvæmdir aö hefjast
Nýlokið er dýpkun á Hvamms-
tangahöfn og þessa dagana
eru að hefjast malbikunar-
framkvæmdir. Króksverksmenn
munu malbika um 12 þúsund
fermetra í þorpinu í haust.
Malbikunarstöðin verður staðsett
á Hvammstanga í vetur og
næsta vor verður síðan lokið
við seinni áfanga malbikunar.
Um 19000 rúmmetrar
voru grafnir upp úr höfninni.
Að sögn sveitarstjórans Bjama
Þórs Einarssonar hefur þörfm
fyrir dýpkun verið til staðar
nokkuð lengi, og hún ekki
skapast vegna framburðar
Hvammsár eða sandburðar
inn í höfnina, heldur hafa
skipin verið að stækka í
seinni tíð, orðið djúpristari.
í haust verða um 6000
fermetrar í götum malbikaðir,
2000 á hafnarsvæðinu og
3000-4000 á vegum kaup-
félagsins og einstaklinga.
Næsta vor verður síðan
afgangurinn tekinn, 12-
15000 fermetrar, og verða þá
allar helstu götur Hvamms-
tanga bundnar varanlegu
slitlagi.
—KTch?í!! hjDI— Bílaviðgerðir • Hjólbarðaverkstæði
Aöalgötu 26 Sauðárkróki RÉTTINGAR • SPRAUTUN
ALMENN RAFVERKTAKAÞJÓNUSTA
FRYSTI- OG KÆLIÞJÓNUSTA BÍLA- OG SKIPARAFMAGN r, t\ lí I bilflverlcstgdi r ■' | SU)MtJU*l ■- 0.7,
VÉLA- OG VERKFÆRAÞJÓNUSTA
SlMI: 95-35519* BlLASlMI: 985-31419 • FAX: 95-36019 SÆMUNDARGOTU - SlMI 35141