Feykir


Feykir - 11.12.1991, Blaðsíða 4

Feykir - 11.12.1991, Blaðsíða 4
4 FEYKIR 44/1991 Vinafundir Kafli úr nýútkominni bók Guðmundar L. Friðfinnssonar um þjóðlíf og þjóðhætti Það var raunar með ólíkindum, hve menn virtust hafa rúman tíma til eins og annars á þessum árum, þrátt fyrir frumstæð og seinvirk tæki til vinnubragða. Ég man ekki betur en langalgengast væri að gestur kæmi inn hjá okkur, þægi góðgerðir og gæfi sér tíma til að segja fréttir og spjalla, nema þá helst um sláttinn, sem kallaður var bjargræðistími. Fólk fór milli bæja án mikilla erinda. Stundum var þetta orðað svo, einkum af konum: ”Ég rölti nú þetta til skemmtunar.” Rosknir menn, sem lítið höfðu umleikis, ferðuðust oft talsvert, gistu og voru einn eða fleiri daga um kyrrt hjá vinum og kunningjum. Bændur áttu til að heimsækja nágranna, jafnvel vera nætursakir. Ég man, að Jóhannes Steingríms- son á Silfrastöðum var einu sinni nótt hjá okkur. Ekki man ég fyrir víst, hvort hann var eitthvað að gera fyrir pabba, hugsanlega skatt- skýrslu. Þó svo hafi verið, þykir mér ólíklegt, að það hafi tekið tvo daga. Ég var nokkuð farinn að stálpast og fullur af uppreisn og breyt- ingahug, eins og oftast vill vera um æskufólk, á raunar svo að vera. Skilaboöum komið milli bæja Þegar háttað var um kvöldið, var spjallað að venju, og voru þjóðfélagsmál og mál dagsins til umræðu. Heldur fannst strákn- um þeir bændurnir íhalds- samir og þröngsýnir, og fó'r ég að gefa orð í, var víst ómyrkur í máli og líklega fulllangt fyrir utan og ofan jarðskorpuna og veruleikann, enda alla tíð loftkastala- maður og nýjungagjarn. Hélt ég heilmikla tölu, þóttist mælskur og tala af andagift og skynsemi. En þegar ég hafði rutt úr mér og taldi mig albúinn til rökræðna, brá svo við, að allt datt í dúnalogn. Menn sneru sér til veggjar og fóru að sofa. Þetta var mér þvílík ráðning, að við liggur, að ég hefði heldur viljað, að mér hefði beinlínis verið skipað að þegja. Oft þurfti að koma skilaboðum milli bæja eða fara með bréf. Þetta gat verið tilvalið tækifæri að lyfta sér upp og hitta nágranna. Stundum kom þetta í hlut barna og var þeim aldurs- hópi kærkomin tilbreyting. Venjan var sú að láta barnið hafa nokkrum sinnum yfir það sem átti að skila. Byrjunin var oftast á þessa leið:”Pabbi bað að heilsa...”eða ”mamma bað að heilsa og bað þig...”eða”... bað mig að segja þér...” eða”... skila til þín...” Svo var maður minntur á að heilsa og kveðja, þakka fyrir góðgerðir, taka ofan húfuna ef komið var inn, og vera stilltur. ”Lexíuna” þuldi barnið nokkrum sinnum á leiðinni til að muna og fara rétt með. Þegar heim kom, var oftast spurt, hvað fólkið hefði verið að gera og hvaða veitingar maður fékk og svo framvegis. Stóri seöilHnn Egilsá er ekki í þjóðbraut, en vegna ferðamáta þeirrar tíðar var auðvelt fyrir þá sem leið áttu um þjóðveginn í Silfrastaðafjalli að bregða sér yfir að Egilsá, hvort heldur var á sumri eða vetri, ef Norðuráin var lítil. Því var það talsvert algengt, að ferðamenn kæmu við, einkum þeir sem eitthvað voru kunnugir. Sumir gistu. Kann og að hafa ráðið einhverju, að foreldrar mínir voru báðir mjög gestrisnir, og svo var aldrei seldur greiði, en pyngjur flestra heldur léttar á þeim árum. Ég heyrði frá því sagt, að maður nokkur hefði ferðast alla leið austan af landi, fótgangandi og tekið upp fimmtíu króna seðil hvar- vetna, er hann gisti eða þá greiða, trúlega valið sér gististaði af fátæklegri gerð- inni, því enginn gat skipt. Loks kom maður þessi í Húsey í Vallhólmi og þurfti að fá ferju vestur yfir Húseyjarkvísl. Á þeim árum hefur líklega annast þau störf Jón Ásgrímsson, sem þar bjó lengi, efnaður vel og talinn peningamaður. Ekki var neitt því til fyrirstöðu að ferja yfir kvíslina. Tók Jón bátkænu sína og réri yfir. Þegar ferðalangur hafði fast land undir fótum, tók hann upp seðil sinn að vanda og spurði, hvort Jón gæti skipt. Ekki taldi. Húseyjarbóndi nein tormerki á því, tók við seðlinum en kvaðst þurfa að skreppa heim til að skipta. Ekki man ég, hvort ferju- tollurinn var fimmtán aurar eða enn minna. Jón er sagður hafa verið hæglátur maður og fór víst ekki rasandi að neinu, hefur því sjálfsagt gefið sér rúman tíma enda snerpu spölur frá Húsey vestur að kvísl. Ferðalangur varð því að bíða drjúglengi, þar til Jón kom til baka með skiptimyntina. Jón Ásgríms- son bjó í Húsey 1888 til 1918 eða 19. Góövinir foreldra minna Að sjálfsögðu áttu foreldrar mínir frændlið og vini norðan Öxnadalsheiðar. I daglegu tali hét það ”fyrir norðan” og ”að fara norður” eða ”koma að norðan”. Það mátti því heita árvisst, að eitthvað af þessu fólki kæmi í heimsókn og gisti að minnsta kosti eina nótt. Þetta var ávallt mikil viðburður og gleðilegur. Þá var tjaldað öllu því besta af matfögum, sem til var á heimilinu, og oftast hafðir uppi stórir hlátrar með viðeigandi líkamsbeygjum og tilburðum. Einn þessara manna var Tómas Tómasson, kenndur oftast við Hraun í Öxnadal, bjó líka á Egilsá næst á undan foreldrum mínum, varð kyrr í hús- mennsku næsta ár ásamt konu sinni, Jóhönnu Sigur- geirsdóttur, systur Stefáns bónda í Hvammi á Hjaltadal. Þessi hjón urðu góðvinir foreldra minna, og hélst sú vinátta alla stund síðan. Tómas var hestamaður, glaðvær og kunni jafnan frá mörgu að segja, enda vel greindur, hann hló skemmti- lega og hristist þá allur, drakk mikið kafft sem hann kældi í undirskál. Hann var talsvert lesinn og ættfróður. Jafnan var hann snauður af veraldarauði enda búmaður heldur lítill. Sökum greindar var honum eðlislægt að stílfæra sögur sínar og stundaði þá einnig smá- skammtalækningar til að gefa frísklegri blæ. Steinstaöa-Stebbi Stefán Ámason var alltíður gestur, oftast kenndur við Steinsstaði, erfði líka þá jörð og bjó þar um skeið. Stefán var gerólíkur þeim Tómasi og Stefáni frænda. Hann var frekar alvörumaður, gat þó verið launfyndinn. Ekki var hann ræðinn, hugsaði áður en hann talaði. Hann var ágætlega greindur, víðlesinn og fróður um ættir og önnur þjóðfræði. Hann var Möðru- vellingur að mennt, stór vexti, fríður sýnum, með mikið alskegg, fölleitur með hátt enni, höfðinglegur á að líta. Hann var dóttursonur Stefáns alþingismanns á Steinsstöðum og erfði tals- verðar eignir, sem flestar urðu honum lausar í hendi utan neftóbaksponta mikil og fagurlega silfurbúin með fangamarki föður hans, Árna á Reistará Hallgríms- sonar. Sloppiö af hné kennarans I bernsku minni voru eignir Stefáns gengnar til þurrðar og hann talsvert í ferðalögum milli vina og kunningja, enda við aldur og ekki hneigður til vinnu. Hann var stundum um tíma hjá okkur á Egilsá á vetrum og kenndi mér að stafa. Þá tók hann mig á hné sér og hafði bandprjón til að fylgja línum. En sökum hæglætis og lítillar löngunar til vinnu var hann svefnugur og dottaði tíðum í stólnum. Jafnframt hætti bandprjónn- inn að hlýða sínu þýðingar- mikla hlutverki og tók að síga stefnulaust. Þá vissi nemandinn, að ekki þurfti hann lengur að þreskja við að segja a, b, d, sætti jafnvel lagi að sleppa af hné kennarans. Alltaf var mér vel við Stefán, þó hafði hann gaman af að stríða mér svolítið. „Mundi minn, sómamaður- inn”, sagði Stefán stundum, hneggjaði og horfði stríðnis- lega á mig. Sökum æsku og fávísi fannst mér þetta hlyti að vera einhver niðrun. Þó þetta væri skýrt fyrir mér, var það tónninn og hneggjandi hláturinn, sem ég þoldi ekki. Aldrei spilaði Stefán við mig en tók vanalega einhverja fornsögu, oft Landnámu, sem ég held þó að hann hafi kunnað nær því utanbókar. Stefán var einn þessara sérstæðu manna, sem til- heyra fortíðinni og ekki sjást lengur. Það var eitt af lífsláni okkar á Egilsá að eiga góða nágranna, sem voru vinir okkar, enda veit ég ekki annað en foreldrar mínir væru vinsæl. Um síðustu aldamót urðu allnokkrir búferlaflutningar úr Eyjafjarðarsýslu til Skaga- fjarðar. Mun veðursæld, einkum hér i dölum fram, hafa ráðið þar mestu um. Flest voru þetta bændur, sem dugur og framtak var í. Einn þessara manna var Einar í Flatatungu og verður hans nú getið í næsta kafla. En vegna vináttu og talsverðra samskipta verður vart hjá því komist að geta föður míns lítils háttar í leiðinni.

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.