Feykir - 16.10.1991, Page 1
rafsjá hf
RAFVERKTAKAR
SÉRVERSLUN
MEÐ RAFTÆKI
SÆMUNDARGÖTU 1
SAUÐÁRKRÓKI
Upprekstrarfélag Deildardals:
Samið um niðurskurð
fjár af 12 bæjum
113 milljóna
styrkur til
Miklalax
Byggðastofnun samþykkti á
fundi sínum í gær að veita
laxeldisstöðinni Miklalaxi í
Fljótum 113 milljóna styrk.
Þar af er niðurfelling á skuld
til stofnunarinnar er nemur 65
milljónum.
„Þetta er samkvæmt óskum
sem við settum fram fyrir ári
um leið og lögð var fram
rekstraráætlun fyrir þetta ár.
Menn sögðu þá að ef þetta
tækist hjá okkur kæmi þetta
vel til greina. Það sýndi sig
síðan að okkar áætlanir
stóðust og því kom þessi
afgreiðsla okkur ekkert á
óvart”, sagði Reynir Pálsson
framkvæmdastjóri Miklalax.
Hann sagði jafnframt að
afurðaverð væri það sem
erfiðast væri við að eiga um
þessar mundir, en við það
yrði ekki ráðið.
„Þetta var seigt og fast en
gekk þó”, sagði Jón Guðmunds-
son sveitarstjóri Hofshrepps í
gærkveldL Sauðfjárveikivarnir
funduðu með bændum í gærog
gengu frá samningum við 12
bæi í upprekstrarfélagi Deildar-
dals um niðurskurð á fjárstofni,
alls um 900 ljár. Bóndinn á
Grindum í Deildardal var sá
eini sem ekki fékkst til að
skera.
Það er vegna riðu er upp
kom á Melstað í Óslandshlíð
nýlega sem talið var skyn-
samlegast að fara í niður-
skurð á öllu svæðinu.
Fjárlaust verður því frá
Krossi í Óslandshlíð að
Brúarlandi í Deildardal
næstu tvo vetur. Jón Guðmunds-
son sagðist ekki geta sagt um
hvort bóndinn á Grindum
yrði skikkaður til að halda fé
sínu sér, sú krafa kæmi þá frá
sauðfjárveikivörnum.
Vegna fóðuröflunar í sumar
fá bændurnir 90% afurða-
bætur næsta haust miðað við
15 kílóa dilk, en hefðu ella
fengið 65%, eins og bætur til
þeirra verða haustið 1993.
Riða staðfest í Víðidal
Staðfest hefur verið riðuveiki í
sauðfé að Lækjarmóti í V.-
Hún. og sagðist Þórir ísólfs-
son bóndi þar reikna með að
allt fé verði skorið hjá honum
nú í haust vegna þessa.
Að sögn Benedikts Axels-
sonar formanns riðunefndar
í Þorkelshólshreppi er þetta
sjöundi bærinn sem skorið
verður niður á. Riðuveiki
hefur greinst á tveimur
bæjum í viðbót árin ’80 og
’81 en það var áður en sú
reglugerð sem nú er unnið
eftir tók gildi og þrátt fyrir
eftirlit með fé frá þeim
bæjum hefur aldrei greinst
kind með riðuveiki þaðan
síðan. Sagði hann þetta
tilfelli núna mikið áfall þar
sem nú er nokkuð liðið frá
síðasta tilfelli og menn voru
farnir að vona að búið væri
að komast fyrir riðuveiki í
hreppnum. p*
Marska
leigð eða
seld
Það er sjaldgæft að bæjarbúar komi og fylgist með umræðum
í bæjarstjórn. A síðasta bæjarstjórnarfundi brá svo við að
nokkrir mættu, var þar um að ræða starfsfólk Skjaldar,
enda voru málefni fyrirtækisins til umræðu í bæjarstjórn.
Itarleg umfjöllun er um þá umræðu í opnu blaðsins í dag.
Lauga á Kárastöðum
spáir góðum vetri
„Ég var einmitt að skoða
garnirnar. Mér sýniSt að þetta
verði enginn voðavetur. Það
verður gott framan af og
líklega ekki nema tveir
kuldakaflar í vetur, en þeir
verða ekki langir”, segir
Sigurlaug Jónasdóttir garna-
spákona á Kárastöðum í
Hegranesi. Oft hefur hún í
spádómum sínum farið nokkuð
nærri um vetrartíðina.
Það er því spurningin
hvort að spádómar Sigur-
laugar nái að hnekkja áliti
þeirra sem segja að harður
vetur sé í nánd, og færa þau
rök helst fyrir máli sínu að
þróun tíðarfars nú sé mjög
svipuð og fyrir u.þ.b. 90
árum, en þá féllu saman eitt
besta sumar og harðasti
vetur er um getur.
Sigurlaug telur að tíðarfar
verði gott fram að jólum, eigi
kannski eftir að grána í rót
þangað til, en ekkert sem orð
sé á gerandi. „Ætli megi svo
ekki búast við kuldakafla um
miðjan veturinn og svo
hvítnar sjálfsagt eitthvað um
páskana”, sagði Sigurlaug.
jÁkveðið var í síðustu viku að
leita eftir kaup- eða leigu-
tilboðum í rekstur Marska á
Skagaströnd og hætta rekstri
fyrirtækisins í núverandi mynd.
Framleiðsla Marska hefur
ætíð verið miðuð við útflutn-
ing, en markaðsprófanir ekki
skilað tilætluðum árangri.
„Þrátt fyrir að við næðum
ákveðnum árangri í saltfisk-
rúllunum á síðasta ári, þá var
framhaldið ekki samkvæmt
því og olli mönnum Von-
brigðum. Það virðast hins-
vegar ýmsir hafa áhuga fyrir
rekstrinum, og nokkrir aðilar
hafa nú þegar sett sig í
jSamband og sýnt áhuga.
‘Okkur þætti skiljanlega
mestur fengur í því ef
einhverjir heimaaðilar slægju
til. Hér geta hugsanlega verið
um þrjú til fjögur störf að
ræða”, sagði Adolf H.
Berndsen framkvæmdastjóri
Marska.
Skagstrendingur hf er einn
stærsti eignaraðili í Marska.
Framundan hjá því fyrirtæki
er mikil fjárfesting í kaupum
á nýju skipi og hefur það
væntanlega ráðið miklu um
að ekki þótti stætt á því
lengur að standa undir tapi á
rekstri Marska.
Skagaskeljarhúsið selt
Fyrir helgina var gengið frá næðið við Suðurbraut verður
sölu á Skagaskeljarhúsinu nýtt sem aðstaða fyrir útgerð
svokallaða á Hofsósi. Fisk- bátanna. Þá segir Uni að
veiðisjóður seldi þá hluta- jafnvel koma til greina að
félaginu Bergey á Hofsósi nýta þau tæki sem til eru og
húsið fyrir fjórar milljónir hefja skelvinnslu í húsinu,
króna. fáist vinnsluleyfið sem Fisk-
Bergey er í eigu Una iðjan fékk úthlutað á síðasta
Péturssonar sjómanns á vori.
Hofsósi og fjölskyldu. Hús-
—KXenflilt kpl— Bílaviðgerðir • Hjólbarðaverkstæði
Aðalgötu 26 Sauðárkróki RÉTTINGAR • SPRAUTUN
ALMENN RAFVERKTAKAÞJÓNUSTA FRYSTI- OG KÆLIÞJÓNUSTA « mC\ bilQvcrkstgdi ^ » | SAUOtStíOIU -- 0.7, SÆMUNDARGOTU - SlMI 35141
BÍLA- OG SKIPARAFMAGN
VÉLA- OG VERKFÆRAÞJÓNUSTA
SlMI: 95-35519» BlLASlMI: 985-31419 • FAX: 95-36019