Feykir


Feykir - 04.11.1992, Síða 2

Feykir - 04.11.1992, Síða 2
2 FEYKIR 38/1992 FEYKIR - Óháö fréttablaö á Noröurlandi vestra Kemur út á miövikudögum vikulega. Útgefandi: Feykir hf. Skrifstofa: Aöalgata 2, Sauöárkróki. Póstfang: Pósthólf 4, 550 Sauðárkróki. Símar: 95-35757 og 95-36703 Fax 95-36162. Ritstjóri: Þórhaliur Ásmunds- son. Fréttaritarar: Magnús Ólafsson A,- Húnavatnssýslu og Eggerí Antonsson V- Húnavatnssýslu. Auglýsingastjóri: Hólmfríöur Hjaltadóttir. Blaöstjórn: Jón F. Hjartarson, sr. Hjálmar Jónsson, Sæmundur Hermannsson, Siguröur Ágústsson og Stefán Árnason. Áskriftarverö 110 krónur hvert tölublað. Lausasöluverö 120 krónur. Umbrot Feykir. Setning og prentun: Sást sf. Feykir á aðild aö Samtökum bæja- og héraðsfréttablaöa. FEYKIR blað sem vitnað er í Ríkidæminu illa varið Barlómur og svartsýni hefur einkennt þjóðmálaumræðuna um nokkurt skeið. Helst er að skilja á landsfeðrunum, að allt sé á hraðri leið til andskotans og illa geti farið ef við herðum ekki enn á ný hina margfrægu sultaról. Helsti bjarghringur þjóðarinnar virðist að mati forspárra stjórnmálamanna vera aðild að EES, þessum gimsteini sem glóir svo í samfélagi bandaríkja Evrópu. Því er réttilega haldið fram að bölsýnin hafi slæm áhrif á athafnalíf hér á landi. Einstaklingar og fyrirtæki halda að sér höndum og slá framkvæmdum á frest til betri tíðar. Þannig framkallar þetta krepputal kreppuna sjálfa, en trúlega er samt ástandið ekki líkt því svo slæmt að hægt sé að gefa því slíkt nafn. En vissulega eru málefni þjóðar- skútunnar í erfiðri stöðu um þessar mundir. Atvinnuleysi er að aukast og verður líklega talsvert í vetur. Vonandi samt að eitthvað rætist úr aflabrögðum, bað kæmi til með að bjarga miklu. Oft er talað um að þjóðin eyði meiru en hún aflar. Vissulega er þetta rétt, sérstaklega þó að því leyti hvað við nýtum illa okkar eigin framleiðslu. í sumum tilfellum er reyndar framleiðsla okkar ekki samkeppnisfær hvað verð snertir, en það breytir því ekki að hingað til hefurfólk alltof lítið haft þaðí huga að velja íslenska vöru. I raun erum við rík, en förum ákaflega illa með ríkidæmi okkar. Almenningur hefur til þessa ekki sett samasemmerki milli íslenskrar fram- leiðslu og þess að hafa atvinnu. Það er trúlega fyrst núna á atvinnuleysistímum sem fólk er farið að hugsa í þá veru. En ef við göngum í EES má búast við að erlendar vörur freisti okkar meira en nokkru sinni áður, jafnvel þótt íslenskir framleiðendur geri sitt besta í að standast verðsamkeppnina. Þá reynir á skynsemina og þjóðerniskenndina enn frekar. Það er því æði timabært að ráðamenn þjóðarinnar skori á landsmenn að nýta auðævi sín og velja íslenskt. b r Hugmyndir um sorpbrennslustöð á Hofsósi: Verður í biðstöðu fyrst um sinn Tindastóll „valtaöi" yfir Val í gærkvöldi „hetta mál er í biðstöðu og verður það sjálfsagt eitthvað á næstunni”, sagði Jón Guð- mundsson sveitarstjóri á Hofsósi, aðspurður hvað liði hugmynd- um um sorpbrennslustöð á Hofsósi með þátttöku Sauðár- króks, Siglufjarðar og annarra sveitarfélaga á svæðinu. Hug- myndin var þá jafnframt að hagkvæmt gæti reynst að nýta orkuna frá brennslustöðinni til upphitunar fyrir þorpið. Þessi hugmynd kviknaði í framhaldi af því að fullreynt þótti að ekki fyndist neinn jarðvarmi í nágrenni Hofsóss, en borað var á nokkrum stöðum í nágrenninu á síðasta hausti. Ákveðið var að bæjarstjórar Sauðárkróks og Siglufjarðar ásamt sveitar- stjóra Hofsóss ræddu þessi mál. Formlegar viðræður hafa ekki átt sér stað, en að sögn Snorra Björns Sigurðs- sonar er beðið eftir skýrslu um lausn sorpeyðingarmála á Vesturlandi. Jón sveitarstjóri Hofsóss segist sjálfur hafa verið að skoða þessi mál og fengið að Til sölu! Til sölu notað bárujárn, New Holland bindivél.árgerö 1986. Áburöardreifari, 10 poka árgerö 1990 og nokkur vel ættuö trippi. Upplýsingar í sima 38062. fylgjast með því sem er að gerast í Skaftafelli, en þar er verið að koma upp lítilli sorpbrennslustöð sem á að duga fyrir þjóðgarðinn og sveitina í kring. „I þessu sambandi er ég þá bara að hugsa um sundlaug og upphitun skólans og félags- heimilisins”, sagði Jón Guð- mundsson. Framkvæmdum við lýsingu og frágang á hafnargarði er lokið fyrir nokkru og þessa dagana er verið að lagfæra veginn yfir gilið sem skemmdist í vatnavöxtum í vor, korna fyrir lýsingu við veginn og einnig vegriði þar sem dýpt gilsins þykir hættulega mikil. Það voru glaðir áhorfendur sem fóru heim úr Síkinu í gærkveldi eftir góðan sigur Tindastóls á Val í Japisdeild- inni. Eftir frcniur dapran fyrri hálfleik fóru Tindastólsmenn gjörsamlega á kostum í seinni hálfleiknum og völtuðu yfir gestina. Lokatölur urðu 94:87. Útilitið var ekki gott hjá Tindastóli fyrir leikinn, Valur og Halli mcð fiensu og Páll frá vegna meiðsla, þannig að ekki náðist að stilla upp sterkasta liðinu. Talsverðar sveiflur voru í fyrri hálfieiknum, Valsarar yfirleitt með forystu, en leikurinn bragðdaufur,sér- staklega af hálfu Tindastóls. Það voru Ingvar og Halli sent héldu liðinu á floti með þremur þriggja stiga körfum hvor. Staðan í lcikhléi var 37:30 fyrir Val. Sítrónumixtúran virðist hafa farið vel í Tindastólsliðið í leikhléinu. Oþekkjanlegt lið kom inn á völlinn. Smá sarnan söxuðu strákarnir á forskot Valsmanna, náðu að jafna 49:49 og nteð sterkum varnaleik og góðri hittni höfðu þeir yfirleitt frumkvæðið á næstu mínútum. Forskotið var þó ekki verulegt fyrr en komið var vel frant yfir miðjan hálflcikinn, er þeir breyttu stöðunni úr 72:68, í 79:70. Miklu munaði að Frank Booker aðalstjarna Vals- manna var í strangri gæslu Péturs Vopna Sigurðssonar. Urðu þeir svekktir þegar á leið, fengu á sig tvö tækni- víti. Þar með var góður Tindastólsigur staðreynd, 94:87. „Nú loksins kom það sem ég hef beðið eftir, að við lékum eins og eitt lið", sagði Valur Ingimundason þjálfari Tindastóls, en hann lék geysivel í seinni hálfleik- num, skoraði þá 21 stig og alls 25 í leiknum. Ingvar Ormarsson átti mjög góðan leik og skoraði 20 stig. Sömuleiðis Chris Moore og Haraldur Leifsson með 19 stig hvor. Pétur Vopni gerði 7 og Karl Jónsson 4. Booker skoraði 28, Brynjar 21 og Magnús 15. Tindastóll hefur nú 8 stig eftir 7 leiki. Næsti leikur verður gegn KR syðra á sunnudag, og Grindvíkingar koma síðan í heimsókn í Síkið nk. þriðjudagskvöld. Ahorfendur í gær voru 650. Stelpurnar standa sig Kvennalið Tindastóls hefur innbyrt tvo sigra í þeim sex leikjum sem liðið hefur leikið í fyrstu deildinni í vetur og er þetta mun betri frammistaða en menn bjuggust við af hinu reynslulitla liði, en einungis einn leikmanna liðsins er kominn á venjulegan meistara- flokksaldur, hinar stúlkurnar leika cinnig með yngri flokkum félagsins. Tindastóll lék tvo leiki syðra um helgina. Vann þann fyrri 58:43, en tapaði síðan daginn eftir fyrir íslands- meisturum Kefiavíkur 60:103. I þessum leik kom það stúlkunum í koll eins og í seinni leikjum helganna, hvað breiddin er lítil í liðinu og þreytan segir því meira til sín. I Ieik Tindastóls og Stúdenta var jafnræði með liðunum framan af. Staðan í leikhléi var 26:23 fyrir Tindastól. Fljótlega í síðari hálfieik sigu síðan okkar stúlkur fram úr og lokatölur urðu eins og áðursegir 58:43. Kristín Magnúsdóttir skoraði flest stigin 16. Kristjana Jónasdóttir var skammt undan með 15, Bima Valgarðs- dóttir 11, Inga Dóra Magnús- dóttir 7, Ásta Benediktsdóttir 5og HóImfríðurSveinsdóttir 4. Eftir að hafa lagt allt í sölurnar gegn Stúdentum áttu Tindastólsstúlkur aldrei möguleika á móti Kefivík- ingum. Birna var atkvæða- mest þeirra í leiknum, skoraði um 20 stig, og Kristín Magnúsdóttir gerði 12 stig.

x

Feykir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.