Feykir - 18.05.1994, Blaðsíða 1
rafsjá hf
RAFVERKTAKAR
SÉRVERSLUN
MEÐ RAFTÆKI
SÆMUNDARGÖTU 1
SAUÐÁRKRÓKI
Skoðanakönnun Feykis vegna bæjarstjórnarkosninga á Sauðárkróki:
Útkoman svipuð og í síðustu kosningum
Alþýðubandalgið bætir við sig miklu fylgi, en K-listinn nær ekki inn manni samkvæmt könnuninni
Álit efstu manna
framboðslista:
Bjöm Sigurbjömsson A-Iista:
Hcr cr aöcins um skoðanakönn-
un að ræða. Alþýðuflokkurinn spyr
aó leikslokum 28. maí, og ég vona
að sjálfsögðu að útkoman verði ekki
lakari út úr kosningunum en könn-
uninni.
Stefán Logi Haraldsson B-Iista:
Af því úrtaki sem gert var finnst
mér svörunin lítil, og hlutur óákveó-
inna talsvert stór. Könnunin sjálf er
vísbending um að við séum stærsti
flokkurinn áfram og ég hef trú á að
við munurn bæta við okkur miðað
við þessa könnun. Mér sýnist fjórði
maðurinn innan seilingar.
Jónas Snæbjörnsson D-lista:
Skoðanakönnun í litlu samfélagi
eins og okkar getur aldrei gefið
marktæka niðurstöðu. Sjálfstæðis-
flokkurinn gerir sér vonir um enn
betri úrslit í kosningnum en skoð-
anakönnunin gefur til kynna.
Anna K. Gunnarsdóttir G-lista:
Þctta er því miður allt of lítið úr-
tak til að könnunin geti verið mark-
tæk. En ef hún gefur einhverja vís-
bendingu, sem ég tel samt ekki, þá
sýnir það sig að Alþýðubandalagið
er líklegast minni framboðanna til
aö ná inn manni. Við þurfum samt á
öllu okkar aö halda.
Hilmir Jóhannesson K-lista:
Eg álít að skoðanakannanir ætti
ekki að taka nær kosningum en
tveim vikum fyrir kjördag, vegna
þess að þær geta verið skoðana-
myndandi. Hins vegar get ég engu
ráðið um þetta og verð að sæta mig
við þær reglur sem í gildi eru. Eg er
í rauninni ánægðurmeð að K-listinn
er með og á sama máta mun ég
verða ánægður með það fylgi sem
K-listinn fær út úr kosningunum því
það er það fylgi sem við eigum
skilió.
Skoðanakönnun Feykis um
fylgi framboðslista fyrir bæj-
arstjórnarkosningarnar á
Sauðárkróki 28. maí nk., gefur
niðurstöður sem eru ótrúlega
líkar úrslitum síðustu kosn-
inga. Helstu breytingar eru
þær að G-Iisti Alþýðubanda-
lagsins bætir við sig verulegu
fylgi frá síðustu kosningum,
samkvæmt könnuninni, en K-
listinn tapar talsvert. Sem
kunnugt er verður nú kosið
um sjö sæti í stað níu í bæjar-
stjórn áður. B-Iistinn hlyti þrjá
menn nú samkvæmt könnun-
inni, D-listinn tvo og G-Iistinn
og A-listinn sinnhvorn fúlltrú-
ann.
Könnunin var framkvæmd
um síðustu helgi, frá laugardegi
til mánudags. Gert var 10% úr-
tak úr kjörskrá og reyndist tím-
inn of skammur til að unnt
reyndist að ná í um fjórðung
þeirra sem lentu í úrtakinu. Af
þeim 137 sem náðist í tóku af-
stöðu 71 eða rúmlega helmingur.
Spumingin sem lögð var fyrir þá
sem hringt var í var eftirfarandi:
Hvem framboðslista á Sauðár-
króki mundir þú kjósa ef kosið
yrði í dag?
Atkvæðin skiptust þannig að
A-listi Alþýðuflokks hlaut 8 at-
kvæði, B-listi Framsóknarflokks
fékk 25, D-listi Sjálfstæðisflokks
21, G-listi Alþýðubandalags 12,
K-listi óháðra 5. Óákveðnir voru
37 og 29 neituðu að svara.
Samkvæmt könnuninni verða
næstu bæjarfulltrúar á Sauðár-
króki þessin Stefán Logi Har-
aldsson B, Jónas Snæbjömsson
D, Bjami R. Brynjólfsson B,
Anna K. Gunnarsdóttir G, Stein-
unn Hjartardóttir D, Herdís Á.
SæmundardóttirB og Bjöm Sig-
urbjömsson A. Næsti maður inn
er Bjöm Bjömsson af D-lista og
þarf hann um 20 atkvæði frá
krötum til að ná kosningu.
Framkvæmd könnun-
arinnar
Urtakið var framkvæmt
þannig, að kjörskrá var reituð í
hólf með tíu nöínum. Utbúin var
talnaröð með tölum frá eitt til tíu,
og tölunum víxlað eins og ætla
mætti að gerðist ef teningi væri
varpað. Nöfn kjósenda vom síð-
an valin eftir þessari talnaskrá.
Það var Helgi Már Þórðarson
kennari ffá Vopnafirði sem ann-
aðist ffamkvæmd könnunarinn-
ar að mestu og var hún fram-
kvæmd á eins trúverðugan og
heiðarlegan hátt og ffekast var
unnt.
Ymsir kunna að spyrja hvort
að ekki hefði verið nær að fá ein-
hvem þeirra aðila sem sérhæfa
sig í gerð skoðanakannana til að
ffamkvæma könnunina. Svar við
því er að stærri blöð en Feykir
hafa ekki treyst sér til að leggja
út í þann kostnað sem því fylgir.
Fljótlega var ljóst að stór hluti
þeirra sem hringt var í vom óá-
kveðnir eða vildu ekki gefa svar.
Vom þeir spurðir hvort þeim
fyndist óþægilegt að aðili tengd-
ur svæóinu eins og Feykir gerði
þessa könnun, hvort svörin
hefðu verió öðmvísi ef Gallup,
Skáís eða félagsvísindastofhun
hefðu gert könnunina? Fólk
sagði hiklaust að það skipti ekki
neinu máli, það væri einfaldlega
ekki búió að gera upp hug sinn.
Hinsvegar stóð ekki á svari hjá
þeim sem höfðu tekið afstöðu,
enda var fólki gerð grein fyrir að
engu persónulegu væri haldið
eftir varðandi könnunina, aðeins
merkt við listabókstaf.
Áhugaleysi kjósenda?
I samtölum við fólk sem var
óákveðið kom ffani að þeim
fyndist stefnuskrámar seint á
ferðinni hjá framboðunum. Það
hefói ekki lesið blöðin sem
flokkamir hafa borið í hús og yf-
ithöfuð virtist áhuginn ffemur lít-
ill fyrir kosningunum hjá þessum
hluta úrtaksins. Svör í þessum
dúr vom ótrúlega algeng, og svo
virðist sem talsverð breyting
þurfi að verða á til að kosninga-
þátttaka verði ekki eitthvað
rninni í kosningunum 28. maí, en
verið hefur í undangengnum
kosningum. I síðustu kosningum
vom gild atkvæði rúm 82%
þeirra er vom á kjörskrá.
Ef gert er ráð fyrir að skipting atkvæða verði eins í
komandi kosningum og í skoðanakönnuninni og að
þátttaka í kosningunum 28. maí verði sú sama og
1990 munu atkvæði skiptast þannig milli flokka:
Könnun Feykis Kosningar 1990
A Alþýóuflokkur.......171....11,27%.......149....10,17%
B Framsóknarflokkur..535.....35,21%.......532....36,34%
D Sjálfstæðisflokkur...450...29,58%.......424....28,96%
G Alþýóubandalag....257......16.90%...... 148...10,11 %
K Óháðirborgarar....107.......7,04%.......154....10,52%
Ungir bæjarlistamenn
Eitt af því sem bryddað hefur verið upp á vegna væntan-
legrar Sumarhátíðar á Sauðárkróki er að ungum og efni-
legum listamönnum verði boðið að gera útilistaverk í bænum.
I gær voru undirritaðir samningar milli Fiskiðjunnar, ungra
listamanna og umsjónarmanns Sumarhátíðar um gerð mynd-
verka á veggi Skjaldarhússins. Verða myndirnar málaðar í
súlnabilin í bakgrunni myndarinnar, og eiga þær að tengjast
fiskinum og því sem skagfirskt er. A myndinni eru frá vinstri
talið: Öm Ingi Gíslason umsjónarmaður sumarhátíðar, Sverrir
Bergmann Magnússon, Pálmi Jónsson og Einar Svansson fram-
kvæmdastjóri Fiskiðjunnar.
—KTenfli!! hjDI—
Aðalgötu 24 Sauðárkróki
ALMENN RAFVERKTAKAÞJÓNUSTA
FRYSTI- OG KÆLIÞJÓNUSTA
BÍLA- OG SKIPARAFMAGN
VÉLA- OG VERKFÆRAÞJÓNUSTA
SÍMI: 95-35519 • BÍLASÍMI: 985-31419 • FAX: 95-36019
SHTIbílaverkstæði
Æ J_CJLK sími: ti-35141
Sæmundargata lb 550 Sauðárkrókur Fax: 36! 40
Bílaviógeróir • Hjólbaröaverkstæði
RÉTTINGAR • SPRAUTUN