Feykir - 23.10.1991, Side 8
Oháð fréttablað á Norðurlandi vestra
23. október 1991, 37. tölublað 11. árgangur
STERKUR AUGLYSINGAMIDILL!
Landsbankinn á Sauðárkróki
Afgreiðslutími útibúsins er alia
virka daga frá kl. 9.15 -16.00
Sími 35353 ii
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna
Þeir Kjartan og Stefán Friðrik hefðu betur mátt láta rafgeymana vera, því þeir fengu sýru á sig
og gjöreyðilögðu buxurnar. En verður það til frambúðar á Sauðárkróki að rafgeymar séu
geymdir á opnu svæði?
Rafgeymahaugur á opnu svæði
Getur reynst börnum stórhættulegir
Safnhaugur með rafgeymum
á opnu svæði í iðnaðarhverfinu
á Sauðárkróki freistaði tveggja
9 ára drengja í síðustu viku.
Samkvæmt upplýsingum heil-
brigðisfulltrúa hefði átt að
vera búið að tæma sýruna af
geymunum, engu að síður
komu strákarnir heim i
gjörónýtum buxum þar sem
sýra hafði brennt göt á þær.
Um er að ræða stærðar
haug á vegum Sauðárkróks-
bæjar þar sem geymum er
safnað saman til endurvinnslu
fyrir Stálfélagið. Gámur er á
svæðinu en ennþá hafa
geymarnir ekki verið færðir í
hann. Sveinn Guðmundsson
heilbrigðisfulltrúi sagðist hafa
lagt til að safnhaugur fyrir
rafeyma yrðu á brotajárns-
haugunum við Gönguskarðsá,
þar með yrði þessi mál leyst
fyrir allt héraðið. En ekki
hefði verið farið að hans
óskum. „Þarna hefur það
gerst sem við óttuðumst að
krakkar kæmust í þetta. Og
sýra í augun er það sem við
erum langhræddastir við”,
sagði Sveinn.
Sveinn sagðist hafa sent
viðkomandi aðilum á svæð-
inu bréf í byrjun september,
er hefur að geyma leiðbein-
ingar um förgun rafgeyma,
svo sem að sýru verði tappað
af áðurenþeim verði komiðá
safnhauga. Sýran verði sett í
plasttunnur og hún hlutleyst
með vítissóda.
Sveinn telur tvíbent að
girða svæði sem þessi af, ef
sýran sé fjarlægð af geymun-
um megi þessvegna geyma þá
í opnum gámi, því þá sé
einungis um það að ræða að
málmarnir sem í þeim eru
geti mengað umhverftð.
1100 fjar skoriö í Víðidal
í framhaldi af staðfestingu á
riðuveiki í sauðfé að Lækjar-
móti í V.-Hún. var ákveðið að
slátra öllu fé á tveimur bæjum
í viðbót þ.e. að Þórukoti og
Víðidalstungu. Er þarna um
að ræða alls um 1100 kindur.
Samningar þar að lútandi
hafa verið undirritaðir af
viðkomandi framleiðendum
og Kjartani Blöndal fh.
Sauðfjárveikivarna og á slátrun
að hafa farið fram þegarþetta
birtist. Að sögn Benedikts
Axelssonar formanns riðu-
nefndar mun frumubreytinga
hafa orðið vart í heilasýnum
úr fé frá Víðidalstungu þó
um staðfestingu á riðuveiki
hafi ekki verið að ræða.
Astæðan mun hinsvegar vera
sú að þessir bæirstanda tveir
eftir inni á milli bæja þar sem
riðuveiki hefur geisað og
skorið hefur verið á. Með
þessu gefst tækifæri til að
hreinsa þetta svæði þannig að
minni hætta ætti að vera á að
riða komi upp á bæjum sem
eru að fá fé aftur.
Benedikt vill ráðleggja
bændum að halda fé sínu
heima eins og hægt er og
forðast fjárkaup á milli bæja í
hreppnum. Bendir hann á að
menn ættu frekar að nota sér
sæðingar eða fá hrúta af
Ströndum, heldur en kaupa
hrúta í nágrenninu.
EA.
Jón Egill í þekktum
listaháskóla í USA
Ungur Sauðkrækingur Jón Egill
Bragason hóf í haust nám við
listaháskólann í Norður-Karólínu-
fylki í Bandaríkjunum, en skólinn
er meðal virtustu danslistaskóla í
heiminum. Jón Egill stundar einn
Norðurlandabúa nám við skólann.
Gífurlegur fjöldi sækir um
námsvist í skólanum á hverju
ári. Nemendur þurfa að þreyta
inntökupróf sem felast í gerð og
flutningi dansa. Þetta inntöku-
próf stóðst Jón með glæsibrag.
Fullnaðarnám við skólann tekur
fjögur ár. Kennd er tjáning,
hvernig á að semja dansa og
dansatriði og ýmislegt fleira.
Nemendur við listaháskólann í
Norður-Karólínu eru milli 700
og 800, þar af nokkrir
Evrópubúar.
Skagaströnd:
Niöurrömmun stál-
þils langt komin
Hamarshögg hafa dunið á
Skagaströnd undanfarið, og
þung eru höggin þau eins og
Hólamanna forðum. Það er
nefnilega verið að reka niður
stálþil við suðausturgarðinn,
rúmlega 90 metra breitt og er
reiknað með að verkið verði
langt komið í lok þessarar
viku.
Suðausturgarðurinn var
lagður í sumar og myndar
hann vörn fyrir gömlu
löndunarbryggjuna, þar sem
stöðugt skolaði út uppfyll-
ingu og er bryggjan orðin
mjög illa farin. Niðurrekstur
stálþilsins er samvinna aðila
frá hafnarmálum og heima-
manna. Byrjað var að reka
niður fyrir tæpum hálfum
mánuði og er nú verið að
ramma við garðinn innan-
verðan.
feykjur
Kindur til gróöur-
verndar og
gatnageröar
I skemmtisiglingu kring-
um Vestmannaeyjar með
fulltrúa bæja- og héraðs-
fréttablaða í tengslum við
aðalfund samtakanna um
síðustu helgi, vakti mikla
lukku þegar Hermann Einars-
son fréttahaukur í Eyjum brá
sér niður í stýrishús og út á
þilfarið hljómaði söngur:
„Balihæ, balihæ....” óður til
draumaeyjunnar úr þekktri
ævintýramynd. Draumaeyjan
hans Hermanns er Bjarnarey.
Þangað út fluttu eyjarskeggjar
kindur fyrir 10 árum þegar
gróðureyðing blasti við vegna
óræktar, svo sem sinu sem
fúnaði og blés upp. „Eftir
að rollurnar komu þarna út
hefur gróðurfar á eynni
gjörbreyst, og það er hið
mesta rugl að kindin valdi
gróðureyðingu. Hér í eyjum
notum við rollurnar einkum
til tveggja nytsamlegrahluta,
til gróðurverndar og gatna-
gerðar”, sagði Hermann.
„Stelliö" varö eftir
Það er húmor í Eyja-
mönnum eins og sést vel á
sögu sem varð til í kringum
gosið.
Þegar gamla fólkið á
elliheimilinu var flutt til
meginlandsins, komust þeir
á fastalandinu að því að það
væri þá ekkert skrök að
Vestmannaeyingar töluðu allt
öðruvísi en aðrir Islendingar.
Það væri gjörsamlega von-
laust að skilja þetta gamla
fólk úr Eyjum. Þegar betur
var að gáð reyndist skýringin
á þessu sú að í flýtinum hefðu
fölsku tennurnar gleymst á
elliheimilinu.
Unglingspilti var falið að
nálgast gómana og senda þá
með fyrstu ferð. Það gekk
eftir en eitthvað hafði
unglingurinn ekki náð boðun-
um fullkomlega þvt einn stór
plastpoki geymdi alla góm-
ana. Nú var farið að máta og
tók það sinn tíma, en að
lokum þótti hver gómur
henta kjafti.
Svo undarlega vildi til að
maður einn sem ekki hafði
sagt orð í ein 15 ár fékk nú
málið svo að um munaði, en
konu hans sem hafði talað
fyrir þau bæði varð orðfátt.
Gosið virtis hafa haft mikil
áhrif á gamala fólkið. Þegar
maðurinn hafði talað stans-
laust í tvo tíma, heyrðist
loksins í gömlu hans. „Nú
skil ég. Þú hefur fengið
góminn minn”.
GÆDAFRAMKOLLUN N
GÆDAFRAMKOLLUN
BÓKABÚÐ
BRYKUARS