Feykir


Feykir - 28.10.1992, Qupperneq 2

Feykir - 28.10.1992, Qupperneq 2
2 FEYKIR 37/1992 IFEYKIIR . Óháö fréttabtaö á Noröurlandi vestra Kemur út á miövikudögum vikulega. Útgefandi: Feykir hf. Skrifstofa: Aöalgata 2, Sauöárkróki. Póstfang: Pósthólf 4, 550 Sauöárkróki. Símar: 95-35757 og 95-36703 Fax 95-36162. Ritstjóri: Þórhallur Ásmunds- son. Fréttaritarar: Magnús Ólafsson A,- Flúnavatnssýslu og Eggert Antonsson V- Flúnavatnssýslu. Auglýsingastjóri: Flólmfríöur Fljaltadóttir. Blaöstjórn: Jón F. Hjartarson, sr. Hjálmar Jónsson, Sæmundur Hermannsson, Sigurður Ágústsson og Stefán Árnason. Áskriftarverö 110 krónur hvert tölublaö. ^Lausasöluverö 120 krónur. Umbrot Feykir. 'Setning og prentun: Sást sf. Feykir á aöild aö Samtökum bæja- og héraösfréttablaða. Á hverjum miðvikudegi... Sameining sveitafélaga á næsta leyti Nokkuð ljóst er að sameiningarmál sveitarfélaga verða í brennidepli á næstu misserum og árum, og sýnt að sveitarfélögum mun fækka talsvert og þau stækka, aðeins er spurning hversu stór skref verða tekin í þessari sameiningu til að byrja með. Stjórnvöld liafa lagt all nokkra áherslu á sameiningarmálin á undan- förnum árum, og trúlega hefur verið stór þáttur i þeim aðgerðum, verka- skiptingarlög ríkis og sveitarfélaga sem tóku gildi um næstsíðustu áramót. Með þeim og enn nýrri lögum, svo sem lögum um þjónustu við fatlaða, eru lagðar auknar skyldur á sveitarfélögin, skyldur sem mörgum minni hreppanna er fjárhagslega gjörsamlega ómögulegt að standa undir. Sveitarfélög hafa á seinni árum átt með sér aukna samvinnu um ýmsa málaflokka í gegnum héraðsnefndir. Þá hefur komið til tals að stofna byggðasamlög um stærri mál. Nærri lá að stofnað yrði byggðasamlag um sorphirðu um allt Norðurland vestra fyrir nokkrum árum, og nú hefur verið nefnt að nauðsynlegt sé að stofna byggðasamlög í kringum þjónustu við fatlaða. Hvort samkomulag tækist um slíkt byggðasamlag skal ósagt látið, hinsvegar liggur nokkuð ljóst fyrir að litlu sveitarfélögunum verður engan veginn kleift að veita þá þjónustu sem krafist er í dag. Sameining og stækkun sveitarfélaga verður eflaust til þess að unnt er að veita íbúunum aukna og bætta þjónustu. Bættar samgöngur hafa orðið til þess að færa sveitasamfélög nær hver öðru. Við lagningu bundins slitlags er t.d. þjóðvegurinn í gegnum Húnaþing meira en helmingi fljótfarnari en hann var fyrr á öldinni. í Skagafirði eiga sér einnig stað stöðugar vegabætur sem flýta fyrir umferð. Þannig stefnir í að leiðin frá Sauðárkróki til Hofsóss verði aðeins 20 mínútna akstur eftir 2-3 ár. Við það ættu möguleikar Hofsósinga á nýtingu fasteigna sinna í framtíðinni að aukast, að ekki sé talað um ef Skagafjörður verður orðið eitt sveitar- félag áður en mjög langt líður, og Húnavatnssýslur annað. Flugeldasýning í Síkinu Sigur á lokasekúndu gegn Kindur langt að komnar Ahorfcndur sem troðfylltu Síkið í gærkvcldi, urðu gjörsamlega trylltir að lcik loknum.þustu inn á viillinn og hylltu Tindastólsmcnn cftir frxkilcgan og sætan sigur þeirra á Skallagrími. Valur Ingimundarson þjálfari Tinda- stóls var hctja liðsins, cn hann skoraði sigurstigið með þriggja stiga körfu langt fyrir utan punktalinu cr lokaflautið gall. Úrslit lciksins eru hrcint ótrúleg miðað við það að Tindastólsmenn voru 12 stigum undir þcgartæpar tvær mínútur voru til lciksloka. Heimamenn byrjuðu leikinn nijög vel dyggilega studdir af áhorfendum og skoruðu fjórar fyrstu körfurnar. Síðan mátti sjá tölur eins og 15:7, 21:12. 31:23. 35:26 og staðan í leikhléi var 43:31 fyrir Tindatól. Barátta heimamanna vargeysigóð í fyrri hálfleiknum, vörnin sterk og til marks uni það hirtu þeir 14 varnarfráköst á móti 4gestanna. Skallagrímsmenn komu grimmir til seinni hálfleiks og sýndu að það var engin tilviljun að þeir unnu þrjá fyrstu leikina i deildinni. Nú snérist dæmið við og gestirnir voru sterkari á vörninni. Þannig breyttist staðan við gífurlega baráttu þeirra úr 37:51 í 64:64 og síðan í 78:66 Skallagrítni í vil þegarkomið var aðeins fram yfir miðjan seinni hálfleik. Gestirnir virtust hafa leikinn í hendi sér og það var sama hvað Tindastólsmenn reyndu, þeir komust lítið áleiðis gegn sterkri vörn Skallagríms með Alexander Ermolinskij i banastuði. Þegar tæpar tvær mínútur voru til leiksloka var staðan 87:75 fyrir Skallagrím, en þá gerðist það að Tindastólsmenn stálu boltanum i tvígang, röðuðu tveim þriggja stiga skotum ofan í og skorðu tvö stig að auki. Staðan var allt í cinu orðin 83:87 og leikurinn galop- inn að nýju. En gestirnir svöruðu með þriggja stiga körfu og virtust ætla að klára leikinn. Þegar 8 sekúntur voru til leiksloka var staðan 94:89 fyrir Skallagrím og þeir misstu boltann. Valur Ingimundarson var fljótur að nýta sér það. fór í þriggja stiga skot og hitti. Aftur settu Tindastólsmenn upp pressu- vörn og náðu boltanum þegar þrjár sekúntur voru eftir. Staðan 92:94 og Tindastólsmenn tóku leikhlé. Innkastið var tekið langt fyrir aftan miðju og menn ætluðu að aðeins í NBA væri hægt að færa sér svo skamman tíma í nyt. Valur fékk boltann óð I skyndi fram yfir miðju og skoraði er lokaflautið gaII. 95:94 fyrir Tindastól og áhorfendur hafa örugglega aldrei upplifað æðislegri lokamínútur i Síkinu. Valur Ingimundar vareins og áður segir hetja liðsins og Kris Moore átti sinn langbesta leik á heimavelli i vetur. Aðrir stóðu einnig vel vel l'yrir sínu: Ingvar Skallagrími og Páll héldu spilinu vel gangandi og Karl og Haraldur sýndu mikla baráttu. ekki síst undir lokin. Valur og Kris Skoruðu 29 stig hvor, Kalli 10. Hinni og Halli 7. Pallió. Ingvar 5 og Ingi'Þór 2. Hjá Skallagrími var Ermolinskij stigahæstur með 29 og Birgir og Henning skoruðu 13 hvor. Tindatóll liefur nú sex stig eftir fimm leiki. Sigraði Breiða- blik 93:86 fyrir viku. Næsti leikur verður í Stykkishólmi nk. sunnudag. Kellavík sigraði Val i gærkvcldi og er nú eina taplausa liðið i deildinni. Við smölun í Lýtingsstaða- hreppi í haust reyndust fimm kindur langt að komnar. Voru þær úr Þingeyjarsýslum og frá Eyrarbakka. Stöku sinnum liafa kindur úr Arnessýslu fundist í Lýtingsstaðahreppi, en ntjög sjaldgæft er að fé úr Þingeyjarsýslunt kottti fram á þessum slóðum. Ær úr Fnjóskadal í S,- Þing. kom af Hofsafrétti í fyrstu göngum. Lamb undan henni kom síðan á annan bæ í sveitinni og þá fannst einnig ær frá Eyrarbakka í Árnes- sýslu og tvö lömb hennar komu fram á öðrum stað í Lýtingsstaðahreppi. Kindur þessar höfðu þvælst yfir hálendið í sumar og varð það þeim að aldurtila því allt fé sem farið hefur yfir vamalínur Sauðfjárveikivama er umsvifalaust sent í sláturhús. OÞ. Ljós punktur t tilverunni Penninn Sigurður Egilsson á Stekkjar- fiötum dó 19. ágúst 1975 og var jarðaður að Goðdölunt 28. sama mánaðar. Veður var gott þennan dag og margt fólk við jarðarförina. Ég sá um þessa samkomu og þegar kistan var komin ofan í gröfina stóð ég á grafarbarminum eins og foldgnátt fjall var sagt. Þá vildi svo til, ég veit ekki hvernig á því stóð, að penni dróst upp úr vestisvasa mínum og datt ofan í gröfina. Þessi penni var sjálfblekungur og ég sætti mig við að missa hann ofan í gröf bróður míns. En sagan er ekki öll. Þarna rétt hjá var Borgar Símonarson kirkjubóndi á Goðdölum og sonur hans 10 ára gamall, Guðmundur Símon. Það voru engin orð töluð, en Borgar og annar maður tóku Guðmund Símon, létu hann síga ofan í gröfina og héldu í fætur hans. Og Guðmundur Símon kom með pennann upp úr gröfinni. Þessi saga sýnir vel að Vestdælingar verða ekki ráðalausir þó eitthvað óvænt komi fyrir. Hin síðari ár hefur Guð- mundur Símon verið búsettur í Reykjavík. Hann var nýlega hér á ferð og ég spurði hann um grafarferðina. Hann mundi vel eftirhenni og sagði að penninn hafi legið öðru megin við kistuna. Hvort ég átti þennan penna lengur eða skemur man ég ekki, en gallinn er sá að það sem ég hef skrifað nteð mínum pennum, hefur verið misjafnt álitið. Skrifað 26. september 1992 Bjöm Egilsson frá Sveinsstöðunt.

x

Feykir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.