Feykir - 23.02.1994, Síða 8
Oháð fréttablað á Norðurlandi vestra
23. febrúar 1994,8. tölublað 14. árgangur.
Sterkur auglýsingamiðill
Frá æfingu á Saumastofunni á Hvammstanga.
Leikflokkurinn á Hvammstanga:
Æfir Saumastofuna
Æfingar á leikritinu Sauma-
stofan eftir Kjartan Ragnars-
son hafa staðið yfir um nokk-
urt skeið hjá Leikflokknum á
Hvammstanga og líður nú að
frumsýningu sem áætiuð er
nk.Iaugardagskvöld 26. febrú-
ar. Hörður Torfason hefur
annast leikstjórn og er þetta í
annað sinn og annað árið í röð
sem Hörður leikstýrir á
Hvammstanga.
Leikendur eru níu talsins og
alls koma um 20 manns að því
að koma sýningunni á fjalimar.
Aætlað er að sýning verði aftur
3. mars á Hvammstanga og síð-
an verði verkið sýnt utan byggð-
arlagsins, á Skagaströnd 9. mars,
í Búðardal 12. mars og Kópa-
vogi 13. mars. Að leikförinni
lokinni er svo fýrirhugað að sýna
þrisvar á Hvammstanga, 17., 18.
og 20 mars. Formaður Leik-
flokksins á Hvammstanga er
Auðbjörg Magnúsdóttir. EA.
Deildarstjóraskipti
hjá KS í Varmahlíð
, Já ég ætla að vona að reynsla
mín af dvölinni í Mývatnssveit-
inni komi mér til góða. Mér lýst
mjög vel á þetta nýja starf og
vil sjá Skagafjörð eflast. Við
erum í þjóðbraut og höfum
góða möguleika að því leyti.
Það verður kappkostað að veita
góða og lipra þjónustu“, segir
Helgi Gunnarsson sem taka
mun við starfi deildarstjóra úti-
bús KS í Varmahlíð með vor-
inu.
Helgi segist taka við góðu búi
af Guðmanni Tobíssyni, sem hafi
unnið farsælt og gott starf frá því
kaupfélagsútibúið var opnað í
Varmahlíð fyrir 26 ámm. Það er
að ósk Guðmanns sem deildar-
stjóraskiptin verða, og ætlarhann
að flytja sig um set til Sauðár-
króks og takast þar á við nýjan og
væntanlega heldur rólegri starfs-
vettvang hjá kaupfélaginu.
Helgi Gunnarsson hefur und-
anfarin misseri haft umsjón meö
byggingavörudeildinni í Skag-
firðingabúð, en var þar áður bú-
settur í Mývatnssveitinni, þar sem
hann leigði og rak útibú Kaupfé-
lags Þingeyinga.
LANDS
Þrjár bækur með mismunandi binditíma,
háum raunvöxtum og lántökurétti í RS
fm Landsbanki
Sími Mk ís,ands
LJlllll •J*J*J*J*J JjU Banki allra landsmanna
Verkalýðsfélagið Fram:
Hvetur til að héraðið
verði eitt sveitarfélag
LFNV sýnir
Stútungasögu
Leikfelag fjölbrautaskólans
frumsýnir annað kvöld
(fimmtudagskvöld) Ieikritið
Stútunga sögu. Er hér um
nýlegt leikverk að ræða eft-
ir þau Armann Guðmunds-
son, Hjördísi Heiðrúnu
Hjartardóttur, Sævar Sigur-
geirsson og Þorgeir Tryggva-
son. Leikendur eru um 25
talsins, þar af tveir kennar-
ar skólans, þeir Björn og
Geirlaugur Magnússynir.
Æfingar á Stútungasögu
hafa staðið yfir í nokkrar vik-
ur undir leikstjóm Eddu V.
Guðmundsdóttur. Talsvert af
söng og tónlist er í verkinu og
er sú hlið í umsjón Hilmars
Sverrissonar. Eins og fjöldi
leikenda gefur tileíhi til að
áætla, vinna mjög margir að
uppfærslu þessarar sýningar.
Jeppafólk
í ógöngum
Flugbjörgnnarsveitin í Varma-
hlíð var kölluð út klukkan
hálfníu á laugardagskvöld, til
eða grennslast eftir ungu fólki
sem hafði farið á tveim jepp-
um í Staðarfjöllin um miðjan
daginn. Björgunarmenn fóru
á tveimur snjóslcðum og snjó-
bfl upp í fjöiiin, en fljótlega eft-
ir að þeir lögðu af stað kom
einn jeppamannanna gang-
andi niður í Vatnshlíð. Varð
það til að auðvclda leitar-
mönnum að finna fólkið.
Að sögn Böðvars Finnboga-
sonar hjá Flugbjörgunarsveit-
inni, var fólkiö búið að vera á
gangi í fjóra tíma þegar það
fannst og var farið aó gæta tölu-
verðrar þreytu hjá því, en jepp-
ana hafði það fest í svokölluðum
Vatnadal. Greiðlega gekk að
ferja fólkið heim til sín, en jepp-
amir voru frá Víðimýrarseli og
Vatnshlíö. Böðvar sagði að þeir
þremenningar sem kallaðir voru
af þorrabótinu í Miðgarði hefðu
verið mættir þangað að nýju
klukkan hálf eitt.
A sunnudag var síðan farið
að ná í jeppana og reyndist það
ekki heiglum hent, enda ekkert
færi til að fara á jeppum upp í
fjöllin í hlákunni sem gerði um
helgina. Héldu lækimir ekki
jeppunum, en um síðir tókst þó
að koma jxim til byggða.
Stjórn Verkalýðsfélagins Fram
hefur sent áskorun til allra
sveitarstjórna í Skagafirði að
taka nú þegar upp viðræður
með það að markmiði að hérað-
ið verði eitt sveitarfélag. Askor-
unin er tilkomin vegna viðvar-
andi atvinnuleysis undanfarna
mánuði, og er stjórn Fram
þeirrar skoðunar að menn hafi
látið sér úr greipum ganga
tækifæri til að sameinast um
frekari atvinnuþróun og fjölg-
un starfa, þegar hafiiað var
sameiningu sveitarfélaga á síð-
asta hausti.
A fundi sínum nýlega fagnaði
stjóm Fram því að með samstilltu
átaki og mikilli vinnu fjölmargra
hafi að mestu tekist að koma í veg
fyrir stöóvun og gjaldþrot fyrir-
tækja á félagssvæðinu. Þá er það
einnig fagnaðarefhi að í sumum
fyrirtækjum er í gangi vöruþróun
og markaðssókn, auk þess sem ný
fyrirtæki eru að hasla sér völl með
nýjar framleiðslugreinar á svæð-
inu. Allt sé þetta jákvæð þróun
sem leiði af sér fjölgun atvinnu-
tækifæra, segir í áskoruninni.
Hinsvegar sé áhyggjuefhi, að það
atvinnuleysi sem viðvarandi hafi
Hafrannsóknarstofnun mælir
með því að heimildir til rækju-
veiða á Skagafirði verði tvö-
faldaðar ff á því leyfi sem gefið
var út í haust, úr 200 tonnum í
400 tonn. Er það svipuð veiði
og Ieyfð hefur verið í firðinum
undanfarin ár, kvótinn hefur
rokkað frá 400-500 tonnum,
þegar þær voru mestar í hitt-
eðfyrra. Ráðuneytið hefiir ekki
staðfest leyfið, en fastlega má
reikna með að svo verði.
Þegar Dröfnin rannsakaði mið-
in í haust var lítið um rækju, og
voru þá heintild til veiða skorin
niður. Þegar veiðar hófust síðan
að nýju efdr áramótin, hafði mikil
aukning orðið í rækju á firðinum
og hefúr veiði verið mjög góð að
verið á félagssvæðinu undanfama
mánuði, nái nú í auknum mæli til
íbúa strjálbýlli hreppa héraðsins,
og bregðast þurfi við því á viðeig-
andi hátt. Stjóm Fram telur að nú
sé vænlegast að kalla sem flesta til
ábyrgðar, til að takast á við at-
vinnuþróun í héraðinu, og því sé
best borgið með sameiningu hér-
aðsins í eitt sveitarfélag.
Jón Karlsson formaður Verka-
lýðsfélagsins Fram segir að af
mörgum aðilum sem að atvinnu-
málum komi, hafi af öðmm ólöst-
uðum engir sýnt þeim meiri skiln-
ing en forráóamenn Sauðárkróks-
bæjar, og hafi bæjarfélagið stutt
vel við atvinnulífið á mörgum
umliðnum ámm. A sama tíma
hafi fjölgað fólki úr sveitnum er
sótt hafi vinnu til Sauðárkróks. Sá
tímapunktur hljóti að koma að öll-
um sveitarfélögum í héraðinu beri
að sameinast í því verkefni, sem
atvinnuþróun og atvinnuuppbygg-
ing sé. Jón segir þaó geti ekki
talist sanngjamt að Sauðárkrókur
taki að mestu einn á sig þessar
byrðar í framtíðinni, sem þýði
ekkert annað en fresta verði verk-
legum framkvæmdum og upp-
byggingu þjónustu í bænum.
undanfömu. Þrír bátar em á rækj-
unni, 3 ífá Krók og einn ffá Hofsósi.
Oddvitinn
Sameining sameining. Þetta er
nú orðið svolítið þreytandi.
Hafrannsóknarstofnun:
Tvöfaldar heimildir til
rækjuveiða á Skagafirði
BÖKABÚB
BEXlTcXARS
Gæðaframköllun