Feykir - 11.12.1991, Blaðsíða 5
44/1991 FEYKIR 5
Gísli Pálsson bóndi á Hofi í Vatnsdal er kunnur fyrir
að halda sér framarlega þegar nýungar eru á
ferðinni. Það er alltaf eitthvað að brjótast í höfðinu á
Gísla. Sitthverju hefur hann fundið upp á til
búdrýginda um ævina og að sögn kunnugra virðist
það svo magnað, að Gísli virðist hafa lag á að fá
peninga út úr því sem öðrum verður að bullandi tapi.
Þannig var Gísli t.d. á sínum tíma brautryðjandi í
fiskeldi og loðdýrarækt. Nýjasta aukabúgreinin hans
er bókaútgáfa og frá forlaginu á Hofi koma hvorki
fleiri né færri en fimm bækur á þessu ári.
Gísli segist hafa dottið inn
í bókaútgáfuna fyrir tilviljun
og sé nú farinn að sjá að það
sé grundvöllur fyrir þessu.
„Þannig var að bróðir minn
Páll S. Pálsson var langt
komin með að skrifa bók um
Laxá á Ásum þegar hann
lést. Sonur hans Ivarlauk við
bókina og langði til að koma
henni út. Hann hafði samband
við mig og ég tók að mér að
gefa bókina út með honum. I
fyrra réðst ég síðan í bók um
Vatnsdalsá. Gaf hana út á
ensku lika og veiðifélagið
styrkti útgáfuna veglega,
enda bókin góð auglýsing til
innlendra og erlendra veiði-
manna. Fjórtán kunnir veiði-
menn skrifðu um ána og
íjöldi fallegra litmynda birtist”,
sagði Gísli um tilurð útgáf-
unnar.
Myndabók um Hóla
í ár kemur t.d. frá forlaginu á
Hofi bókin „Biskupsstóll og
bændaskóli”. Þetta er mjög
fallega myndskreytt bók um
Hóla í Hjaltadal. Rúmlega
70 litmyndir prýða bókina
sem segir sögu skólans og
biskupsstólsins frá fornu og
ítarleg umfjöllun er um þá
gífurlegu uppbyggingu sem
orðið hefur á Hólastað frá
því rétt fyrir 1980. Það er
Pétur Bjarnason sem skrifar
texta bókarinnar. Gísli segir
Pétur hafa átt hugmyndina
að bókinni, en báðir eru þeir
8 JAFNAR
VAXTALA USAR
GREIÐSLUR
AF ÖLLUM
HÚSGÖGNUM
FRAMAÐ JÓLUM
h Anr x
búðin þín!
Bóndi í bókaútgáfu
Fimm bækur frá forlaginu á Hofi í ár
vel kunnir Hólastað og eiga
taugar þangað.
Gísli er formaður skóla-
nefndar og einnig formaður
stjórnar hitaveitu Hjaltadals.
Hann var líka fyrsti stjórnar-
formaður Hólalax og for-
maður bygginganefndar lax-
eldisstöðvarinnar. Pétur Bjama-
son var fyrsti framkvæmda-
stjóri Hólalax og starfaði
mikið að kennslu og félags-
málum á Hólum í nokkur ár.
Margar myndanna í bókinni
á Jón Friðbjörnsson fyrrum
smíðakennari á Hólum. Þær
eru af fólki, hestum, úr
skólalífinu, frá búskap og
mannvirkjum o.fl. Þessi bók
ætti að vera kærkomin þeim
fjölmörgu sem hafa tengst
Hólum vináttuböndum.
Bækur sem fara
aldrei á útsölu
Nafnabók Hermanns Páls-
sonar er vinsæl bók sem
komið hefur út tvisvar og
selst upp. Gísli gefur út
þriðju útgáfu þessa bókar
bróður síns nú. Hermann
hefur fyrir aldurssakir nýlátið af
starfi doktors í norrænu við
Edinborgarháskóla, kennir
því ekki Jóni Bjarnasyni
skólastjóra á Hólum í vetur,
en þeir eru sagðir sjást
nokkuð oft.
Hinar bækurnar þrjár frá
Gísla eru sjálfsævisaga Bjöms
Eysteinssonar frá Grímstungu,
afa Björns frá Löngumýri og
föður Lárusar í Grímstungu.
Þetta er einnig þriðja útgáfa
þessarar vinsælu bókar. Fyrr
á árinu kom út niðjatal
Björns Eysteinssonar. Nú er
einnig að koma út hjá Gísla
niðjatal Árna á Neðri-Fitjum
sem margir kannast við.
„Þetta eru bækur sem
seljast, þó sumar séu þungar í
sölu. Þær fara aldrei á útsölu.
Þetta eru vandaðar bækur,
og t.d. Hólabókin og
bækurnar um árnar sem ég
hef gefið út mjög dýrar í
framleiðslu. Það gera lit-
myndirnar”.
Gísli segir vissulega nokkra
áhættu fylgja þessu. Hann
leggi þó ekki verulegar
upphæðir undir og sofi
ágætlega á nóttunni. En er
ástæða til að ætla að afkoma
bænda í dag leyfi þeim að
leika sér með peninga.
Hvernig gengur að fjár-
magna útgáfuna? Gísli segir
að það gangi þokkalega, því
ekki þurfi að staðgreiða
kostnaðinn við útgáfuna,
menn sýni biðlund og svo sé verðum ekki að tala um það
nóg af bönkunum. En hvað seinna. Það er ekki tímabært
skyldi Gísli svo taka sér fyrir að skýra frá því nú”.
hendur næst? „Ætli við
Kaup á hlutabréfum
Hlutabréfasjóðs
Norðurlands hf.
- er vís leið til að lækka skatlana
Kaup á hlutabréfum fyrir 100.000 kr.
geta lækkaö skatta einstaklings um
40.000 krónur. (Fyrir hjón er upphæöin
200.000 kr. og skattaafslátturinn
80.000 kr.)
Söluaðilar á Norðurlandi eru:
Hvammstangi:
Blönduós:
Skagaströnd:
Sauöárkrókur:
Siglufjöröur:
Ólafsfjöröur:
Dalvík:
Hrísey:
Árskógsströnd:
Akureyri:
Grenivík:
S-Þingeyjars:
Kópasken
Raufarhöfn:
Þórshöfn:
Útboðslýsing
Sparisjóður Vestur-Húnavatnssýslu
Búnaðarbanki íslands
íslandsbanki hf.
Búnaðarbanki íslands
íslandsbanki hf.
Landsbanki íslands
Búnaðarbanki íslands
Landsbanki íslands.
íslandsbanki hf.
Sparisjóður Siglufjarðar
Sparisjóður Ólafsfjarðar
Sparisjóður Svarfdæla
Sparisjóður Hríseyjar
Sparisjóður Árskógsstrandar
Búnaðarbanki íslands
Fjárfestingafélag íslands hf.
íslandsbanki hf. N
Kaupþing Norðurlands hf.
Landsbanki íslands
Sparisjóður Akureyrar & Arnarneshr.
Sparisjóður Glæsibæjarhrepps.
Sparisjóður Höfðhverfinga
íslandsbanki hf. Húsavík
Landsbanki íslands Húsavík
Sparisjóður Suður-Þingeyinga
Sparisjóður Mývetninga
Landsbanki íslands
Landsbanki íslands
Sparisjóður Þórshafnar og nágr.
liggur frammi hjá söluaðilum.
Hlutabréfasjóður
Norðurlands hf.,
Ráðhústorgl 1,600 Akureyrl
Síml: 96-24700, Fax: 96-11235