Feykir


Feykir - 24.08.1994, Blaðsíða 7

Feykir - 24.08.1994, Blaðsíða 7
28/1994 FEYKIR7 Bóknámshúsið þykir henta einkarvel tii ráðstefnuhalds. Ókeypis smáar Til sölu Til sölu Mazda 626 árgerð 1986, ekinn 130 þús. km, mjög góður bíll. Upplýsingar í síma 35141 (Jóhann). Til sölu Subaru 1800 árgeið 1981, fjórhjóladrifmn. Góður bíll. Upplýsingar í síma 35734. Til sölu Lada sport árgeró 1991, 5 gíra ekin 55 þús. km. og skoðaurtil 1996. Upplýsingar í síma 22741. Til sölu Subaru Justy árgerð 1991, hvítur að lit. Upplýsingar í síma 36533. Til sölu fallegir Border collie hvolpar. Henta mjög vel sem fjárhundar, góðir í tamningu og einkar bamgóðir. Ættskrá fylgir. Seliast ódýrt. Upplýsingar í síma 93-47754. Til sölu ísskápur. Stór sam- byggóur kæli- og frystiskápur. Upplýsingar í síma 35911. Til sölu Nintendo talva ásamt níu leikjum. Verð 8-10 þúsund. Upplýsingar í síma 35830 frá kl. 7-8 á kvöldin. Fjárlaganefnd Norðurlandaráðs fundaði í bóknámshúsinu Ekki er ótrúlegt að Sauðár- krókur verði í ff amtíðinni mjög eftirsóttur staður tii ráðstefiiu- halds. Svo er að þakka tilkomu bóknámshúss Fjölbrautaskól- ans, sem segja má að hafi verið tekið í notkun er fúndur fjár- laganefndar Norðurlandaráðs var haldinn á Sauðárkróki fyrr í jjessum mánuði. Að sögn Vigfúsar Vigfússon- ar framkvæmdastjóra Hótel An- ingar býður nýja bóknámshúsið upp á frábæra aðstöðu til ráð- stefnuhalds og uppfyllir húsnæð- ið flesta þá staðla sem gerðir eru til húsnæðis fyrir ráðstefnur, en lítið mun vera um svo fullkomin ráðstefhuhús hér á landi. Fundur fjárlaganefndar Norð- urlandaráðs stóð yfir í einn dag á Sauðárkróki. Þingfulltrúamir, sem vom á þriðja tug, bmgðu sér einnig út í Drangey og ferðuðust aö auki um héraðið. Ami Matthí- sen alþingismaður er fulltrúi Is- lendinga í nefndinni. A fundinum var farið yfir reikninga síðasta starfsárs og gerð fjárhagsáætlunar fyrir næsta ár, þar sem rekstrartöl- ur em um 7 milljarðar króna. Ami sagði í samtali við svæðisútvarp- ið að aðstaða til ráðstefnuhalds á Sauðárkróki væri frábærlega góð. Vantar þig aukavinnu, sem þú getur jafnvel unniö heima hjá þér? Hefurðu áhuga á að safna auglýsingum? Ef svo er, hafðu þá samband við ritstjórn Feykis í síma 35757, eða í heimasíma ritstjóra eftir klukkan21 á kvöldin, 35729. á lands- mót skáta í Danaveldi Um miðjan júlí fór skátasveit frá skátaféiaginu Eilífsbúum í vinabæjarheimsókn til Köge í Danmörk. Ferðin var tvíþætt, ann- ars vegar að endurgjalda heim- sókn Kögeskáta, sem koniu til Sauðárkróks í fyrrasumíir og hins- vegar að fara á landsmót danskra skáta. Eilífsbúar vom eini íslenski skátahópurinn á hinu afarglæsi- lega og fjölmenna landsmóti danskra skáta, en þar vom skátar frá 40 þjóðlöndum. I Köge dvöldum við í þrjá daga og gistum í glæsilegu skóla- húsi í boði Kögeskáta. Þcir sýndu okkur síðan bæinn sinn og ná- grenni hans, einnig buðu þeir okk- ur til Hróarskeldu þar sem dóm- kirkjan o.fl. var skoðað. Við fór- um líka til Lejre þar sem við skoðuðum lítiö söguþorp, þar býr fólk á sumrin við fmmstæðar að- stæður og fomar hefðir. Þar er hægt að taka þátt í hinum ýmsu lifnaðarháttum forfeðra okkar. Eftir Kögeheimsóknina fömm við á landsmót danskra skáta sem haldið var við Holtsrupvatn á Suður-Jótlandi. Þetta var stærsta landsmót sem danskir skátar hafa haldið, með tuttugu og fjögur þús- und skátum frá 40 þjóðlöndum. Eilífsbúar áttu þama ánægjulega dvöl við leik og störf. Það var margt nýtt og skemmtilegt að sjá á svona stórmóti. Við kynntumst mörgum sióum og venjum og lögðum einnig okkar að mörkum með Islandskynningu. Síðustu tvo dagana skoðuðum við ýmsa merkisstaði í Kaup- mannahöfn, allt í boði Kögeskát- anna og verður þeim seint þökkuð þessi ágæta gestrisni. Eilífsbúar vilja einnig þakka öllum öðmm sem styrktu okkur við undirbún- ing fyrir þessa ánægjulega Dan- merkurferó. Bjöm Sighvats. Útboð Sauóárkróksbær óskar eftir tilboöum í vióbyggingu vió leikskólann Glaóheima á Sauóárkróki og í breytingar á núverandi húsnæói leikskólans. Brúttóflatarmál viðbyggingarinnar er um 273 fermetrar og 1035 rúmmetrar. Útboðsgögn veróa afhent á bæjarskrifstofunum á Sauöárkróki frá og meó kl. 13,00 mánudaginn 22. ágúst 1994 gegn 40 þúsund króna skilatryggingu. Tilboóum skal skila á bæjarskrifstofumar á Sauðárkróki eigi síóar en kl. 10,50 þriöjudaginn 13. september 1994. Áætluó verklok viöbyggingar eru 15. ágúst 1995 og heildarverklok 1. desember 1995. Bæjarstjóri. ^UNDS^ ÁSAUÐÁRKRÓKI Störfvið ræstingu og í mötuneyti! Laus eru til umsóknar viö Fjölbrautaskóla Noróurlands vestra á Sauóárkróki störf við ræstingu og í mötuneyti. Nánari upplýsingar veitir Sigurlaug Gunnarsdóttir forstöóumaóur mötuneytis og Gunnar Þóröarson húsvörður. Þá auglýsir skólinn eftir herbergjum fyrir nemendur úti í bæ fyrir næsta skólaár. Umsóknarfrestur er til 31. ágúst.

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.