Feykir


Feykir - 28.08.1991, Page 5

Feykir - 28.08.1991, Page 5
29/1991 FEYKIR 5 Hér er haldið niður í Staðarbjargarvík neðan Hofsóss þar sem gefur að líta sérkennilegt stuðlaberg. Jón Guðmundsson sveitarstjóri er í broddi fylkingar, þá Vigdís, Aðaheiður sýslumannsfrú, Hall- dór sýslumaður og Kornelíus forsetaritari. Hrauni. Skátafélagið Eylífs- búar gaf forsetanum við heimsóknina í skátaskálann Brekkusel, öll bindi Sögu Sauðárkróks eftir Kristmund Bjarnason. Frá Sauðárkróks- bæ fékk hún málverk afTinda- stóli eftir Sigurð Sigurðsson og héraðsnefndin gaf foisetan- um víkingaskip úr silfri. Skipið stendur á blágrýtis- steini sem sóttur var til Drangeyjar á Jónsmessunótt sl., skjaldarmerki Skagfirðinga er í seglinu, og var verkið unnið af Sigurði Þórólfssyni. Þá var foretinn leystur út með gjöfum við heimsókn í Hjúkmnar- og dvalarheimilið. Karlakórinn Heimii' reyndist sannspár þegar hann söng Skín við sólu á flugvellinum við komu forsetans. Helgin var ágætlega sólrík í Skaga- firði. Sumartíöin gefiö mönnum kraft til sálar og líkama Á Skagaströnd hefur í sumar verið gott tíðarfar sem annars staðar í okkar fagra landi. Það er því mestu öfugmæli í dag að segja að „illviðrin á argri strönd, illt sé við að búa” eins og tíundað er í vísunni frægu sem Guðmundur Einarsson sýsluskrifari orti forðum. En þó hefur seinni hluti vísunnnar trúlega skilað sér að lokum til raunveruleikans og er það vel. Einhver æðri hönd hefur verið okkur Skagstrending- um gæskurík á seinni árum og vonandi heldur áfram sú uppbygging sem sett hefur mark sitt á byggðina undir Borginni síðustu tvo ára- tugina. Ef nefna skal einstaka atburði síðustu mánuða, þá hafa framkvæmdir við höfnina verið í fullum gangi og eru þar ekki smáir hlutir að gerast. Áfram hefur verið haldið með það verkefni að steypa gangstéttir og hefur Helgi Gunnarsson annast það verk eins og í fyrra. Af verklegum framkvæmdum má líka nefna að lagt hefur verið bundið slitlag á Ránar- braut, Mánabraut og Hóla- nesveg auk lagfæringa á öðrum götum. Æskulýður bæjarins hefur verið virkjaður til starfa við margskonar umhverfisfegrun og almenna snyrtingu á ásýnd kauptúnsins. Hafa ýmsar ágætar valkyrjur verið í forystu fyrir vinnu- flokkum þessara ungu starfs- manna hreppsins. Má með sanni segja að þessi unglinga- vinna á vegum sveitarfélags- ins sé mjög jákvætt framtak, en oft má þó segja að aðhald og skipulag þurfi að vera meira. Staðhæfa má þó að ýmislegt sem dregið hefur Skagaströnd aftur úr hvað snertir þróun í almennu tilliti sé yfirstigið og ber að fagna því. Vökul hugsun og framfaravilji forsvarsmanna og allra íbúa Skagastrandar eru grundvallaratriði og ráða mestu um það hvernig tekst að halda á málum fyrirþetta aldagamla kauptún í nútíð og framtíð. Þar verður fyrst og fremst að jgilda máttur samstöðunnar. I skólamálum hefur verið þungt fyrir fæti. Vantaði marga kennara í vor og auk þess lét Páll Leó Jónsson af störfum sem skólastjóri við Höfðaskóla og tók við skólastjórastarfi á Blönduósi. Páll hefur gegnt starfi skólastjóra hér síðan 1986 og staðið sig með mikilli prýði. Er eftirsjá að þeim hjónum og fylgja þeim góðar óskir um gæfu og gengi í lífsins starfi. En maður kemur í manns stað. Ingibergur Guðmunds- son tekur nú við starfi skólastjóra við Höfðaskóla, en hann var áður yfirkennari við skólann. Er þar um reyndan og virtan skóla- mann að ræða. Vonir standa til að brátt leysist úr kennaramálum ogerreyndar ekki langur tími tilstefnu. En landsbyggðin öll þekkir vandamál af þessu tagi. Að síðustu vil ég geta þess að 9. júlí lést Jón Jónsson fyiTverandi framkvæmdastjóri Rækjuvinnslunnar, eftir langa og hetjulega baráttu við illvígan sjúkdóm. Jón var virtur og vinsæll maður í lífheimi Skagastrandar um áratugi. Hann sat í sveita- stjóm og gegndi margháttuðum trúnaðarstörfum og var maður sátta og samstöðu. Hann kom alls staðar fram til góðs. Útför hans fór fram frá Hólaneskirkju þann 19. júlí að viðstöddu miklu fjölmenni, sr. Hjálmar Jónsson jarðsöng og var athöfnin fögur og eftirminnileg. Fagurt veður var þennan dag og útsýn björt og skínandi yfir til Strandanna, þar sem Jón var fæddur og uppalinn. Það var í alla staði vel við hæfi. Jón hlýtur fyrstur manna leg í nýjum hluta Spákonufells- garðs og vígði sóknarprestur okkar sr. Egill Hallgrímsson garðinn við þessa jarðarför. Jón Jónsson var einn þeirra manna sem settu svip sinn á bæinn. Er ekki að efa að margir munu sakna þessa prúða og jákvæða manns. Hann var valmenni. Nú er langt liðið á sumar og brátt fer að hausta. Skagstrendingar mæta komandi vetri með þrótti og þolgæði, enda hefur sumartíðin gefið mönnum kraft til sálar og líkama. Brátt líður líka að því að nýja kirkjan verði vígð og þá geta margir sagt „Nú er mikið um dýrðir” eins og Árni Dalskeggur forðum. Sem betur fer er tilefnið annað og gleðilegra en þá var- Rúnar Kristjánsson. HROSS í ÓSKILUM! Jörp hryssa dökk í tagl og fax ca. 3ja til 4ravetra. Mark líkist hófbiti framan hægra, biti aftan vinstra. Frekari upplýsingar gefur Sveinn Guömundsson ív.s 95-35200 h.s 95-35192 ÍÞRÓTTASKÓR í SALINN VERÐ KR. 1989 SKAGFIRÐINGABÚÐ

x

Feykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.