Feykir - 07.07.1993, Page 1
©
rafsjá hf
RAFVERKTAKAR
SÉRVERSLUN
MEÐ RAFTÆKI
SÆMUNDARGÖTU 1
SAUÐÁRKRÓKI
Starfsfólk sallílskvcrkunar Fiskiðju Skagiirðinga naut þcss greinilega í veðurblíðunni á dögunum að
komast út undir ferskt loft til að seila hausa á Nígeríumarkað. Markaðurinn þar ytra fyrir herta þorsk-
hausa cr sagður góður eins og undanfarin ár. Fiskiðjan, sem er einn stærsti útflytjandi þessarar vöru,
kcmur tU með að flytja út heldur mcira magn af hausum á þessu ári en því síðasta. Svo framarlega scm
herforingjarnir þar ytra geri ekki eina byltinguna enn, en slíkir atburðir hafa ætíð skapað vandræða-
ástand á markaðnum. Síðast gerðist það fyrir rúmum fimm árum.
Könnuð möskvastærð þeirra fáu neta sem liggja í Miðfirði:
Samkomlag um eftirlit netalagna
Áætlunarflug til Sauðárkróks:
Fólk óánægt með
þjónustu Flugleiða
Forráðamenn íslandsflugs óska eftir fundi
„Veiðieftirlitsmaðurinn var bara
að mæla möskvastærð nctanna
um miðjan dag í gær, en venju-
lega hefúr verið farið í þessar eft-
irlitsferðir að næturlægi, svo að
líklega verðum við ekki með-
Ágætis kolaveiði hefur verið
norður með Skaga undanfarið
og fjórir bátar frá Skagaströnd
scm stunda þær veiðar fá ágæt-
is afla, allt að flmm tonn í róðri.
Tilraun hcfur verið gerð með
vinnslu kolans í frystihúsi Hóla-
ness síðustu tvær vikurnar og
25 manns haft af því atvinnu.
Ekki er cnnþá Ijóst með arð-
scmi vinnsiunnar og því ekki
vitað hvort framhald verði á í
Hólancsi.
Mcgnið af kolanum hefur þó
farió til vinnslu í Hafnarfirði, þar
sem að Hólanes hefúr ekki yfir að
ráða fullkominni vinnslulínu fyrir
höndlaðir eins og glæpamenn í
ár“, sagði Hvammstangabúi einn
í samtali við Feyki. Veiði á sil-
ungi og laxi hefúr verið treg
bæði á stöng og í nct undanfarið,
og því eru þeir fáir sem lagt hafa
kolann nó mannafla, en frystihús
fýrirtækisins hefúr lítið verið starf-
rækt á þessu ári, vinnustaður þar
sem áður störfuðu tæplega 50
manns.
Mun fleiri bátar stunda nú
kolaveiðar frá Skagaströnd en
vcrið hefur undanfarin ár og í
fyrra t.d. var bara einn á kola. Bát-
amir tjórir sem stunda veiðamar
nú eru Olafur Magnússon,
Hafnín, Auóbjörg og Helga
Björg. Aó sögn Vilhjálms Skafta-
sonar hafnarvarðar hafa hand-
færaveióar gjörsamlega bmgðist
til þessa, þær 4-5 trillur sem em á
fæmm hafa lítið veitt.
net við strönd Miðfjarðar.
Það er Kristján Þorbjömsson
lögregluþjónn sem annast veiðieft-
irlit í sumar og mun hann hafa ósk-
að eftir góóri samvinnu viö þá að-
ila sem hyggjast stunda netaveið-
amar í sumar. Þar sem að tíð hefúr
verið köld og lítið veiðst em ein-
ungis fjórir sem eiga net í sjó nú.
Viðmælandi Feykis sagði að
margir Hvammstangbúar hefðu
hreinlega alist upp vió netaveiðam-
ar og þær alla tíða þótt mikið sport
og að auki þokkaleg búbót.
„Síóan er það venjulegast
þannig aó ef eitthvert „Ijöf' færist í
hlutina eins og stundum hefúr ver-
ið, að net hafa verið tekin upp af
veiðieftirleiti og menn kærðir, að
það fjölgar netunum stórlega á eft-
ir. Þá fara kannski á annan tug að-
ila að leggja. Annars virðist stefnt
að því að banna okkur þessar veið-
ar. Mér skilst að nú sé fmmvarp
fyrir þinginu, sem kveði á um að
einungis eigendum og forráða-
mönnum lögbýla verði heimilt aó
leggja tvö net. Það yrði náttúrlega
eignaupptaka ef þau lög verða
samþykkt".
„Ég held að þó að við höfum
ekki sýnt eins hörð viðbrögð og
Húsvíkingar, þá hafl óánægja
okkar með þjónustu Flugleiða
komist til skila. Aðilar skýrðu sín
sjónarmið á þessum lúndi og síð-
an er að sjá hvort að eitthvað
gerist. Við erum svo sem ekkert
úrkula vonar um að Flugleiðir
bæti þjónustu sína við Sauð-
krækinga“, sagði Snorri Björn
Sigurðsson bæjarstjóri, en bæj-
arstjórn Sauðárkróks fundaði
með fúlltrúum Fluglciða fyrir
viku.
Mikil óánægja er innan bæjar-
stjómar Sauðárkróks og meðal
margra bæjarbúa með þjónustu
Flugleiða við staðinn. Ferðum var
fækkað niður í sex á viku fyrir
stuttu, en sl. vetur og veturinn þar
áður vom 10 ferðir á Krókinn í
viku hverri. Annars hefúr áætlunar-
flug yfirleitt verið sjaldnar yllr
sumartímann. Sumaráætlun nú
gerði í fyrstu ráð fyrir sjö ferðum á
Aldraður maður úr Varmahlíð
slasaðist talsvert sl. miðvikudags-
morgun þegar hann varð undir
bifreið sinni við eyðibýlið Kirkju-
hól í Seyluhreppi. Maðurinn,
sem jafnframt er eigandi Kirkju-
hóls, hafði lagt bflnum í litlum
halla og var að hóa búpcningi af
túninu, þegar bfllinn rann af stað
og Icnti á honum. Lá maðurinn
bjargarlaus þarna í fjóra tíma.
Þegar kona hans kom úr vinnu
um hádegið gerði hún sér grein
fyrir að ekki væri allt með felldu,
en þótti líklegt að Kirkjuhóll væri
staðurinn sem vitja bæri, enda
ferðir mannsins þangað nær dag-
Iegt brauð.
Konan kom strax boóum um
Krókinn í viku, en skyndilega var
þeirri áætlun breytt í sex ferðir.
Ástæðan fyrir þessu er sú aó Flug-
leiðum bauðst allt í einu að leigja
eina af vélum sínum erlendis. Fé-
lagið á við haróan rekstur að glíma
um þessar mundir og töldu forráða-
menn þess ekki stætt að hafna slíku
boði. Fyrir vikið varð að fækka
ferðum í innalandsflugi á flesta
áætlunarstaði á landinu.
Snorri Bjöm Sigurðsson bæjar-
stjóri sagði að menn væru óhressir
með aó búa við slíkt óöryggi í sam-
bandi við áætlunarflug, að áætlun
stæði ekki deginum lengur eins og
gerðist við upphaf sumaráætlunar
nú. Snorri sagði að forráðamenn Is-
landsflugs hefðu óskað eftir fundi
með bæjaryfirvöldum og væntan-
lega yrði sá fundur haldinn á næst-
unni. Það væri hinsvegar Ijóst að
Flugleiöir vildu halda áætlunarleyf-
inu á Sauðárkrók og væru ekki til-
búnir til samninga um að Islands-
flug yfirtæki það.
síma frá næsta bæ við Kirkjuhól,
Víðidal. Brugðust læknarog hjúkr-
unarlið skjótt við og sjúkrabíll kom
bráðlega á vettvang. Var maðurinn
fluttur á Fjórðungssjúkrahúsið á
Akureyri. Reyndist annar fótur
hans brotinn og fjögur rif. Hann var
enn á gjörgæslu nú eftir helgina en
sagður á þokkalegum batavegi.
Talin er mesta mildi að ekki
skyldi þó hafa farið verr. Maðurinn
er hjartasjúklingur og blóðþynning-
arlyf sem hann neytir hafði aukið á
blóðmissinn sem var talsverður.
Bæði hjól bifreiðarinnar fóru ylir
fót mannsins en svo heppilega vildi
samt til að bíllinn rann nokkra
metra í burtu svo eiturloft pústkerf-
isins náði ekki til hans.
Skagastrandarbátar
gera það gott í kola
Hjartaveill maður varð undir bíl sínum:
Lá bjargarlaus í 4 tíma
—ICTcn?i?! Iip—
Aðalgötu 24 Sauðárkröki
ALMENN RAFVERKTAKAÞJÓNUSTA
FRYSTI- OG KÆLIÞJÓNUSTA
BÍLA- OG SKIPARAFMAGN
VÉLA- OG VERKFÆRAÞJÓNUSTA
SÍMI: 95-35519 • BÍLASÍMI: 985-31419 • FAX: 95-36019
Æ
bílaverkstæði
simi: 95-35141
Sæmundargata lb 550 SauÖórkrókur Fax: 36140
Bílavi&geröir * Hjólbar&averkstæ&i
RÉTTINGAR • SPRAUTUN