Feykir - 23.02.1994, Page 5
8/1994 FEYKIR5
Jón Karlsson form. verkalýðsfélagsins Fram:
Atvinnuleysi,
Atvinnuþróun
í umræðum um atvinnumál
og atvinnuástand, virðist nokkuð
útbreidd skoðun aó hér á Sauðár-
króki og Skagafjarðarsvæðinu sé
atvinnuleysi lítið og yfir höfuó
gott atvinnuástand. Aö sönnu eru
þetta afstæð hugtök; mikið eða
lítið atvinnuleysi fer kannski eft-
ir því við hvað er miðað. Þá
skiptir að sjálfsögðu máli hvem-
ig ráðamenn á hverjum stað mat-
reiða þessa hluti í fjölmiðlum og
almennar skoöanir fara þá eftir
því hvað menn heyra þar.
Hér hefur ekki verið blásið
mikió út það atvinnuleysi sem
verið hefur og er staðreynd.
Menn hafa frekar reynt að sam-
einast um lausnir og ýmiss konar
atvinnuþróun er í gangi sem
skapar fleiri störf. Hinsvegar er
atvinnuleysió staðreynd. Um það
vitna t.d. þær 36 milljónir króna
sem greiddar vom í atvinnuleys-
isbætur á síðasta ári.
Það má líka draga ályktanir af
því, að á árinu 1992 vom greidd-
ar 42 milljónir. Nú er það stað-
reynd að á Sauðárkróki hafa ekki
orðið áföll af völdum jyaldþrota,
og ekki samdráttur meira en
almennt er. Heldur raunar þvert
á móti. Þegar váboðar hafa sést
og hætta hefur steðjaó að hafa
ffamsýnir og hugsandi menn tek-
ið höndum saman og þá gert ráð-
stafanir sem dugað hafa til að
sem fæstir hafa misst vinnu sína
af þeim sökum.
Er þar á engan hallað þó að
sagt sé að þar hafa forystumenn
Sauðárkróksbæjar verið í farar-
broddi í áratugi. Hefur bærinn í
aðalatriðum komið skynsamlega
inn í atvinnumálin, yfirleitt á rétt-
an hátt og á réttum tíma. Með því
haft fmmkvæði um atvinnuþróun
og uppbyggingu, sem og björg-
unaraðgerðir þegar illa hefur
horft. Má þar nefna sem dæmi
stofnun US á sínum tíma, Fjöl-
brautaskólann, Steinullarverk-
smiðjuna og nú síðast cndurreisn
Loðskinns.
Og þegar betur er að gáð, er í
gangi hjá fyrirtækjum og einstak-
lingum margvísleg þróun, ný-
sköpun og markaðssetning, bæði
innan rótgróinna fyrirtækja og
svo stöfnun nýrra. Er hægt að
nefna a.m.k. tug af slíkum verk-
efnum og em vemlegar líkur á að
meirihluti þcirra komist í höfn.
Allt þetta skapar störf, treystir
gmndvöllinn undir búsetu og
vænlegt mannlíf og eykur fólki
bjartsýni og þor. Ekki veitir nú af.
Sem fyrr er sagt er staðreynd-
in hinsvegar sú að viðvarandi at-
vinnuleysi er. Nú í dag (18. febr.)
vom verkalýðsfélögin að greióa
útbæturtil 129félagsmanna. Em
þeir búsettir um félagssvæðið
allt, en 50 þeirra eiga lögheimili á
Sauðárkróki. Þetta atvinnuleysi
stafar ekki af neinum sérstökum
áföllum í atvinnulífmu, heldur af
því að því fólki fjölgar sífellt sem
sækir í þau störf sem fyrir hendi
em. Og reyndar em ástæðumar
augljósar: a.m.k. tvær þeirra,
samdráttur í landbúnaði og svo
hitt að Sauðárkrókur þykir væn-
legur staður til búsetu.
Atvinnuþróun og fjölgun
starfa er það gmndvallaratriði
sem mestu máli skiftir um áfram-
haldandi þróun. Tæpast verður
um það deilt að héraðið allt er
orðið eitt atvinnusvæði. 011 þró-
un ekki síst varðandi samgöngur
hefur unnið í þessa áttina. Þess-
vegna hlýtur ábyrgðin af fram-
haldinu að vera allra íbúa svæð-
isins og þeirra sem til foiystu em
kvaddir á hverjum tíma. Það
hlýtur að blasa við, að sveitarfé-
lögin eins og þau em nú em of
litlar einingar til að takast á við
þau verkefni sem framundan em
í atvinnu- félags- og menningar-
málum svæðisins. Það er ekki
einkamál eins sveitarfélags eða
forráðamanna þess að stuðla að
jákvæðum aðgerðum í þeim efn-
um. Hér hlýtur að þurfa sameig-
inlegt starf.
Skagfirðingar létu fram hjá
sér fara gullið tækifæri, þegar
íbúar í helmingi sveitarfélaganna
höfnuðu sameiningu á síðasta ári.
Þetta gmndvallaratriði að halda
þeirri þróun sem raunar er hér í
gangi, að skapa öllum starf sem
hér vilja vera, gengur tæpast upp
nema tekist verði á við verkefni
frá stærri heild - og allir séu með.
Með einu sveitarfélagi í Skaga-
firði em önnur og betri skilyrði til
að takast á við þá þróun sem ætla
verður að flestir vilji sjá hér á
næstu ámm. Því var það aó stjóm
Verkalýðsfélagsins Fram geröi
um þetta samþykkt sem send var
bæjarstjóm Sauðárkróks og öll-
um oddvitum á svæðinu. Má
raunar líta á þessa grein sem eins-
konar greinargerð með þeirri
ályktun og til frekari útskýringa
og áréttingar.
Þó svo sameiningin hafi verið
hafnað í sex hreppum er það eng-
an veginn endanlegur dómur. 011
skynsemi mælir með því að
þráðurinn verði tekinn upp að
nýju og þeir sem lögðust gegn
sameiningunni í haust endur-
skoði sína afstöðu. Menn tali
saman og kanni gaumgæfilega
hvort ekki sé hægt að komast að
sameiginlegri niðurstöðu. Og
umfram allt, að þau samtöl og
niðurstaða verði látin snúast um
það sem mestu máli skiptir.
ff
Komast áfram í lífinu
og lifa vel og lengi"
Er draumatakmark forseta skólafélags FNV
Fullt nafn: Kristín Sigurrós Ein-
arssdóttir
Fcedd: 3. apríl 1974.
Foreldrar: Einar Gíslason og
Auður Sigurrós Isaksdóttir.
Systkini: Gísli cr elstur, svo
Sigríður, Brynjólfur Oskar og
Astríður og ein hálfsystir Anna
Guðný.
Deild í FNV: Félagsfræðabraut.
Þrjú lýsingarorð sem lýsa þér
best: Oþolinmóð, kröfuhörð og
afar upptekin.
Hvar finnst þér best að vera:
Uppi í rúmi.
Hvernig líkar þér að vera hérna
í skóla: Mjög vel.
Hvaðfinnst þér best við skólann:
Gott félagslíf.
Hvaða viðburður í skólanum
finnst þér skemmtilegastur:
Erfítt að gera upp á milli.
Leikritin, Opnu dagamir og
árshátíðin.
Hvað finnst þér verst við Sauðár-
krók: Það er erfitt að segja. En
ætli þaó sé ekki rokið.
Kristín Sigurrós Einarsdóttir
forseti skólafélags FNV.
Helstu áhugamál: Ætli það sé
ekki þetta arfgenga, ýmis konar
félagsstörf.
Uppáhaldsmatur: Maturinn
hennar mömmu.
Besta kvikmyndin: Eg fer afar
sjaldan í bíó. Engin sérstök.
Hvaða þekktri persónu vildirðu
helst kynnast: Söngvaranum í
hljómsveitinni Vinum Dóra.
Hvað er það versta sem gceti
komið fyrir þig: Lenda í ein-
hverju alvarlegu slysi.
Hvað gleður þig mest: Að vera
í góðra vina hópi.
Uppáhaldsfélag í íþróttum: Ætli
ég verði ekki að segja Ung-
mennafélag Fljótamanna.
Skrýmastifélaginn: Tóti smiður.
Hver er helstafyrimyndin: Engin
sérstök, maóur reyndir bara að
tileinka sér það góða í þeim sem
maður kynnist.
Uppáhalds tónlist: Ég hlusta á
allt nemajass.
Uppáhalds teiknimyndapersóna:
Grettir.
Uppáhalds stjórnmálamaðurinn:
Jóhann Arsælsson.
Lífsregla: Komast yfir sem flest í
lífinu.
Hvað myndirðu gera efþú ynnir
milljón íhappdrœtti: Ætli maður
mundi ekki bara ferðast og
skemmta sér fyrir það.
Draumatakmark: Komast áfram
í lífinu, og lifa vel og lengi.
Félagasamtök, forráöamenn
iyrirtækja og klúbba!
„Látum sönginn hljóma"
Söngskemmtun Geirmundar
Bókanir og upplýsingar
í síma 96-22770
Láttu fagmenn yfirfara loftnetið hjá þér!
Erum með ný og góð mælitæki
til að mæla út loftnetskerfi.
Önnumst einnig uppsetningu á ioftnetskerfum.
❖ Ríkisjónvarp + útvarp
* Stöð 2
% Farsíma
% Bílaloftnet
% Og fleira
RAFMAGNSVERKSTÆÐI
sími 95-35200 - fax 36049