Feykir - 11.12.1991, Page 6
6 FEYKIR 44/1991
Hvaö finnst þér um
útvarp frá bæjarstjórn?
Ingibjörg Vigfúsdóttir bæjar-
starfsmaður:
Mér líkaði mjög vel. Þetta
voru mjög líflegar umræður,
eins og væri komið að
kosningum og dálítið mál-
efnalegt rifrildi. Það er
nauðsynlegt að gefa fólki
kost á að fylgjast með þessu.
Ég ætla að gera það svo
framarlega að ég hafi tök á
því.
porour Stetansson Marbæli:
Ég hafði gaman af þessu.
Náði reyndar ekki alveg
byrjuninni en þetta virtust
fjörugar umræður. Það er
nauðsynlegt fyrir okkur í
sveitinni að fylgjast með
þessu líka. Við þurfum svo
mikið að sækja á Krókinn.
Útvarpað var frá bæjar-
stjórnarfundi á Sauðárkróki
í fyrsta skipti þriðjudaginn 3.
desembersl., en meiningin er
að útvarpað verði úr bæjar-
stjórn til loka febrúar til að
byrja með. Þá verði metið
hvort ástæða þyki að halda
útsendingum áfarm.
Strax daginn eftir fundinn
brá blaðamaður Feykis undir
sig betri fætinum til að hitta
fólk að máli og spyrja
hvernig því líkaði útvarp úr
bæjarstjórn og hvort það
hefði hlustað á fyrstu
útsendinguna?
ívar Antonsson fyrrverandi
póstur:
Það er ágætt að útvarpa
þessu, en mér fannst nú ekki
mikið til fundarins koma.
Ekki svoleiðis. Ég skildi ekki
almennilega af hverju þeir
voru að hallmæla Onnu
Kristínu svona mikið. Attaði
mig ekki alveg á hvað hún
hafði gert, því þeir veittust
ansi mikið að henni.
Signý Bjarnadóttir prestsfrú:
Þetta er ágætt, mjög gott að
gefa fólki kost á að fylgjast
með hvað er að gerast í
•bænum. Ég hlustaði reyndar
aðeins smástund á fundinn í
gær og reikna með að hlusta
annað slagið, þegar tóm
gefst.
Þorbjöm Ámason fyrrv. bæjar-
fulltrúi:
Mér líkar vel að farið sé að
útvarpa frá bæjarstjórnar-
fundum og ég trúi ekki öðru
en bSjarbúar notfæri sér að
fylgjast með. Þetta hefði átt
að vera byrjað fyrir löngu,
því ekki mætir fólk til að
hlýða á bæjarstjórnarfundi
eins og þú veist.
Matthildur Ingólfsdóttir:
Ég hlustaði ekki á fundinn.
Þetta er ágætt fyrir þá sem
langar til að fylgjast með því
sem gerist í bæjarstjórn. Það
er aldrei að vita nema að ég
hlusti þegar tími gefst.
Tindastólsmenn lögðu KR-inga
Tindastólsmenn náðu sínum
besta leik í Japisdeild
körfuboltans í vetur, þegar
þeir lögðu KR-inga að velli í
mjög skemmtilegum leik í
Síkinu á sunnudagskvöldið.
„Nú setjum við stefnuna á
úrslitakeppnina”, sagði Valur
Ingimundarson annar tveggja
þjálfara Tindastóls að leik
lokntim, en baráttan kcmur til
með að standa milli KR og
Tindastóls um úrslitasæti.
Tindastóll hafði 8 stig fyrir
leiki gærdagsins og KR 14.
Fyrri hálfleikur var mjög
SriUBmiKRQKSBHrtR
H/ERSVETmrHEHH
Hefopnaö ueitingahús uiö Aöalgötu
15, Sauöárkróki og her þaö nafniö...
Pfll MNtlMDtlR
restaurant
Virka daga og sunnudaga
OPIÐ FRÁ KL. 12.00-23.30
Föstudaga og laugardaga 12.00 - 2.30
Viö leggjum áherslu á...
• GÓÐANMAT
• GÓÐA PJÓNCISTCI og...
• NOTALEGA STEMNINGtl
vertd vzLKorrnm
Pálmi Þóröarson - Sími 36161
hraður og skemmtilegur.
Heimamenn leiddu yfirleitt.
Aðeins einu sinni komust
gestirnir yfir, 33:32, og
staðan í hálfleik var 38:33.
Tindastólsmenn komu síðan
mjög grimmir til seinni
hálfleiks og náðu smám
saman að auka forskotið.
Mátti sjá tölur eins og 57:49,
60:50 og 72:56. Sá munur
hélst að mestu til loka og
sigur Tindastóls varöruggur,
89:75.
Tindastólsmenn léku mjög
góðan varnarleik allan tímann
og voru skynsamir í sóknar-
leiknum í seinni hálfleiknum
þegar hægðist á leiknum. Að
þessu sinni kom enginn
slæmur kafli í leik liðsins,
sem er mjög óvanalegt. Ef
Tindastóll leikur svona vel
það sem eftir er vetrar er
stórafreka að vænta.
Pétur Guðmundsson lék
mjög vel í leiknum og virðist
smollinn inn í leikaðferðimar.
Þá áttu Ivan, Valur, Einarog
Haraldur mjög góðan leik.
Sá síðasttaldi „brilleraði” í
seinni hálfleiknum. Skoraði
þá öll stig sín, þar á meðal
þrjár þriggja stiga körfur og
skotnýtingin var góð. Pétur
og Ivan skoruðu 20 stig hvor,
Valur 18, Einar 14, Haraldur
13 og þeir Björn Sigtryggs-
son og Hinrik Gunnarsson 2
hvor.
7\ iólanmtiuu!
Svínnkjöt í heilum ojg húlfum skrokkum, unniö
eftir óskum vióskiptavinu.
A.t.h. Síðasta vika til að panta fyrir jól.
•Hangikjót nýreykt.
•Birkireykt úrvalskjöt á sérstöku
tilboðsverði fram aðjólum.
Kynninpf á hangikjöti í K.S. Varmahlíð
föstudaginn 13. 12. frá kl. 15.00 og í
Skagfirðingabúð laugardaginn 14.12.
jrá kl. 14.00 Laufabrauðfrá Sauðárkróksbakaríi
verður með hangikjötinu á báðum stöðum.
n ioíatimm
Léttreyktir lambahryggir
London lamb • Helgarlamb
VERSLANIR OG KJÖTVINNSLA K.S. SÍMI: 35200