Feykir - 29.01.1992, Qupperneq 3
4/1992 FEYKIR 3
Samvinnubókin
• Nafnvextir 9,5% • Ársávöxtun 9,73%
•Raunávöxtun Samvinnubókar áríö 1991 var 7,64%
INNLÁNSDEILD KAUPFÉLAQS SKAQFIRÐINQA
Lomber spilaður af krafti í Staðarskála.
Húnvetningar spila lomber
Það var glatt á hjalla í
Vertshúsinu á Hvammstanga
þann 17. janúar sl. þegar
lomberspilarar mættu þar til
að spila. Félagar úr austur-
húnvetnska lomberklúhhnum
Spaddan voru mættir til að
spila við þá vestur-húnvetnsku
félaga sem þessa íþrótt
stunda.
I V.-Hún. er enginn
lomberklúbbur en segja má
að Kristján Isfeld sé óform-
legur formaður því hann
hefur tekið að sér að leiða
félagsskapinn.
í samtali við Kristján kom
fram að upphafið að þessum
spilakvöldum á Vertshúsinu
hafi verið strax á fyrsta
starfsári þessþegarlngvarog
Ólafur Jakopssynir og Þór-
hallur Jónsson komu að máli
við hann og báðu hann að
koma þessari spilamennsku
á. Kom þá þónokkuð affólki
til að fylgjast með og var
jafnan glatt á hjalla eins og
venja er þegar lomber er
spilaður. Þetta hefur svo
haldið áfram siðan og er nú
yfirleitt byrjað að spila eftir
sláturtíð og spilað fram að
sumarmálum, á u.þ.b. hálfs-
mánaðar fresti, þó með
hléum um jól og þorra.
Almennt er aðsókn ágæt á
þessi spilakvöld, spilað á
fjórum til fimm borðum en
Kristján sagðist þó hafa
saknað að undanfömu gamalla
og góðra lomberspilara úr
Miðfirði sem sér f^ndist
mikill sjónarsviptir að. Aform-
uð er heimsókn í Austur-
Húnavatnssýsluna seinna í
vetur til að endurgjalda
heimsóknina og er vonast til
að þetta verði kveikjan að
enn frekari kynningu milli
sýslnanna. ‘
Línuveiðum sem stundaðar
hafa verið frá Hofsósi í haust
hefur að mestu verið hætt. Af
fjórum bátum sem voru á línu
fyrir áramótin er einungis
einn ennþá á veiðum. Eins og i
fyrra voru gæftir fremur
lélegar en fiskaðist ágætlega
þegar gaf.
Að sögn Einars Svans-
sonar framkvæmdastjóra Físk-
iðjunar gengu veiðarnar
mjög svipað og í fyrra. Að
vísu var aflamagn heldur
minna þar sem bátarnir voru
minni núna. í fyrra munaði
miklu um stóra dekkbátinn,
Ólaf Þorsteins. Línubeitninga-
menn voru því heldur færri
núna þetta haustið. í fyrra
voru þeir yfirleitt 10 sem
beittu.
Þrátt fyrir fremur trega
veiði togara og siglingar
þeirra, hefur tekist að halda
uppi fullri vinnu í frysti-
húsum Fiskiðjunnar. Hrá-
efnismagn í mánuðinum er
meira að segja heldur meira
en í janúar í fyrra.
Skagfirðingasveit:
Stofnar unglingasveit
Opið hús á laugardaginn
í tilefni 60 ára afmælis
Skagfirðingasveitar, vill stjóm
slysavarnardeildarinnar bjóða
öllum félögum og velunnurum
að þiggja veitingar og skoða
hús og tæki á laugardaginn
kemur 1. febrúarfrákl. 15-17.
Þennan sama dag verður
stofnuð unglingadeild Skag-
firðingasveitar fyrir 14-17 ára
aldurshóp, með það að
markmiði að veita unglingum
fræðslu um slysavarnir og
björgunarmál á sem víðtækustum
vettvangi.
Þann 1. febrúar 1932 var
stofnuð á Sauðárkróki Slysa-
varnardeildin Skagfirðinga-
sveit. Fyrsti formaður var
Jónas Kristjánsson læknir en
með honum í stjórn voru
kosnir Haraldur Júlíusson
kaupmaður og Hallgrímur
Jónsson verslunarmaður.
Eitt af fyrstu verkum
sveitarinnar var að setja upp
björgunarhring og krók-
stjaka á bryggju bæjarins. Af
fundargerðum að dæma
hefur sveitin látið hin
margvíslegustu mál til sín
taka, svo sem öryggi manna
við uppskipun og sundkennslu
sjómanna svo eitthvað sé
nefnt. Frá 1951 til 1955 lá
starf að mestu niðri, en þá er
starfið endurreist og jafn-
framt sett á stofn björgunar-
sveit, sem skiptist í sjó- og
fjallasveit. 1968 eignaðist
sveitin fyrst bíl til afnota við
leitar- og björgunarstörf, og
hefur tækjakostur smátt og
smátt verið að aukast síðan.
Er sveitin nú allvel búin
tækjum til björgunará sjó og
landi.
Stendur til að
girða Vatns-
skaiðið í suma
„Við höfum verið að skoða þessi
mál og rætt við landeigendur.
Vonir standa til að hægt verði að
fara í þetta í sumar, en það verður
ekki Ijóst fyrr en undir vorið”,
sagði Jónas Snæbjörnsson um-
dæmisstjóri. Talsverð pressa
hefur verið á vegagerðina að
girða á Vatnsskarðinu til að
hindra umferð hrossa um veginn.
Jónas segir að menn hafi
hugsað sér að koma upp
rafmagnsgirðingu frá girðingar-
endunum Skagafjarðarmegin,
meðfram bænum Vatnshlíð og
alla leið niður að Bólstaðarhlíð.
Mikið hefur verið um umferðar-
óhöpp á þessum slóðum að
vetrinum. A síðasta ári var t.d.
fimm sinnum ekið á hross á
Vatnsskarði, þar af voru fjögur
óhappanna Húnavatnssýslu-
megin, þ.e. vestan sýslumark-
anna við Myllulæk. Að sögn
lögreglu voru í öll skiptin hross
frá Vatnshlíð sem urðu fyrir
bílunum.
Hofsós:
Hætt að veiða
á línuna