Feykir


Feykir - 24.08.1994, Blaðsíða 2

Feykir - 24.08.1994, Blaðsíða 2
2 FEYKIR 28/1994 Keraur út á mióvikudögum vikulega. Útgefandi Feykir hf. Skrifstofa: Aóalgata 2, Sauðárkróki. Póstfang: Pósthólf 4,550 Sauðárkróki. Símar: 95-35757 og 95-36703. Myndsími 95-36703. Ritstjóri: Þórhallur Asmundsson. Fréttaritarar: Magnús Ólafsson Austur - Húnavatnssýslu og Eggert Antonsson Vestur - Húnavatnssýslu. Blaöstjóm: Jón F. Hjartarson, Guðbrandur Þ. Guðbrandsson, Sæmundur Hermannsson, Sigurður Ágústsson og Stefán Árnason. Áskriftarveró 137 krónur hvert tölublaó með virðisaukask.. Lausasöluverð: 150 krónur meó viróisaukask. Setning og umbrot: Feykir. Prentun: Sást hf. Feykir á aðild að Samtökum bæja- og héraðs- íréttablaða. Endurgerð Hillebrants- húss að hefjast Á næstunni munu hefjast end- urbætur á Hillebrantshúsinu á Blönduósi sem líkur eru taldar á að sé elsta timburhús landsins. Þetta hús á sér einnig merkilega sögu, sem ljóst er að varðveitist enn frekar með endurgerð hússins. Trésmiðjan Stígandi á Blönduósi verður verktaki við endurgerð hússins og Bragi Skúlason yfírsmiður. Hjörleifur Stefánsson arkitekt hefur verið ráðgjafi heimamanna við endurbyggingu Hillebrants- hússins og mælti hann eindregið með því að Bragi Skúlason ann- aðist yfirsmíði þess, en hann hef- ur mikla reynslu í endurbyggingu eldri húsa. Fyrsti verkhluti endurgerðar hússins er að laga það aö utan svo það haldi veðri og vindum. Eru til þess ætlaðar 1600 þúsund krónur á þessu ári, og er það fjármagnað til helminga af Blönduósbæ og Húsfriðunarsjóði Islands. Þá hef- ur stjóm Atvinnuleysistryggingar- sjóðs samþykkt að greiða tvö störf við endurbyggingu hússins í þrjá mánuði. Allmargir verktakar sóttust eft- ir endurgerð Hillebrandtshússins. Það voru auk Stíganda, Trésmiój- an Borg, Sauðárkróki, Grétar Guðmundsson Blönduósi, Guð- mundur Oli Kristinsson, Bolung- arvík, Hólmsteinn Snædal, Akur- eyri, Rafn Sveinsson, Siglufirði og Þórður Pálmi Þórðarson Blönduósi. Skattháir Ströndungar Þegar skrá yfir gjöld ein- staklinga og fyrirtækja var birt í lok júlímánaðar kom í ljós að fjórir Skagstrend- ingar voru í hópi þeirra 10 efstu á lista yfir gjaldhæstu einstaklinga í kjördæminu. Skrá yfir gjaldhæstu ein- staklingana lýtur þannig út: 1. Guðjón Sigtryggsson skip- stjóri Skagastr. kr. 3.506.705 2. Sveinn Ingólfsson fram- kvæmdastjóri Skagaströnd 3.442.432 3. Lárus Ægir Guðmundsson framkvæmdastjóri Skaga- strönd 3.346.880 4. Guðmundur H. Jónsson framkvæmdastjóri Fljóta- hreppi kr. 3.331.885 5. Guðmundur T. Sigurösson framkvæmdastjóri Hvamms- tangakr. 3.161.409 6. Pálmi Friðriksson verktaki Sauðárkróki kr. 3.108.174 I tiunda sæti var síðan Karl Þórólfur Berndsen vélsmiður Skagaströnd með alls í gjöld krónur 2.735.421 Héraðsmót framsóknarmanna ✓ Ami Tryggvason leikari er einn þeirra skemmtikrafta sem fram koma á héraðsmótinu. Síðbúið varp þrastar- hjóna á Hofsósi Hún Steinunn Traustadóttir á Berglandi II á Hofsósi fékk óvæntan félagsskap í lok júlí í sumar þegar skógarþrast- arhjón gerðu sér hreiður í blómapotti við hliðina á úti- dyrunum hjá henni. Ungarn- ir sem ólust upp í þessu hreiðri, yfirgáfu fyrir nokkrum dögum bernsku- stöðvar sínar. Það mun ekki vera algengt að skógarþrest- ir verpi svo síðla sumars. „Þetta voru ákaflega skemmtilegir og yndislegir ná- grannar. Eggjununt fjórum verpti þrösturinn í byrjun á- gúst. Þeim virtist alveg sama þó umgangur væri um dymar. Mamman kippti sér ekkert upp viö það og horfði bara á mig stórum augum. En eftir að ungarnir komu úr eggjunum uróu þau varari um sig og svo- lítið ákveðin. Þetta gekk ágæt- lega og ég kalla það bara gott að ungarnir skyldu komast úr hreiðrinu og geta bjargað sér eftir að þessi tími er kominn”, sagði Steinunn á Berglandi í samtali við Feyki. Skagfirðingar sigruðu Skagfirðingar sigruðu örugglega í I>ristinum árlegri keppni ung- menna úr Skagafirði og Húna- vatnssýslum sem fram fór á Króknum sl. fimmtudag. Ágæt- is árangur náðist á mótinu og sigur Skagfirðinganna kom ekki á óvart, þar sem ungmennasveit UMSS er mjög öflug um þessar mundir. Fjöldi unglinga sem sótt hefúr meistaramótin í sumar hefúr komið heim með svo gott sem verðlaunapening hver mað- ur. Margt bendir því til að bjart sé yfir framtíð frjálsra íþrótta í Skagafirði. Að loknum I>ristin- um var öllum keppendum boðið upp á veitingar í félagsheimilinu Ljósheimum. Úrslit í einstökum greinum í Þristinum urðu þessi: 12 ára og yngri: 60 metra hlaup sek. 1. Iðunn Bollad. USAH 9,0 2. -3. HelgaE. Þoikelsd. UMSS 9,3 2. -3. Amdís Víkingsd. USAH 9,3 1 .-2. Sveinn Guðm.s. UMSS 8,9 1.-2. Helgi Margeirss. UMSS 8,9 3. -4. Kristinn Ólafss. USAH 9,0 3.-4. Hjalti Jóhannss. USAH 9,0 Langstökk metrar 1. Geirþr. Guðm.d. UMSS 4,29 2. Linda H. Þórðard. USAH 4,25 3. Anna E. Hrólfsd. UMSS 3,85 1. Sveinn Guðm.s. UMSS 4,35 2. Helgi F. Margeirss. UMSS 4,33 3. Kristinn Ólafsson USAH 4,11 Hástökk 1. LindaH.Þórðard. USAH 1,30 2. Ásdís Vilhelmsd. USAH 1,20 3. Þómnn Eggertsd. USAH 1,15 1. Helgi F. Margeirss. UMSS 1,20 2. -3. Sigurjón Guðj.s. USAH 1,20 2.-3. Hjalti Jóhannss. USAH 1,20 Kúluvarp 1. Geirþr. Guðm.d. US AH 7,04 2. Karen Karlsd. USAH 6,62 3. Eyrún Ö. Skúlad. USVH 6,52 l.Heigi Margeirss.UMSS 8,57 2 Bjöm V. Sigurðss. USVH 8,06 3. Sveinn Guðm.s. UMSS 7,91 800 metra hlaup mín 1. Eyrún Ö. Skúlad. USVH 2,53 2. Helga E. Þorkelsd. UMSS 2,55 3. Geirþr. Guðm.d. USAH 3,08 1. Gunnar Andréss. UMSS 2,35 2. RagnarFrostasonUMSS 2,44 3. Kristinn Ólafsson USAH 2,49 4x 100 metra boðhlaup l.SveitUSAH 1:01,3 (Amdís, Iðunn, Linda, Geirþr.) 2. SveitUSAH 1:04,2 (Eyrún, Yr, Sigurbj., Þómnn) 3. Sveit UMSS 1:04,5 (Helga, Sigríður, Ragnh., Anna) l.SveitUMSS 1:01,2 (Sveinn, Helgi, Gunnar, Ragnar) 2. SveitUSAH 1:04,5 (Kristinn, Hjalti, Amiann, Vignir) Sveit US VH gerði ógilt. 13-14 ára: lOOmetrahlaup sek 1. Þómnn Erlingsd. UMSS 13,3 2. María Káradóttir UMSS 13,7 3. -4. Sigrún Líndal USAH 14,7 3.-4. Hulda Hák.d. USAH 14,7 1. Amar Bjömsson UMSS 12,4 2. Hrafnkell Ingólfss. UMSS 13,0 3. -4. Hannes Jónsson USVH 13,9 3.-4. Þorsteinn Jónss. USVH 13,9 Langstökk metrar 1. Þómnn Erlingsd. UMSS 4,39 2. María Káradóttir UMSS 4,21 3. Petrína Jakopsd. US AH 4,19 1. Amar Bjömsson US AH 5,09 2. Hannes Jónsson US VH 4,95 3. Hrafnkell Ingólfss. UMSS 4,87 Hástökk 1. UnaBjamadóttirUMSS 1,30 2. ElínKarlsdóttirUMSS 1,30 3. Hulda Hákonard. USAH 1,30 1. Hannes Jónsson USVH 1,55 2. Sævar Hafsteinss. UMSS 1,45 3. Jóhann I. Haraldss. UMSS 1,40 Kúluvarp 1. Þómnn Erlingsd. UMSS 7,60 2. Soffia Jónsdóttir UMSS 6,90 3. Jónína Guðbj.d. USAH 6,34 1. Birgir Sigmundss. UMSS 12,35 2. Hannes Jónsson US VH 10,19 3. Friðrik Hreinsson UMSS 8,91 800 metra hlaup mín 1. Sigrún Líndal USAH 2:52,8 2. Fanney Frostad. UMSS 2:54,0 3. Elsa Sigtryggsd. UMSS 3:00,5 1. Hanncs Jónsson USVH 2:24,5 2. Þorsteinn Jónsson USVH 2:37,6 3. Jóhann Haraldss. UMSS 2:38,5 Spjótkast metrar 1. Þórunn Erlingsd. UMSS 24,57 2. Elísa Ýr Sverrisd. USVH 18,72 3. Hugrún Hallgr.d. USAH 18,04 1. Birgir Sigmundss. UMSS 48,18 Þrösturinn verpti í blómapott rétt við útidyrnar hjá Steinunni á Berglandi. Þristinum 2. Hannes Jónsson USVH 33,42 3. Sigurjón Þorst. USVH 29,50 4x 100 metra boðhlaup l.SveitUMSS 56,2 (Fanney, UNa, María, Þómnn) 2. Sveit USAH 59,5 (Hulda, Sigrún, Hugrún, Jónína) l.SveitUMSS 52 ,í (Birgir, Amar, Sævar, Hrafnkell) 2. Sveit US VH 57,1 (Hannes, Þorsteinn, Sigurjón, Jón) 3. SveitUSAH 61,7 (Guðmann, Kristófer, Guójón, Hjalti) Úrslit í stigakeppni: Stelpun 1. USAH 108,5 2. UMSS 99,5 3. USVH 56 Strákar 1. UMSS 130 2. USVH 81,5 3. USAH 53,5 Heildarstig 1. UMSS 229,5 2. USAH 162 3. USVH 137,5 Þórdís sýnir í Kaffi Krók Undanfarnar vikur hafa verið til sýnis í Kafli Krók myndir eftir myndlistarkonuna Þór- dísi Elínu Jónsdóttur. Sýning- in stendur út þessa viku. Um er að ræða handmálaðar graf- íkmyndir, margar skemmti- legar og sumar hverjar geyma skagfirska stcmmningu og landslag. Þær eru til sölu og kosta frá krónum 3000. Þórdís Elín leggur með þess- ari lágu verðlagningu áherslu á að allir, verkamenn jaínt sem forstjórar og stórgrósserar, geti eignast listaverk. Þetta er í ann- aó sinn á skömmum tíma sem Þórdís Elín sýnir í Skagafirði. Fyrir nokkmm ámm hélt hún sýn- ingu í Safnahúsinu. Eiginmaður Þórdísar er Gunnar Gunnarsson frá Glaumbæ í Skagafirði.

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.