Feykir


Feykir - 28.10.1992, Qupperneq 3

Feykir - 28.10.1992, Qupperneq 3
37/1992 FEYKIR3 Svört skýrsla Hun þótti ekki fögur skýrslan sem stjórnendur skólagarða Sauðárkróksbæjar sepdu frá sér í lok starfsárs. „Ég verð að segja að þetta er með þeim svörtustu skýrslum sem ég hef séð”, sagði Knútur Aadnegaard forseti bæjarstjórnar þegar fundar- gerð félagsmálaráðs kom til umræðu í bæjarstjórn. Það gekk sem sagt allt á afturfótunum hjá þeim í skólagörðunum síðasta sumar. Ekki var beint hægt að tala um gróðratíð, tíðarfar leiðin- legt, spretta léleg, og stór hluti þeirra aldina, sem uxu þokkalega sprungu. En von- andi kemur betri tíð með blóm í haga hjá krökkum í skólagörðum næsta ár. Báðum megin við borðið Það er alvanalegt víða um land, sérstaklega á smærri stöðum, að sömu menn sitji í stjórnum stærri fyrirtækja á staðnum. Þetta fyrirkomulag getur óhjákvæmilega orðið til þess að upp komi sérkennileg staða, og svo mun hafa orðið á aðalfundi Hólaness á Skagaströnd í síðustu viku. Höfðahreppur er stærsti eigandi Hólaness, og svo vill til að hreppsnefndarmenn eiga einnig sæti í stjórn Skagstrendings. Þannigtóku hreppsnefndarmennirnir t.d. þátt í atkvæðagreiðslu um það hvort að skora ætti á þá sem stjórnarmenn í Skag- strendingi að fresta ákvörð- un um sölu Arnars. Ef þetta er ekki sérkennileg staða, hvað þá? Midsa ráðinn Ungmennafélagið Neisti hefur endurráðið Hasseda Miralem sem knattspyrnu- þjálfara fyrir næsta keppnis- tímabil. Midsa eins og Bosníumaðurinn er kallaður leikur einnig með Neista og þykir mjög sterkur leikmaður. Neistamenn reikna með að sami mannskapur verði hjá félaginu og var síðasta sumar, en þá hafnaði liðið í þriðja sæti Norðurlandsriðils 4. deildarkeppninnar, með betra markahlutfall en HSÞ Þvottavél til sölu! Til sölu lítiö notuð þvottavél af VIAKTA-gerö. Nánari upp- lýsingar hjá Bjarna I síma 95- 36012, eftir klukkan 18. Kiiluukórasambandið fundar á Hvammstanga Laugardaginn 24. október sl. var haldinn aðalfundur Kirkju- kórasambands Islands á Hvammstanga. Er það í fyrsta sinn sem aðalfundur þess er haldinn utan höfuð- borgarsvæðisins á Ijörutíu ára starfstíma sambandsins, en það er nú að hefja sitt 41. starfsár. I tilefni 40 ára starfs var gefin út á vegum sambandsins þýsk messa eftir Franz Schubert í íslenskri þýðingu Sverris Pálssonar, en frum- texta gerði Johan Philipp Neumann. Þetta rit hefur farið víða um land og m.a. fengu þeir er sóttu organista- námskeið í Skálholti siðla sumars það að gjöf frá Kirkjukórasambandinu. Fram kom á fundinum að gott samstarf væri við embætti söngmálastjóra þjóð- kirkjunnar. I lögum sambands- ins kemur fram að hlutverk þess sé meðal annars að göfga kirkjusöng í landinu. Stjórn sambandsins var endurkjörin en hana skipa: form. Guðmundur O. Guð- mundsson, gjaldkeri Guðrún Sigurðardóttir, ritari Heiðmar Jónsson og meðstjórnendur Sigurbjörg Helgadóttir og Ragnheiður Bjarnadóttir. Vara- maður er Kristrún L. Gísladóttir og endurskoðandi Þorvaldur Friðriksson. Meðal þess sem ákveðið var á fundinum var að endurvekja skyldi Kirkju- kórasamband Húnavatns- prófastsdæmis og kosin var nefnd til að vinna að því máli. Eftir fundinn var helgistund í Hvammstangakirkju og spiluðu Haukur Guðlaugsson söng- Gísli á Hofi gefur út bók um hrossaræktendur Gísli Pálsson á Hofi lætur ekki staðar numið í bókaút- gáfunni, frekar en öðrum hlutum sem hann hefur tekið sér fyrir hendur. Fyrir jólin er væntanleg frá bókaútgáfunni á Hofi bók sem allir hestaunnendur hljóta að fagna. Fjallar hún um 73 hrossarækt- endur í Skagafirði og Húna- þingi. Að sjálfsögðu hafa allir þessir ræktendur komið kyn- bótahrossum í ættbók. Frásögn verður um hrossa- ræktina hjá hverjum og einum, og einnig er stefnt að því að hafa þrjár myndir af hrossum frá hverju búi, þar af eina litmynd. Ritstjóri bókarinnar er Ingimar Ingi- marsson á Ytra-Skörðugili. Bókin sem prentuð verður á Akureyri, verður einnig gefin út á ensku og þýsku. Eiðfaxi, hestafréttir, greinir einnig frá því að fyrir jólin komi út bókin „Merar- kóngar”, sem Jónas Kristjáns- son gefur út. Þarverður skrá yfir um 5500 eigendur ættbókarfærðra hrossa frá aldamótum. Tveir Skagfirð- ingar eru meðal þeirra Qögurra sem flest hross eiga skráð í ættbók: Einar E. Gíslason og Sveinn Guð- mundsson. Helgi Ólafsson organisti í Hvammstangakirkju nokkur verk á orgelið auk þess sem kór með söngfólki frá flestum kirkjukórum í V,- Hún. söng nokkur lög. Stjórn sambandsins lýsti yfir ánægju sinni með fundarstaðinn og reiknar með að framhald geti orðið á þeirri stefnu að halda aðalfundi sambandsins sem víðast um landið. EA. Fullt hús hjá Pálu á Hofsósi „Þetta var yndælt og d<emmtilegt. Það var spilað á orgel, sungið og skrafað og lesin upp Ijóð. Það var ákaflega gaman að hitta allt etta fólk og náttúrlega ánægjulegast að sjá öll börnin sín þarna saman, það er svo sjaldan sem það gerist núorðið”, sagði Pála Pálsdóttir fyrrum skólastjóri á Hofsósi, en hún varð áttræð sl. sunnudag og hélt upp á afmælið í Félagsheimilinu Höfðaborg ásamt börnunum sínuni níu og ijölda gesta. Að sögn Pálu voru þeir 112 sem drukku kaffi í Höfða- borginni á sunnudaginn. „Ég fékk þarna ákaflega fallega kveðju í ljóðaformi frá Hjalta mínum Gísla. Hann var að beita og gat ekki komið en bað Mæju fyrir þetta til míri. Og gjafirnar sem ég fékk. Ég var alveg bit, og sumar voru svo dýrar að maður skammast sín alveg fyrir að taka við þeim. Og svo blómin, þau voru svo mörg að þetta er eins og blómabúð hjá mér. En ég er nú búin að losa út svolítið af þeim, kom dálítlu upp á sjúkrahúsið”, sagði Pála þegar slegið var á þráðinn til hennar í tilefni afmælisins. Pála segist vera nokkuð hress ennþá, þó það sé farið að koma henni í koll að hafa unnið full mikið. „Maður var stundum fram á nótt að gefa forskriftir og stundum fannst mér þegar ég var að fá jólakortin að ég hefði skrifað á þau sjáll'. En það var ákaflega gaman að þessari stund fyrir handan. Ég er ekki frá því að það sé að lifna yfir Hofsósi aftur. Ég vona það minnsta kosti og ég segi það satt, að í kvöldbæninni: blessaðu drottinn bæ og líf, þá leitar hugurinn ósjálfrátt yfir fjörðinn”, sagði Pála að endingu. ALMENNAR KAUPLEIGUIBUÐIR TIL SÖLU ERU EFTIRTALDAR ALMENNAR KAUPLEIGUÍBÚÐIR Á SAUÐÁRKRÓKI: FREYJUGATA 30 EFRI HÆÐ 3JA HERBERGJA ÁÆTLAÐ VERÐ KR. 8.200.000.00 - AFHENDING 15. JÚNÍ1993 JÖKLATÚN 8 RAÐHÚS 4RA HERBERGJA ÁÆTLAÐ VERÐ KR. 8.300.000,00 - LAUS TIL AFHENDINGAR NÚ ÞEGAR LÁNAKJÖR: 70% LÁN ÚR BYGGINGARSJÓÐI VERKAMANNA TIL 43 ÁRA 20% SÉRSTAKT LÁN TIL 5 ÁRA - ÚTBORGUN 10% EÐA 30% IJMSÓKNARFRESTUR ER TIL 23. NÓVEMBER 1992 ALLAR UPPLÝSINGAR Á BÆJARSKRIFSTOFUNNI MILLI KL. 9 OG 11 MÁNUDAGA TIL FÖSTUDAGA Húsnæðisnefnd Sauöárkróks

x

Feykir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.