Feykir


Feykir - 28.08.1991, Qupperneq 3

Feykir - 28.08.1991, Qupperneq 3
29/1991 FEYKIR 3 Skagafjörður: Mikið ferðamanna- sumar að baki Um 3400 manns leituðu aðstoðar á leiðbeiningaþjónustu fyrir ferðamenn í Varmahlíð í sumar. Þjónustan var opin í 54 daga og voru því rúmlega 60 manns að jafnaði sem nýttu sér þjónustuna á degi hverjum. Talið er að 300-500 þúsund manns fari um gatnamótin í Varmahlíð yfir þrjá mestu ferðamánuði ársins. Nokkuð hefur dregið úr ferðamannastraumnum undan- farið og var leiðbeininga- þjónustunni lokað nú um helgina. Að mati Vigfúsar Vigfússonar ferðamálafull- trúa sýndi sig að full þörf er fyrir þessa þjónustu og má því reikna með að haldið verði áfram næsta sumar. Ferðamannastraumur hefur verið mikill um Skagafjörð í sumar. Stefnir í aðum 18000 manns heimsæki byggðasafnið í Glaumbæ eða fleiri en nokkru sinni fyrr. Þá hefur orðið talsverð aukning í gistingu hjá Aningu frá síðasta sumri. I júní varð um 50% aukningu að ræða, 20% í júlí og í ágúst var nýting heldur betri en í fyrra. Þá hefur meiri traffík verið hjá ferðaþjónustubændum í sumai' en fyrra. Feiðaþjónustuaðilar í Skaga- firði hafa fullan hug á lengingu ferðamannatímans og ýmsar hugmyndir hafa skotið þar upp kollinum. Tilraunir hafa verið gerðar með sölu á veiðileyfum í gæs og rjúpu og gæti sá útvegur átt eftir að vefja upp á sig. Þá hefur nýverið borist fyrir- spurn frá Sviss um bátsferðir í svartfuglaveiði. Glæsilegt knattspyrnumót varhaldið íSauðárkróki um helgina, pollamót svokallað Króksmót þar sem þátttakendur voru um 350. Auk norðvestursvæðisins komu til keppni lið frá Dalvík ogSnæfellsnesi;Stykkishólmi ogGrundarfirði. Siglfirðingar voru sigursælir á mótinu, lið KS sigraði í 6. og 7. flokki, en Tindastóll sigraði í 5. flokki. Hér sjást sigurreifir Tindastólsstrákar ásamt þjálfara sínum Birni Björnssyni. Fljótamenn urða sorp á Króknum Hreppsnefhd Fljótahrepps óskaði nýlega eftir að fá að urða sorp Norsk sumarhús á Blönduósi Trésmiðjan Stígandi hf. á Blönduósi hefur sett upp tvö orlofshús á bökkum Blöndu. Á því svæði, sem er við hliðina á tjaldsvæði bæjarins, hefur verið skipulögð 10 húsa byggð. Þessi hús eru fram- leidd í Noregi. Húsin þykja afar vel hönnuð og vönduð að allri gerð og fyrir 20 árum fengu þau fyrstu verðlaun í samkcppni sumarhúsa. Síðan hefur verksmiðjan framleitt fjölmörg sumarhús auk íbúðar- húsa og barnaheimila. Að sögn Grétars Guðmunds- sonar eins af eigendum Stíganda hf. hefur fyrirtækið fengið einkaleyfi á innflutningi þessara húsa til íslands og hugmyndin er að þau verði að meira eða minna leyti smíðuð hérlendis eftir norsku teikningunum. Grétar sagði að með því að setja fyrstu tvö húsin upp við hliðina á tjaldsvæði bæjarins væri annars vegar verið að auglýsa þessi góðu hús og hins vegar stuðla að uppbyggingu meiri ferðamannaaðstöðu á Blöndu- ósi. Þegar er farið að leigja húsin út og kvaðst Grétar fullviss að í framtíðinni yrðu þau mjög vinsæl jafnt sumar sem vetur. MÓ. á sorphaugum Sauðárkróks í Skarðslandi. Fljótamenn fóru þarna að fordæmi nokkurra sveitarfélaga í Skagafirði sem komið hafa sorpi til urðunar á sorphaugum Sauðárkróksbæjar. Þessi þróun bendir til að í framtíðinni verði allt sorp í Skagafirði urðað á einum stað. „Það hefur lengi verið vandamál hjá okkur yfir ferðamannatímann að losna við sorpið. Það vill t.d. verða ansi mikið sorp eftir 200 manna ættarmót, en það er að verða talsvert algengt að ættarmót séu haldin í skólanum á Sólgörðum eða í félagsheimilinu á Ketilási. Við ákváðum að prófa í sumar að flytja sorpið á Krókinn og það getur vel verið að við höldum áfram næsta sumar”, sagði Örn Þórarinsson oddviti Fljóta- hrepps. Ómar Kjartansson, er annst sorphirðuna á Sauðár- króki, sér um að bagga sorpið úr gámum út um héraðið og fiytja það á urðunarstað. Farið var að urða sorp í Skarðslandi í byrjun árins og lofar sú aðferð góðu Skid Row í Laugar- dalshöll Þungarokksunnendur á íslandi hafa fengið mikið fyrir sinn snúð síðustu misseri. Enn hafa þeir ástæðu til að kætast því bandaríska hljómsveitin Skid Row kemur hingað til lands í næstu viku og efnir til tvennra tónleika í Laugardalshöllinni dagana 6. og 7. september. Islenska stórsveitin GCD „hitar upp'' á báðum tónleikunum. Orðrómur er á kreiki þess efnis að Axl Rose, söngvari hljómsveitarinnar Guns'n Roses komi hingað til lands í slagtogi með Skid Row og taki jafnvel lagið á öðrum tónleikunum. Þessar sveitir leika saman á Wembley leikvanginum i Lundún- um á laugardag. Mikill oggóður vinskapur er á milli Sebastian Bach, söngvara Skid Row og Axl Rose. Ferill Skid Row hefur verið með ólíkindum. Sveitin sendi fyrir tveimur árum frá sér frumraun sína, Youth Gona Wild. Tvö laga þeirra plötu náðu hátt á vinsældalista austan hafs og vestan. Platan seldist í milljónum eintaka. (fréttatilkynning) SAMVINNUBÓKIN Ennþá hækkum við vextina. Nú eru nafnvextir 17% og ársávöxtun 17.72% INNIÁNSDEILD KAVPFÉIAGS SKAGFIRÐINGA

x

Feykir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.