Feykir - 24.08.1994, Blaðsíða 3
28/1994 FEYKIR3
9
Hil
C3
Jón Ragnarsson og Rúnar Jónsson sigurvegarar í..
rallinu.
Feðgarnir sigruðu
Góð frammistaða heimamanna í keppninni
Áhugamenn um bflaíþróttir í
Skagafirði og nágrenni kættust
sl. laugardag þegar fram fór
Áningarrallið. Þetta var í fjórða
sinn sem Bflaíþróttaklúbbur
Skagafjarðar og Áning samein-
ast um keppnishald í rallý. Það
voru þeir feðgar Rúnar Jóns-
son og Jón Ragnarsson sem
sigruðu aföryggi í Áningarrall-
inu og standa sem áður best í
keppninni til Islandsmeistara-
titfls.
Keppnin hófst við Hótel Án-
ingu kl. 9 á laugardagsmorgun og
ræsti Snorri Bjöm Sigurðsson
bæjarstjóri fyrsta bílinn. Ekið var
um Þverárfjall og Neðribyggð í
Austur-Húnavatnssýslu fyrir há-
degið og seinni hluti keppninnnar
fór síðan aðallega frani í austan-
verðum Skagafirði, á Bakka- og
Kolkuósvegi.
Rúnar og Jón náðu snemma
forustunni, en Steingrímur Inga-
son og Hjörtur P. Jónsson veittu
þeim harða keppni. Þessir kepp-
endur vom í sérflokki og aðrir bíl-
ar nokkuð á eftir. Um hádegið
munaði hálfri mínútu á þeim
tveim fyrstu, en strax á fyrstu sér-
leióinni festist Nissaninn í fimmta
gímum hjá þeim Steingrími og
Hirti og þar meó vom úrslitin ráð-
in.
Rúnar og Jón vom á Mazda
323, og sigmðu eins og áður seg-
ir, á 69,30 mín. Steingrimur og
Hjörtur urðu aðrir á 71,06. Sig-
urður Olafsson og Guöný Olafs-
dóttir á Ford Escort fengu tímann
82,41 og í fjórða sæti varð Ámi
Getur þú
unnið
sjálfstætt?
Hefurðu áhuga
fyrir að safna
auglýsingum?
Sjá auglýsingu um
aukavinnu á síóu 7.
Óli Friðriksson og ísak Guðjóns-
son á Toyota Corolla á 83,07.
Þá var röðin komin aó heima-
mönnum. Systkinin Hermann og
Sigfríður Halldórsböm urðu
fimmtu á Lödu Samara, fengu
tímann 85,00. Feðgamir Þorsteinn
P. Sverrisson og Ragnar Sverris-
son voru sjöttu á 85,80. Dala-
bóndinn Öm Ingólfsson og sonur
hans Ingólfur komust vel í mark á
Trabantnum. Fengu tímanna
101,38.
Þrjú pör þurftu aö hætta
keppni. Gírkassinn fór hjá Óskari
Ólafssyni og Jóhannesi Jóhann-
essyni. Hjólnaf brotnaði hjá Stef-
áni Ásgeirssyni og Witek
Bogdanski og tengslið gaf sig hjá
Magnúsi Ómari Jóhannssyni og
Bergi Bergssyni.
Viðurkenningar veittar
fyrir fegurstu garðana
Mönnum ber saman um að það
sumar sem senn er á enda, sé
það grösugasta sem komið hef-
ur lengi. Garðablóm og annar
gróður hefur því skartað sínu
fegursta í sumar. í síðustu viku
voru afhentar viðurkenningar
íyrir fegurstu garða á Sauðár-
króki.
Það er árlegur viðburður aó
umhverfis- og gróóurvemdar-
nefnd bæjarins gangist fyrir því
að eigendum fegurstu og snyrti-
legustu garða í bænum að mati
dómnefndar, séu afhentar viður-
kenningar. Að þessu sinni urðu
fyrir vali dómnefndar garðamir að
Smáragmnd 19 þar sem sem
Margrét Sigurðardóttir og Eiríkur
Sigurðsson búa, hjá systur Mar-
grétar að Víðihlíð 4, Heiðu Sig-
IgpK
Eitt fyrirtæki í bænum fékk viðurkenningu fyrir fallega og
vel hirta lóð, Mjólkursamlag KS.
Jónas Snæbjörnsson forseti bæjarstjórnar afhendir viður-
kenningu fyrir einn af þrem fegurstu görðum bæjarins
Margréti Sigurðardóttir að Smáragrund 19.
urðardóttur, og Rúnari Gíslasyni,
og að Artúni 17 þar sem Ingibjörg
Ingimarsdóttír og Jón Jósafatsson
búa. Þá fengu forráðamenn
Mjólkursamlags Kaupfélags
Skagfirðinga viðurkenningu fyrir
snytilega og vel hirta lóð.
Það var Jónas Snæbjömsson
forseti bæjarstjómar sem afhentí
viðurkenningamar. Gathann þess
í ávarpi sínu að það væri virkilega
sálarbætandi að verða vitni að því
að fólk hlúi að gróðri og væri vel
þess vert fyrir bæjarbúa að gefa
gaum að fallegum görðum í bæn-
um. Kannski sérstaklega þeim
görðum sem nú hefðu fengið við-
urkenningu umhverfis- og gróó-
urvemdamefndar, en garðamir
væm margir fallegir í bænum.
Samvinnubókin
Eflum skagfirskt atvinnulíf!
4% nafnvextir 4,04% ársávöxtun
Raunávöxtun á síðasta ári var 7,92%
Innlánsdeild Kaupfélags Skagfirðinga