Feykir - 23.02.1994, Qupperneq 1
©
rafsjá hf
RAFVERKTAKAR
SÉRVERSLUN
MEÐ RAFTÆKI
SÆMUNDARGÖTU 1
SAUÐÁRKRÓKI
Fjárhagsáætlun Sauðárkróks afgreidd í gær:
120 milljónir til verk-
legra framkvæmda
Félagar í Hestaíþróttadeild SkagaQarðar gátu ekki fengið hagstæðara veður til að halda ískapp-
reiðar sl. laugardag. Blankalogn og blíða var og menn og hestar spegluðust í Holtstjörn neðan
Skörðugilsbæjanna þar sem keppni fór fram. Þátttaka var mjög góð og fjöldi áhorfenda dreif að.
Þetta var fyrsta punktamót af þremur sem HÍDS gengst fyrir í vetur. Það næsta verður á Sauðár-
króki 19. mars og keppninni lýkur síðan á Hólum á sumardaginn fyrsta.
Stíflan undan vatni eftir 50 ár
Ef hlýindin haldast áfram
næsta mánuðinn gefst gestum
er Fljótanna vitja kostur á að
sjá Stíflusveitina að nýju, eftir
að hún hefúr verið hulin undir
aðveitulóni Skeiðsfossvirkjunar
síðan 1945. Fyrir dyrum standa
allmiklar lagfæringar og end-
urbætur við Skeiðsfossvirkjun.
Vegna þeirra verður öllu vatni
hleypt úr lóninu 22.-23. mars
næstkomandi og mun lónið
standa autt í um vikutíma.
I»etta er gert vegna viðgerða á
Iokubúnaði virkjunarinnar.
Einnig verður í sumar skipt um
aðra vatnsaflsvél Skeiðsfoss-
virkjunar og einn af þremur
rafölum virkjunarinnar.
, ,Fólk sem komið hefur upp á
stíflugarðinn á vorin þegar valn er
í lágmarki í lóninu, hefur orðið
undrandi á þcirri sýn sem fyrir
augu hefur borið. Ég á von á að
þetta veröi enn stórkostlegra þeg-
ar öllu verður hleypt úr lóninu og
sjálfsagt fýsir marga, sem þekkja
til hér, að sjá það sem fyrir augu
ber“, segir Kristján Sigtryggsson
stöðvarstjóri við Skeiðsfoss. Að-
spuröur sagðist hann þó ekki búast
við að sjá fagra sveit eftir að hún
hefúr verið undir vatni í tæp 50 ár.
Að sögn Kristjáns hefur lengi
staðið til að endumýja lokubúnað
virkjunarinnar, sem ekki hefur
reynst nægjanlega traustur og
ætíð hefur lekið örlítið með bún-
aðinum. Eftir að vatni hefur ver-
ið hleypt úr lóninu veróur komið
fyrir lokum úr timburvirki í
stokknum inn af lokubúnaðinum.
Vatni verður síðan hlcypt í lónið
að viku liðinni, enda lokubúnað-
urinn þá kominn á þurrt. Hleypt
verður síðan aftur úr lóninu 22.
apríl og veröur þaö þá að mestu
vatnslítið í viku til viðbótar. Krist-
ján stöðvarstjóri segir að reiknað
sé meó að þessum framkvæmd-
um vegna lokubúnaðarins ljúki í
júní, og em þær af stærðargráðunni
um 14 milljónir, það er að segja sá
hluti verksins sem boðinn var út.
Engin raforkuframleiðsla veiður
við Skeiðsfossvirkjun þær vikur
sem vatni er hleypt úr lóninu og
dagana fyrir og eftir. Þjónustu-
svæði virkjunarinnar nýtur á með-
an raforku frá Byggðalínunni.
Fjárhagsáætlun var afgreidd á
fundi bæjarstjórnar Sauðár-
króks í gær. Gerir hún ráð fyr-
ir gjald- og eignfærðri fjárfest-
inu að upphæð ríflega 120 millj-
ónir. Stærsti hluti hennar er
framlag bæjarins til byggingar
bóknámshúss ríflega 30 millj-
ónir króna, tæpum 30 milljón-
um tíl gatnagerðar, framkvæmt
verði fyrir um 20 milljónir við
hölnina, um 20 milljónum verði
varið til viðbyggingar við leik-
skólann Glaðheima, 16,9 millj-
ónum tíl framkvæmda á íþrótta-
velli og fimm milljónum til
byggingar íþróttahúss. Þá er
gert ráð fyrir fjórum milljónum
til hlutabréfakaupa. Aætlunin
felur í sér að skuldir bæjarins
aukist um tæpar 12 milljónir á
árinu.
Afborganir bæjarsjóðs verða á
árinu 60 milljónir og gert er ráð
fyrir nýjum lántökum að upphæð
58 milljónir. Þá er gert ráð fyrir aó
hlutur bæjarsjóðs í nýjum lántök-
um vegna héraðsnefndar verði
17,7 milljónir en hlutur bæjar-
sjóós í afborgunum héraðsnefnd-
ar verði 3,9 milljónir.
Snorri Bjöm Sigurðsson bæj-
arstjóri segir rekstrargjöld bæjar-
ins verða í svipuðu horfi milli ára.
„Við erum smásaman að auka
þjónustu við bæjarbúa og gemm
t.d. ráð fyrir framlagi til ráóning-
ar félagsráðgjafa á þessu ári. A
móti hefúr okkur tekist á undan-
fömum misserum að skera niður
kostnað vegna yfirstjómar bæjar-
ins, þannig að rekstrargjöldin hafa
staðið nokkuð í stað milli ára“.
Minnihluti bæjarstjómar sat
hjá við afgneiðslu fjáihagsáætlunar
og lögðu bæjarfúlltrúar Framsókn-
arflokks og fiilltrúi Alþýóubanda-
lags fram bókanir. Framsóknar-
menn gagnrýna í bókun sinni að
meirhlutinn hafi virt að vettugi,
tillögu sem þeir lögðu fram við
afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir
ári, að gerð yrði úttekt á rekstri
veitna og stofnana bæjarins fyrir
15. október sl. og einnig að ekki
hafi verið farið að ákvæðum sveit-
arstjómarlaga um gerð þriggja ára
áætlunar, er skipi verkefnum í
forgangsröð. Anna Kristín (Abl)
segir í bókun sinni að fjárhags-
áætlunin feli í sér óþarfar og óarð-
bærar framkvæmdir, og ekki hafi
verið farið út í endurskipulagn-
ingu sem líklega mundi skila hag-
stæðari rekstri bæjarfyrirtækja og
lækkun skulda bæjarins.
—KTenflill hjDI—
Aðalgötu 24 Sauðárkróki
ALMENN RAFVERKTAKAÞJÓNUSTA
FRYSTI- OG KÆLIÞJÓNUSTA
BÍLA- OG SKIPARAFMAGN
VÉLA- OG VERKFÆRAÞJÓNUSTA
SÍMI: 95-35519 • BÍLASÍMI: 985-31419 • FAX: 95-36019
ÆÞ
bílaverkstæði
sími: 95-35141
Sæmundargata 1 b 550 Sauðárkrókur Fax: 36140
Bílavi&ger&ir • Hjólbaröaverkstæ&i
RÉTTINGAR • SPRAUTUN