Feykir - 23.10.1991, Side 1
rafsjá hf
RAFVERKTAKAR
SÉRVERSLUN
MEÐ RAFTÆKI
SÆMUNDARGÖTU 1
SAUÐÁRKRÓKI
í lok héraðsfundar Skagaljarðarprófastsdæmis um fyrri helgi voru vígslubiskupshjónin Sigurður
Guðmundsson og Aðalbjörg Halldórsdóttir kvödd formlega. I hófinu sem fram fór á Löngumýri
að viðstöddum prestum prófastsdæmisins, formönnum sóknarnefnda og mökum þeirra var
afhent gjöf frá prófastsdæminu með þakklæti fyrir samstarfið. Hjálmar Jónsson prófastur
afhendir hér þeim Sigurði og Aðalbjörgu áletraðan veggplatta gerðan af keramiklistakoiyj^j
Onnu Sigríði Hróðmarsdóttur í Varmahlíð.
Fjölmenni við vígslu nýju
kirkjunnar á Skagaströnd
Það var hátíðarsvipur yfir
Skagaströnd á sunnudaginn
þegar nýja kirkjan var vígð að
viðstöddu fjölmenni. Fullt var
út úr dyrum og þurftu margir
|
Hólaneskirkja hin nýja,
helgidómur sem nýtast mun
vel í safnaðarstarfi í fram-
tíðinni.
að standa, er álitið að um 400
manns hafi verið viðstaddir
hátíðardagskrána sem stóð í
tvo tíma. Að henni lokinni var
öllum boðið til kaffisamsætis í
félagsheimilinu Fellsborg.
„Það ríkir ánægja og gleði
hér á staðnum með kirkjuna.
Fólki finnst hafa tekist vel til
bæði úti og inni, hér hafi
tekist að skapa einstakan
helgidóm sem nýtast muni
vel í safnarstarfi í framtíðinni”,
sagði séra Egill Hallgrímsson
sóknarprestur á Skagaströnd.
Það var biskupinn herra
Olafur Skúlason sem vígði
kirkjuna og annaðist altaris-
þjónustu ásamt sóknarpresti
sr. Agli. Allir prestar Húna-
vatnsprófastsdæmis voru við-
staddir og þrír prestar sem
þjónað hafa áður á Skaga-
strönd: séra Pétur Þ. Ingjalds-
son, Oddur Einarsson og
Ægir Sigurgeirsson. Þá voru
Bolli Gústafsson núverandi
vígslubiskup og Sigurður
Guðmundsson fyrrverandi
vígslubiskup viðstaddir at-
höfnina.
Tónlistarflutningur var mikilL
Kirkjukór Hólaneskirkju söng
ásamt félögum úr kirkju-
kórnum á Blönduósi við
undirleik Julian Hewlett, en
eftir hann var flutt frum-
samið tónverk fyrir orgel og
flautu tileinkað kirkjunni.
Rosmery Hewlett og Skarp-
héðinn Einarsson tóku einnig
þátt í tónlistarflutningi.
Jóhanna Linnet söng ein-
söng og Kristján Hjartarson
flutti hátíðarljóð er ort var í
tilefni vígslu kirkjunnar.
Innfjaröarrækjan a Skagafirði:
Minna magn en
undanfarin ár
Leyfö 400 tonn
Rækjumiðin á Skagafirði voru
rannsökuð í síðustu viku. I ljós
kom að heldur minna er um
rækju nú en undanfarin ár en
hinsvegar er hún ágætlega stór
víðast hvar. Lagt er til að
leyfð verði veiði 400 tonna á
vertíðinni í vetur. A þeirri
síðustu var leyft að veiða 500
tonn.
Fjórir bátar verða á
rækjunni í vetur og eru að
hefja veiðar. Það eru Jökull,
Sandvíkin og Þórir frá
Sauðárkróki og Berghildur
i stað 500 í fyrra
frá Hofsósi.
Jónbjörn Pálsson fiski-
fræðingur hjá hafrannsóknar-
stofnun var um borð í Jökli
þegar miðin voru rannsökuð.
Jónbjörn segir frekari upp-
lýsingar fáist með veiði-
skýrslum og eins og vanalega
verði leyfi endurskoðuð í
janúar. Hann átti samt ekki
von á því að bætt yrði við
kvótann á þessari vertíð eins
og stundum hefur gerst, t.d. í
fyrra þegar kvótinn var
aukinn úr 300 í 500 tonn.
Sauðárkrókur:
Búfjárhald bannað í
bænum eftir tvö ár
Bæjarráð Sauðárkróks hefur
fjallað allnokkuð um búijár-
hald í bænum á fundum sínum
undanfarið. Nú virðist Ijóst að
það bannað á deiliskipulögð-
um íbúðar- og atvinnusvæðum
í bænum eftir 1. október 1993,
búfjárhald á Móunum ofan
Nafa verði leyft áfram fyrst
um sinn. Jarðeigna- og
búfjárnefnd setur sig ekki á
móti þessum ráðahag.
Bera átti upp tillögu þessa
efnist á bæjarstjórnarfundi í
gær og bentu líkur til að hún
yrði samþykkt. Bæjarsjóður
hefur varið drjúgum upp-
hæðum til kaupa á húsum og
lendum tómstundabænda í
bænum á undanförnum
árum. Ljóst er að enn verður
að opna pyngjuna á næstu
árum þar sem býlin eru
talsvert mörg neðan Nafa,
þrátt fyrir að hestamenn hafi
verið að fiytja sig niður á
Flæðarnar á undanförnum
árum.
Samkvæmt forðagæslu-
skýrslum voru á síðasta vetri
á Sauðárkróki 473 hross og
257 sauðkindur.
HCTen9í»l Iií>-
Aðalgötu 26 Sauðárkróki
ALMENN RAFVERKTAKAÞJÓNUSTA
FRYSTl- OG KÆLIÞJÓNUSTA
BÍLA- OG SKIPARAFMAGN
VÉLA- OG VERKFÆRAÞJÓNUSTA
SÍMI: 95-35519- BlLASlMI: 985-31419 • FAX: 95-36019
Bílaviðgerðir • Hjólbarðaverkstæði
RÉTTINGAR • SPRAUTUN
jQKlbiloverhlgdi
SÆMUNDARGÖTU - SÍMI 35141