Feykir - 16.10.1991, Blaðsíða 8
16. október 1991, 36. tölublað ll.árgangur
Auglýsingar þurfa að berast eigi síðar
en um hádegi á fóstudögum
Landsbankinn á Sauðárkróki
Afgreiðslutími útibúsins er alla
virka daga frá kl. 9.15 ■ 16.00
Sími 35353 ik
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna
Skagaströnd:
Nýja kirkjan vígð
á sunnudaginn
Undanfarin ár hefur ný kirkja
verið í smíðum á Skagaströnd
og hefur framkvæmdum miðað
allvel áfram. Kirkjan verður
vígð á sunnudaginn kemur 20.
október kl. 14 og mun herra
Olafur Skúlason biskup annast
það verk og eru allir
velkomnir til athafnarinnar.
Kirkjan er teiknuð af Ormari
Þór Guðmundssyni og Ornólfi
Hall hjá Arkitektastofunni í
Reykjavík, en verkinu hefur
Helgi Gunnarsson bygginga-
meistari á Skagaströnd stjómað.
Að sögn Lárusar Ægis
Guðmundssonar formanns
bygginganefndar kirkjunnar
hefur gengið tiltölulega vel
að fjármagna kirkjubygg-
inguna en lokaáfanginn við
smíðina er samt fjárhagslega
mjög erfiður. Nú þessa
dagana fer fram fjársöfnun
meðal íbúa kauptúnsins og
annarra velunnara kirkjunn-
ar þar sem safnað er fyrir
kaupum á 200 stólum. Það
er sá sætafjöldi sem kirkjan
tekur og kostar hver stóll
16000 krónur. Undirtektir
við söfnunina hafa verið
i i'
tjm*' '
jil™
góðar og m.a. margir
brottfluttir Skagstrendingar
gefið upphæðir sem nema
andvirði stóls eða stóla.
Við vígsluna mun kirkju-
kór Hólaneskirkju syngja við
undirleik JulianHewlett en
eftir hann verður flutt
frumsamið tónverk fyrir
orgel og flautu sem tileinkað
er kirkjunni. Þá mun Jóhanna
Linnet syngja einsöng og
Kristján Hjartarson flytja
frumort ljóð í tilefni dagsins.
Aðrir flytjendur tónlistar
verða Rosemary Hewlett og
Skarphéðinn Einarsson. Að
lokinni athöfn í kirkjunni
verður öllum viðstöddum
boðið í kaffiveislu í félags-
heimilinu Fellsborg þar sem
ýmis atriði verða á dagskrá.
Rjúpnaveiðitímabilið byrjað
(jMfy
‘etr 7 _
__
Ef marka má mynd Guðráðs á Beinakeldu er kannski eins gott að rjúpnastofninn er talinn í
lágmarki um þessar mundir. Myndin gæti heitið „martröð rjúpnaskyttunnar”, en veiðitíminn
hófst einmitt í gær og stendur til 20. desember.
Siglufjöröur áfram á 96
Siglufjörður og Fijótin verða
líklega áfram inn á svæði 96
þrátt fyrir að breyting verði á
simaleið til Siglufjarðar von
biáðar. Ljósleiðari hefur verið
lagður frá Siglufirði út á
Sauðanes, þaðan fer sam-
bandið með örbylgju til Feils í
feykjur
Þung sala í leörinu
Fréttin um leðursófasettin
í síðasta blaði vakti nokkra
athygli. I samtali í útvarpinu
kom fram að 33 aðilar í
Skagafjarðarsýslu hefðu fjár-
fest í húsgögnunum og því
miður er tómlegt um að litast
í flestum stofunum þeim
núna. Þá má búast við að
sölumanninum frá Framvís
hafi ekki gengið vel þar sem
hann var í söluferð úti á
landi, salan sjálfsagt verið
þung. Fólk mun einnig hafa
verið nokkuð tortryggið í
garð bóksala sem voru á
ferðinni á Króknum fyrir
helgina. Þá hefur vakið
athygli að húsgagnakaup-
menn hafa auglýst sófasett
grimmt undanfarna daga
sérstaklega leðursófasett.
Skagfirsk
hugkvæmni í
Yokohama
Ekki hefur verið meir um
annað talað á undaförnum
dögum en glæsilegan árangur
íslensku bridssveitarinnar á
heimsmeistaramótinu. Augu
manna hafa eðlilega beinst
að spilurunum, en einnig er
veil að gefa gaum þeim sem
lögðu drög að sagnakerfi því
er þeir notuðu. Þar á hlut að
máli Asgeir nokkur Asbjöms-
son kerfisfræðingur í Kópa-
vogi en hann er sonur
Ásbjörns Skarphéðinssonar
Pálssonar frá Gili. Það má
því með sanni segja að
klókindi Gilsaranna hafi
skilað íslensku sveitinni vel
áleiðis í Yokohama.
Höföaö til
skotveiöimanna
Eins og menn muna
fitjuðu Enghlíðingar upp á
þeirri nýbreytni í haust að
bjóða ferðalöngum í smölun
á stóði í Laxárdal. Eftir
eltingarleikinn við kúna frá
Fremsta-Gili nú fyrirhelgina
segja gámngarnir að hug-
myndirnar komi bókstaflega
í fangið á Enghlíðingum og
hrannist upp. Nú verði næst
höfðað til skotveiðimanna,
enda hafi markaður fyrir
nautgripakjöt dvínað undan-
farin misseri.
S1 éttuhiíð og þaðan í
Sauðárkróksstöðina.
Að sögn Ársæls Magnús-
sonar umdæmisstjóra Pósts
og síma var leitað eftir
umsögn Siglfirðinga um það
hvort þeir vildu flytjast yfir á
95 svæðið. Bæjarstjórn Siglu-
fjarðar óskaði eftir að vera
áfram á 96 svæðinu, enda
hefðu bæjarbúar mun meiri
viðskipti við Akureyri en
Sauðárkrók, í gegnum útibú
KEA á Siglufirði.
Ársæll sagði að trúlega
verði farið að óskum Siglfirð-
inga þrátt fyrir að Fljóta-
menn hefðu líklega kosið að
hafa það á hinn veginn vegna
viðskipta sinna við Sauðár-
krók. Siglufjörður og Fljótin
eru á gjaldsvæði tvö, þannig
að þeir þurfa að greiða minna
fyrir símtöl á 95 svæðið en
aðrir notendur utan þess
svæðis. Sauðkrækingar hafa
óskað eftir því að skattstofan
verði sett á grænt númer.
Þess má geta að gamla
símaleiðin til Siglufjarðar var
um Grímsey til Húsavíkur.
Bráðlega verður hafist handa
við gerð nýrrar stafrænnar
símstöðvar á Siglufirði og er
gert ráð fyrir að því verki
ljúki með vorinu.
Götulýsing
við Víðihlíð
Við Víðihlíð í Víðidal er nú
búið að setja upp götulýsingu.
Nær iýsingin allt frá Birkihlíð
og út fyrir Víðigerði.
Að sögn Ólafs B. Óskars-
sonar oddvita nam heildar-
kostnaður við uppsetning-
una um 2.3 milljónum
króna. Fjárveiting var til
verksins af vegafé þessa árs
um 1 milljón króna en
afganginn greiddi hreppur-
inn í bili. Sótt verður um
fjárveitingu fyrir því sem á
vantar og sagðist Ólafur
vonast eftir góðum undir-
tektum við þeirri umleitan
þar sem um öryggissjónar-
mið væri að ræða vegna
umferðar í kringum sölu-
skálann, verkstæðið, félags-
heimilið og byggðarkjarnann
sem myndast hefurá þessum
stað. Sagði hann mesta mildi
að ekki hefðu orðið slys á
þessum stað t.d. þegar
skemmtanir eru í félags-
heimilinu, allt óupplýst og
umferðarhraðinn eins og
hann er þarna um veginn.
Vonast hann einnig til að
þessi framkvæmd megi verða
til þess að lífga upp á staðinn
og gera hann enn meira
aðlaðándi en fyrr.
EA.
GÆOAFRAMKOLLUN
CÆDAFRAMKÖLLUM
BÓKABÚÐ
BRYIÆJARS