Feykir


Feykir - 16.10.1991, Blaðsíða 4

Feykir - 16.10.1991, Blaðsíða 4
4 FEYKIR 36/1991 Umræður um Skjaldarmálið í bæjarstjórn Sauðárkróks: „Menn ættu að varast að stilla málinu upp sem pólitískum hanaslag" - En málið þrælpólitískt engu að síður Stefán Logi Haraldsson í ræðustól. Umdeildasta mál sem komið hefur á borð bæjarstjórnar Sauðárkróks á þessu ári er eílaust Skjaldarmálið svokallaða. Deilan snýst um þá ákvörðun stjórnarSkjaldar að leita eftir samvinnu eða samruna við fyrirtæki utan héraðs, þ.e. Þormóð ramma á Siglufirði. Sjónarmið minnihluta bæjar- stjórnar og fulltrúa bæjarins í stjórn Skjaldar er að fyrst hefði átt að leita eftir samningum við heimaaðila. Málið er greinilega mjög pólitískt, enda forsaga atvinnu- mála í fiskvinnslu og útgerð á Sauðárkróki því miður með því marki brennd, þó svo að samvinna Fiskiðjunnar og Skjaldar í gegun US á sínum tíma hafi að margra dómi tekist vel. Hinsvegar setja menn þróun sameiningar- mála Skjaldar nú í samband við það sem gerðist fyrir nokkrum misserum þegar reynt var að sameina alla Fiskvinnslu og útgerð við Skagafjörð undir einn hatt. Skjaldarmenn treystu sér ekki í það samstarf, hafa trúlega óttast pólitíska yfir- burði framsóknar í því fyrirtæki og leituðu frekar til aðila utan héraðs til að styrkja fyrirtækið. Það er því auðvelt að gera sér í hugarlund, að sameininga- spor á fund Fiskiðjumanna nú hefðu orðið mörgum Skjaldarmanninum um megn. Bókanir á víxl Miklar umræður urðu um Skjaldarmálið á síðasta bæjar- stjórnarfundi, og nokkrir bæjarráðsfundir þar á undan höfðu einnig farið í að ræða málið. Þar höfðu bókanirnar gengið á vígsl. Anna Kristín Gunnarsdóttir (G) hóf þær, af þeirri ástæðu sem fram kemur í bókun að ekki var orðið við málaleitan hennar að fulltrúi Fiskiðjunnar/ Skagfirðings yrði kallaður til viðræðna við ráðið og forráðamenn Skjaldar, þar sem aðilar gætu skipst á skoðunum um viðhorf sín til samvinnu eða samruna ftsk- vinnslu og útgerðar í héraði. Þá lýsti Anna Kristín því yfir að hún teldi skyldu bæjarfull- trúa að stuðla að samvinnu eða samruna fyrirtækja í útgerð og fiskvinnslu innan héraðs, þar sem það mundi vafalítið styrkja heildarstöðu veiða og vinnslu í héraðinu. Staða fyrirtækjanna samein- aðra yrði allt önnur og betri gagnvart samvinnu við fyrir- tæki utan héraðs, heldur en eins lítils fyrirtækis, þar sem heimamenn eiga að auki minnihluta. Ásökun um trúnaöarrof Á næsta fundi bæjarráðs þrem dögum síðar lögðu bæjarráðsmennirnir Björn Sigurbjörnsson, Stefán Logi Haraldsson og Knútur Aadne- gaard síðan fram bókun þar sem þeir töldu alrangt að bæjarráð hafi ekki talið ástæðu til að verða við óskum Önnu Kristínar, hinsvegar hafi bæjarráð ekki haft tök á að kalla fulltrúa Fiskiðjunnar/ Skagfirðings fyrirvaralaust á fundinn. Þá telji bæjarráð að með bókun sinni hafi Anna Kristín rofið þann trúnað sem farið var fram á að um málið ríkti. í ljósi þess sé óhjákvæmilegt annað en létta trúnaði af málinu og hafi fengist samþykki þeirra aðila sem óskuðu trúnaðar- ins. Þessi bókun leiddi til annarrar bókunar þar sem Anna Kristín m.a. neitaði því að hafa rofið trúnað með bókun sinni, þar sem ekkert kæmi þar fram sem ekki hafði áður komið í fréttum eða væri á allra vitorði. Bærinn dragi hlutafé sitt út úr fyrirtækinu Björn Sigurbjörnsson (A) formaður bæjarráðs gat þess er hann kynnti fundargerðir ráðsins, að bæjarráð hefði markað þá stefnu á fundi 26. september að ekki kæmi til greina að fyrirtækið eða fiskkvóti þess flyttist úr bænum. Sú niðurstaða hefði verið kynnt á hluthafafundi 30. september. Sagði Björn að þar hafi öllum bæjarfull- trúum gefist tækifæri til að kynna sín viðhorf til málsins. Þar hafi verið rétti vettvangur- inn, rétta stundin. Anna Kristín spurði hvort almenningur mætti ekki vita um hvað væri í húfi. ,,Það heyrist á máli manna að eðlilegasta skipan mála væri að forráðamenn Fiskiðjunnar/ Skagfirðings og Skjaldar ræddu saman og það er svo sannarlega mín skoðun. Ég var spurð að því hvort ég teldi meiri ástæðu til að fulltrúi Skagfirðings mætti á fundinn en fulltrúi annarra viðræðuaðila. Þeirri spurningu hefur ekki verið svarað hvers vegna var ekki fyrst farið í viðræður við heimamenn áður en var farið að ræða við utanhéraðsmenn. Sauðárkróksbær á 18.7% í Skildi. Ég hélt að öllum væri ljóst að tilgangur bæjarins með að eiga hlutafé í fyrirtækjum væri að tryggja atvinnulíf á staðnum. Sýnist okkur hinsvegar að þannig sé staðið að verki að atvinnulífi í bænum sé hætt þá beri okkur að draga hlutaféð úr rekstri viðkomandi fyrirtækis. Áform um skuttogarakaup Sauðárkróksbær á einnig hlutafé í Skagfirðingi og það er því beint hagsmunamál okkar að rekstur þess fyrirtækis sé sem allra bestur. Mér er kunnugt um að forsvarsmenn Fiskiðjunnar/ Skagfirðings telja samein- ingu við Skjöld gefa stórkost- lega vaxtar- og hagræðingar- möguleika. Síðan í okt. sl. hafa þeir lagt niður fyrir sér ýmsar leiðir, þar á meðal kaup á frystitogara, sem yrði einhver mesta vítamínssprauta fyrir skagfirskt atvinnulíf lengi. Þeir telja sig ekki hafa bolmagn einir og hafa þess vegna ekki aðhafst frekar. Umræddur frystitogari er ein ástæða fyrir því að ekki má láta hlutina bíða alltof lengi, því hann stendur ekki til boða endalaust. Rekstur Fiskiðjunnar/Skag- firðings hefur stórbatað á sama tíma og staða Skjaldar er heldur lakari en í fyna, þó er 22% niðurskurður i þorski ekki farinn að hafa áhrif. Ársreikn- ingar sýna að fyrir hverjar 100 milljónir skilaði Skjöldur 9 milljónum upp í vexti og afskriftir, á meðan Fiskiðjan skilaði 18 af hverjum 100. Fiskiðjan hefur helmingi meira út úr hverju kílói hráefnis heldur en Skjöldur. Þetta þýðir 20-30 millj. sparnað árlega í þessum þætti einum við sameiningu. Stórkostlegir möguleikar héraösins Þá er ótalinn sparnaður í samrekstri í útgerð. Launa- tekjur áhafnar frystitogara væru 150-60 milljónir, sem svaraði til 2-3 steinullarverk- smiðjum, eða tveim þriðju af öllum launagreiðslum KS. Og ekki er verið að tala um að segja einni einustu manneskju upp ifískvinnslunni. Sameing fyrirtækjanna gæfi stórkost- lega möguleika fyrir héraðið. Fulltrúi bæjarins í stjórn Skjaldar hefur ávallt haldið því fram að það beri að leita eftir sameiningu fyrirtækja á staðnum áður en annað er farið, en hefurgreinilega ekki mátt við margnum. Það er skylda okkar að stuðla að sem farsælastri uppbyggingu atvinnulífs á staðnum, síðan getum við litið til granna okkar hinum megin við fjöllin. Þingmaður Sjálfstæðisflokksins getur fært rök fyrir því að hann hafi skyldum að gegna við aðra íbúa kjördæmisins en það

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.