Feykir - 07.07.1993, Síða 8
Einkareikningur,
framtíðarávísun
á góða ávöxtun, ódýran yfirdrátt
og víðtæka viðskiptaþjónustu!
7. júlí 1993, 25. tölublað 13. árgangur.
Sterkur auglýsingamiðill
Sími35353
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna
I»essa dagana eru að hefjast tökur
fyrir næstu mynd Friðriks I>órs
Friðrikssonar Bíódaga. Fara þær
að mestu fram við gamla bæinn á
Höfða á Höfðaströnd og nágrenni.
Einnig verður citt atriði myndar-
innar tekið á Blönduósi á leið kvik-
myndafólksins norður. A Höfða
verður um 20-30 manna hópur við
tökur langt fram í mánuðinn.
Hcimamenn munu koma við sögu
í lcik og söng, félagar í karlakórn-
um Hcimi og Leikfélagi Sauðár-
króks. Að sögn Friðriks I>órs þarf
enn fleiri í hópscnur og er þar
einkum verið að slægjast eftir
eldra fólki. Geta þeir sem vilja vera
Taka Bíódaga að hefjast á Höfða
Friðrik Þór Friðrksson hefur í mörgu að snúast þessa dagana.
með haft samband við forráða-
menn Lcikfélags Sauðárkróks.
Þaó er Islenska kvikmyndasamsteyp-
an hf. sem annast gerð myndarinnar
Bíódaga, en hún er stærsta verkefnið
sem Friðrik Þór hefur ráðist í til
þessa. Handritið byggir að mestu á
bcmskuminningum Friðriks Þórs
sjálfs en hann var sem drengur í sveit
á Höl'ða í mörg ár og á ættir sínar að
rckja þangað. Var það tilefni þess að
Höfði var valinn sem einn tökustaður
fyrir Böm náttúrunnar á sínum tíma.
Anton Jónsson fymim bóndi á Höfða
er stór sögupersóna í Bíódögum og
með hlutverk hans fer Jón Sigur-
bjömsson. Friðrik Þór sjálfur er leik-
inn af ungum pilt úr Hafnarfirði Orv-
ari Jens Amarssyni. Sigrún Hjálmtýs-
dóttir, betur þekkt sem Diddú söng-
kona, fer með hlutverk móður Frið-
riks og föður hans leikur Rúrik Har-
aldsson. Það er útför föðurins frá
Hofskirkju sem útheimtir mannflestu
senu myndarinnar.
Bíódagar eiga að gerast á einu ári,
1964, en það var einmitt fyrsta vorið
sem Friðrik Þór var í sveit á Höfða. Á
þessum tíma var Kanasjónvarpið á
Vellinum allsráðandi, enda það ís-
lenska ekki tekið til starfa. Myndin
spinnur saman þann hugarheim sem
lOáradrenghnokki liftrí, annarsveg-
ar með því að gleypa í sig efni sjón-
varpsins og síðan sá veruleiki og
draumar sem birtast honum í sveitinni.
Saga bæjarsvananna á Bakka öll
Karlinn bar beinin á Bretlandseyjum í vetur
Kristínu Lárusdóttur húsfrú á
Bakka í Vatnsdal bárust í vor
þau hryggilegu tíðindi að karl-
svanurinn scm hefur verið tíður
gcstur á Bakka síðustu fjögur
sumur, hafí borið bcinin suður á
Bretlandseyjum í vetur. Þá er
lokið sögu svanahjónanna sem
voru fastagcstir á Bakka í þrjú
sumur, en kvenfuglinn flaug á
steinvegg á kvöldferð sinni af
Reykjavíkurtjörn í SkerjaQörð
8. mars í fyrravetur og lét þar
lífið.
„Karlinn kom hingað 22. mars
Lítil vinkona Diddu að gefa
annrri gæsinni.
í fyrravetur og var hér fram í júní.
Þá náði hann sér í aðra konu og
það hefur líklega verió hún sem
ginnti hann með sér til Bretlands.
Þær eru svona þessar kerlingar,
baldnar sumar“, sagði Didda á
Bakka í samtali við Feyki. „Svo að
hann kemur ekki meira hingað,
nema þá andi hans. Annars hafa
tvær álftir verið hér innan girðing-
ar í sumar, ákaflega gæfar, og okk-
ur dettur í hug að þetta séu tveir af
ungunum fimm sem þau komu
upp héma um árið og voru svo
óskaplega gæfir“, bætti hún við.
Álftimar, sem vom gestkom-
andi á Bakka, héldu sig á Reykja-
víkurtjöm að vetrinum. Þangað
sótti Didda þær heim í hitteðfyrra-
vetur og strax og svanimir sáu
matmóður sína koma með kleinur
að bakkanum héldu þeir til móts
við hana og átu úr lófa líkt og í
varpanum á Bakka. „Fólkið sem
var þama leit mig homauga þegar
ég kallaði á svanina og það hefur
ábyggilega haldið að ég væri ný-
sloppin út af kleppi, enda forðaði
þaó sér alltsaman nema lítill drcng-
ur sem spurði mig hvort ég ætti
svanina.
En ég sakna þess að þær koma
Kristín Lárusdóttir (Didda)
húsfreyja á Bakka í Vatnsdal.
ekki lengur og mig dreymdi fyrir
því þegar kvenfúglinn dó. Mér
fannst svanimir vera komnir héma
norður fyrir fjósið og annar þeirra
var alblóðugur. Svo las ég það í
blaði að álft hefði flogið á húsvegg
og rotast í einhverju ofsaveóri sem
gekk yfir landið. Þær fara víst oft
suður í Skcrjafjörð af Tjöminni á
nóttinni. Eg setti mig í samband
við Olafur Jenssen fuglafræðing
og hef fregnað hjá honum af
dauða beggja fuglanna, en Olafur
sér um merkingar fugla á Tjöm-
inni“, sagði Didda á Bakka.
Verkamannafélagið Fram ályktar:
Rekstur Loðskinns
verði tryggður
„Við gjaldþrot íslensks skinna-
iðnaðar á Akureyri vaknar sú
spurning hvort komið sé að lok-
um skinnaiðnaðar á Islandi. Fyr-
ir atvinnulífíð á Sauðárkróki
yrði það mikið áfall ef Loðskinn
yrði gjaldþrota, en á því virðist
hætta um þessar mundir“, segir
í ályktun stjórnar Verkamanna-
félagsins Fram á Sauðárkróki,
sem skorar á stjórn Loðskinns,
bæjaryfírvöld, stjórnvöld, banka
og sjóði sem málið varðar, og
aðra þá scm geta haft þar áhrif
á, að gera allt sem unnt cr tif að
tryggja áframhaldandi starfscmi
þessa þýðingarmikla fyrirtækis á
Sauðárkróki.
í ályktuninni segir að gjaldþrot
Loðskinns yröi enn meira áfall
þcg;ir til þess er horft að verulegur
árangur hafi náóst á síðustu mán-
uðum í ýmsum innri málum l'yrir-
tæksins, svo sem varðandi mark-
aðsmál og gæói framleiðslunnar.
Þá megi benda á að sútun og út-
flutningur mokkaskinna sé gjald-
eyrisskapandi framleiðsla, en talið
er að eitt starf í slíkri grunnfram-
leiðslu leiöi af sér c.a. tvö í þjón-
ustu.
Þá segir einnig í ályktun stjóm-
ar Fram, að þó umræður hafi geng-
ió í þá átt undanfama mánuði, að
atvinnulíf og atvinnuástand sé í
góðu horfi á Sauðárkróki og í
Skagafirði, sé staóreynd að at-
vinnulcysi er og hcfur verið tals-
vert. Vegnafyrrihlutajúnímánaðar
fengu samtals um 70 manns
greiddar atvinnuleysisbætur hjá
fjórum verkalýðsfélögum og frá
áramótum hafa verið greiddar um
15,6 milljónir í bætur. Þetta gerist
þrátt fyrir vöxt í einstökum at-
vinnugreinum, einkum sjávarút-
vegi. Sé þá umhugsunarefni hvað
sá aflasamdráttur sem búið er að
ákveða komi til með að fækka
störfum mikið.
Frjósamt fé af Ströndum:
Gráblesa bar þrisvar
a rumu arin
Ekki verður annað sagt um
hana Gráblesu, 3ja vetra kind á
Bakka í Vatnsdal, en að hún sé
frjósöm. I>egar hún bar í lok
maí nú í vor, var það í þriðja
skipti á rétt rúmu ári sem hún
ber, og skilaði tveim sperrtum
tvílembingum eins og í tvö fyrri
skiptin. Er þetta stíft á spilum
haldið hjá kindinni, þar sem að
ær ganga með í 20 vikur.
Gráblesa er af mislitum fjár-
stofni sem fenginn var í fjárskipt-
um frá Stóra-Fjarðarhomi á
Ströndum fyrir þremur árum.
Kristín Lárusdóttir húsfreyja á
Bakka segir að ekki hafi liðið
nema mánuóur frá því að tví-
lembingamir vom teknir frá Grá-
blesu á síðasta hausti og þangað
til hún bar aftur. Gerðist það 8.
nóvember.
„Það hefur nú rcyndar verið
svolítill mglingur á sauðburóinum
héma. Þaó var önnur kind scm
bar síðan á annan í jólum, en sú
var geld núna í vor“, sagði
Kristín.
JtógABÚÐ
BRYKTJCARS
Gæðaframköllun