Feykir - 09.10.1991, Blaðsíða 8
Oháö fréttablað á Noröurlandi vestra
9. október 1991, 35. tölublað 11. árgangur
Auglýsingar þurfa að berast eigi síðar
en um hádegi á fóstudögum
GunnarHelgason með aflífunarbvssuna sem hann þróaði.
Aflífunarbyssa þróuð á Króknum:
Komin í flest slátur-
hús hér á landi
Norðmenn keyptu rúmar 100
Fæstir vita að byssa sú sem
notuð er við aflífun á
sláturhúsum landsins er þróuð
á Sauðárkróki. Tilkoma hennar
lækkaði sláturkostnað nokkuð,
þar sem byssan er knúin
loftkerfi sláturhúsanna og
skot eru því óþörf. Norð-
menn hafa keypt rúmlega 100
slíkar byssur og líka þær vel.
Það var fyrir rúmum 10
árum sem Helgi heitinn Rafn
kaupfélagsstjóri var staddur
Ríkið kaupir
stjórnsýsluhúsið
Nýlega var gengið frá kaupum
ríksins á stjórnsýsluhúsinu á
Blönduósi. Kaupverðið er
rúmar 30 milljónir og greiðist
m.a. með rúmlega 14 milljón
króna skuld sýslusjóðs við
ríkisjóð.
Blönduósbær er með skrif-
stofur sínar í húsinu en hefur
árs umþóttunartíma til að
útvega nýtt húsnæði. Embætti
sýslumanns og lögregla verða í
húsinu áfram og einnig er
ráðgert að þarna verði til
húsa héraðsdómari.
úti í Þýskalandi og sá þá hvar
smiðir voru að negla klæðn-
ingu á stórbyggingu með
loftbyssu. Helga kom þá í
hug hvort ekki væri mögu-
leiki á að nota slíkt verkfæri
við slátrun, þar sem loftkerfi
vinnslurásar húsanna þýddi
að um beinan sparnað yrði að
ræða. Helgi fékk leyfi
framleiðanda loftbyssunnar
til að breyta henni eins og
þyrfti, með því skilyrði að
verksmiðjan fengi framleiðslu-
réttinn.
Gunnar Helgason fékk
síðan það verkefni vetrarpart
að útfæra byssuna þannig að
hún hentaði við slátrunina.
Gunnari virðist hafa tekist
mjög vel upp, byssan hefur
líkað vel og seldar hafa verið
rúmlega 130 hér innanlands,
en KS hefur einkaumboð á
sölu þeirra hér á landi.
Gunnar sagðist hafa heyrt að
síðasta haustið áður en
loftbyssan var tekin í
notkun, hafí skotkostnaður á
sláturhúsi KS verið 2,5
milljónir gamlar, og 60
milljónir hjá Sambandshús-
unum öllum.
Landsbankinn á Sauðárkróki
Afgreiðslutími útibúsins er alla
virka daga frá kl. 9.15 ■ 16.00
Sími 35353 ík
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna
Sauðkrækingar og sjálfsagt fleiri naga handarbökin:
Leðursófasett keypt eftir mynda-
lista, greidd að fullu en ókomin
Margir aðilar á Sauðárkróki
eru að verða mjög uggandi um
að leðursófasett sem þeir festu
kaup á í vor, er sölumenn frá
höfuðborgarsvæðinu voru hér
á ferðinni, muni ekki skila sér
á Krókinn. Kaupsamningar
voru flestir gerðir með
raðgreiðslum gegnum greiðslu-
kortafyrirtæki. Sófasettin áttu
samkvæmt samningi að koma
nokkrum vikum seinna. í
byrjun þessa mánaðar luku
nokkrir kaupenda greiðslum
sínum, en ennþá eru sófasettin
ókomin.
Sölumenn fyriitækisinsseldu
húsgögnin með því að
framvísa myndalista. Mun
þeim hafa orðið vel ágengt
síðustu daga maí sem þeir
voru hér á ferðinni enda verð
hagstæð. I kaupsamningi
voru ákvæði um að ef varan
yrði ekki komin til kaupand-
ans innan 120 daga gæti hann
sagt upp samningnum og
fengið endurgreitt. Þrátt fyrir
þetta ákvæði höfðu 6. júní
kaupsamningar verið seldir
gj'eiðslukoitafyriitækjum. Þegar
síðan húsgögnin komu ekki
og upphæðir raðsamningsins
tóku að birtast á greiðslu-
kortareikningnum, fór fólk-
inu að snúast hugur og
reyndu margir að afturkalla
greiðslurnar, en það er ekki
hægt samkvæmt reglum
greiðslukortafyrirtækjanna.
Að minnsta kosti sex
aðilar hafa snúið sér til
lögfræðings. Forsvarsmaður
fyrirtækisins syðra sagðist
vonast til að geta önglað
saman fyrir húsgögnunum
nú eftir helgina, en nokkuð
ljóst er að þau eru ókomin til
landsins. Einnig þykir full-
víst að um eignalausan aðila
sé að ræða.
Hjá neytendasamtökunum
fengust þær upplýsingar að
talsvert væri um vandræða-
mál af þessu tagi kæmu upp,
og lyktaði þeim á ýmsan hátt.
Full ástæða væri til að vara
fólk við að gera slíka
kaupsamninga svo framar-
lega sem það væri ekki í fullri
vissu að um traustan aðila
væri að ræða.
Hvammstanga-
hreppur kaupir
Ytri-Velli
Hvammstangahreppur festi
nýlega kaup á jörðinni Ytri-
Völlum í Kirkjuhvammshreppi.
Kaupverð er fjórar milljónir
og verður jörðin afhent
Hvammstangabúum til afnota
næsta vor.
Ytri-Vellir eru við inn-
keyrsluna í bæinn og liggja
að bæjarmörkum upp við
þjóðveg, þar sem Syðri-
Hvammur kemur á milli en
þar eru tjaldstæði og íþrótta-
leikvangur bæjarins. Að sögn
sveitarstjóra er hugmyndin
að nýta landið fyrir ýmsa
útvist, svo sem fyrir hesta-
menn.
feykjur
Heimir sellu-
bróðir íhaldsins
Það hefur væntanlega ekki
farið fram hjá neinum að nýr
maður tók við starfi útvarps-
stjóra á dögunum, séra
Heimir Steinsson fyiTv. þjóð-
garðsvörður á Þingvöllum.
Það vakti nokkra athygli
þegar Heimir var skipaður í
embættið og tekinn fram yfir
fólk sem þykir standa
framarlega í flokki mennta-
málaráðherra Olafs Einars-
sonar, samanber Ingu Jónu
Þórðardóttur.
Þetta barst í tal meðal
skólabræðra séra Heimis við
prstvígslu á Hólastað um
fyrri helgi. Séra Jóni Einars-
syni prófasti í Saurbæ á
Hvalfjarðarströnd og Bolla
Gústavssyni vígslubiskupi
fannst mikið um þá breytingu
sem orðið hefði hjá séra
Heimi frá því á námsárunum.
Hann hefði þá staðið vinstra
megin við þá báða í
pólitíkinni en væri nú orðinn
útvalinn af hægrimönnum.
Séra Hjálmari Jónssyni sem
heyrði á tal stéttarbræðra
sinna kom þá í hug þetta
vísukorn.
Gömlu vinirnir gerast hljóðir
og gefa upp vinstri trúna,
því séra Heimir ersellubróðir
sjálfstæðismanna núna.
Dýrinn boðinn
velkominn
Það má nærri geta að
hagyrðingar á Króknum hafi
brugðist við Hofsós-vísunni í
síðasta blaði, þar sem talað
var um að Gísli Hallldórsson
dýralæknir hefði verið óþjáll
við hreppsnefndina varðandi
búsetumálin. Eins og Feykir
hefur greint frá er Gísli nú í
ársleyfi frá dýralæknisstörfum
og starfar sem framkvæmda-
stjóri Slátursamlags Skag-
firðinga. Króksarinn var
galsafenginn í yrkingum til
að byrja með og hafði fyrri
partinn svona:
Gísli rollur gamlar sker
og gæðakjötið selur.
Sá sig svo um hönd með
þessa glannalegu byrjun og
ákvað að hafa vísuna heldur
þannig.
Gísli dýri á heima hér,
heldur Krókinn velur,
en Sigurpáll til sóma er,
sama hvar hann dvelur.
gædaframkollun
GÆÐAFRAMKOLLUM
BÓKABtJÐ
BKYNcJARS